Bjarmi - 01.12.1998, Side 36
Viðtal við Kristjönu G. Eyþórsdóttur
augardaginn 14. nóvember
síðastliðinn stóð Biblíuskól-
inn við Holtaveg fyrir nám-
skeiðinu „Aðventa og jól -
hvers er vænst?” Þar fór
fram fróðleg umræða sem bendir til
þess að þegar við undirbúum jólin þá
séum við ef til vill ekki að keppa mest
að því sem við þráum helst. Bjarma lék
forvitni á að vita meira um málið og leit-
aði til Kristjönu G. Eyþórsdóttur, sem
var leiðbeinandi á námskeiðinu.
Fyrir þá sem vilja vita meira um
Kristjönu þá er hún jarðfræðingur með
B.S. próf og starfar við Vatnamælingar
hjá Orkustofnun. Hún er gift Jóni Bald-
urssyni lækni og eiga þau fjögur börn.
Nú heitir námskeiðið þitt „Aðventa og jól
- hvers er vænst?"
Já, ég valdi þessa yfirskrift áður en
ég byrjaði að undirbúa fyrra námskeið-
ið. Þá bjóst ég við að byggja námskeiðið
upp á ýmsu efni tengdu jólahaldi sem
ég hafði kynnst og við fjölskyldan haft
ánægju af. En svo barst mér efni sem
heitir „Aftengjum jólavélina", og mér
finnst það heiti líka segja mjög vel það
sem ég er að hugsa. Ég hef lengi leitað
ráða til að halda innihaldsrík jól,
þannig að það sé ekki allt búið eftir
matinn og gjafirnar á aðfangadag og
kannski jólaboð á jóladag. Það þarf að
sitja meira eftir en bara það sem var í
pökkunum og minningin um samveru
ættingja og vina.
Fyrra námskeiðið, segirðu - þú ert þá
búin að halda það tvisvar.
Já, það var annað námskeið á sama
tíma í fyrra.
Hvemig kom það til að þú Jórst að halda
þessi námskeið?
Það var einhvern tíma þegar Biblíu-
skólinn var að halda námskeið að fólk
var beðið um að koma með hugmyndir
að öðrum námskeiðum. Það hafði vakn-
að hjá mér áhugi á að heyra hvernig trú-
að fólk almennt héldi jól. Ég vildi sitja og
hlusta þar sem ýmsir væru með fram-
söguerindi, kristniboðar og gott trúað
fólk, en þeir fóru í þennan hugmynda-
banka og sumarið 1997 var hringt og
spurt hvort ég vildi sjá um námskeiðið.
Mér voru gefnar frjálsar hendur og ég
mátti fá aðra í lið með mér eins og ég
vildi, en ég lenti í tímahraki og það end-
aði með því að ég sá að ég yrði íljótari að
ganga bara frá þessu sjálf.
Þú hejur víst viðað að þér heilmiklu ejnl.
Ég safnaði saman alls konar bókum
og greinum sem ég hafði lesið og mér
þótti vænt um, en það sem mér fannst
áhugaverðast var bæklingur sem ég
hafði fengið árið 1990. Hann heitir
„Hver á eiginlega afmæli á jólunum?"
Þessi bæklingur hefur verið gefinn út
árlega undir þessu heiti en með nýju
efni í rúm tíu ár. Utgefandi er félags-
skapur í Bandaríkjunum sem heitir
„Alternatives“, við getum kallað hann
„Nýjar leiðir" á íslensku. Þeir reka áróð-
ur gegn öllu kaupæðinu í kringum há-
tíðleg tækifæri, hvort sem er jól eða aðr-
ar hátíðir í fjölskyldunni, og vilja að við
sýnum á látlausari hátt hvaða hug við
berum hvert til annars. Þessi samtök
byggja á kristnum grunnl og eru ekki
rekin í ábataskyni.
Hvenær lentirðu niðri á ejninu „AJtengj-
um jólavélina“?
Það barst mér í hendur rétt áður en
ég hélt fyrra námskeiðið. Það er reynd-
ar á ensku, og er annars vegar mappa
með uppskrift að fjögurra tíma nám-
skeiði, en hins vegar bók sem lýsir
reynslu fólks af námskeiðum sem höf-
undarnir hafa staðið fyrir, Jo Robin-
son og Jean Coppock Staehli. Þetta
var gefið út í New York árið 1991 en
það er áralöng vinna að baki því. Ég
greip þetta fegins höndum og nú í ár
var það meginuppistaðan í námskeið-
inu hjá mér.
Ég heflengi leitað ráða til að halda innihaldsrík jól,
pannig að pað sé ekki allt húið eftir matinn og gjaf-
irnar á aðfangadag og kannski jólaboð ájóladag.