Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.12.2001, Qupperneq 17

Bjarmi - 01.12.2001, Qupperneq 17
Vagninn hittir í mark hjá krökkunum. Aó meóaltali hafa 22,5 mætt á fundina í vagninum. Leiótogarnir grípa í eina af leikjatölvum vagnsins. Greinarhöfundur er annar frá hægri. 22. október Kæra dagbók. I dag var fyrsti fundurinn ívagninum hald- inn. Um var að ræóa YD-KFUM í Grafar- vogi og mættu 16 áhugasamir drengir. Þetta var skemmtileg stund og ástæða til að hlakka til framhaldsins. Verst þykir mér þó að sjá fólk í umferóinni snúa sig úr hálsliðnum til aó horfa á eftir þeim rauða. Já, og meóan ég man, vagninn kemst und- ir allar brýrnar — ég er búinn aó prófa! 11. nóvember Vagninn heimsótti MD-KFUK á Holtavegi í dag. Fyrst fengu stúlkurnar aó nota leik- tækin og svo var farið á rúntinn. Allar sátu þær á efri hæðinni og sungu eins og englar allan tímann. í Lækjargötu heyrói ég aó einhver kallaói: „Hvaó er þetta gula þarna niðri?“ Þá höfðu þærverið að horfa nióur á þakið á „dvergvöxnum“ strætisvagni eins og Reykvíkingar eiga að venjast. Þetta var ný reynsla fyrir stúlkurnar og höfðu þær greinilega mjög gaman af. 19. nóvember Kæra dagbók. Píluspjaldið, leikjatölvurnar og þyt- hokkíboróið höfða greinilega vel til ung- mennanna. Biðraóirnar í það síðast- nefnda eru þó alltaf lengstar — ásóknin er slík að ég kemst ekki einu sinni að! Þetta gengur auðvitaó ekki. 26. nóvember Kæra dagbók. Nú erum við búin að starfa í vagninum í rúman mánuó og halda 24 fundi í hon- um. Að meðaltali hafa 22.5 mætt á fund- ina. Starfið hefur gengið mjög vel þó vagninn hafi tvisvar gert smá uppreisn og bilað. Ingi og Þormar vinur hans hafa þó kippt því í lag í bæói skiptin og verið snöggir aó því. Krakkarnir hafa tekið okk- ur mjög vel og vió höfum fengið óskir frá unglingum ogforeldrum víða um borgina um heimsóknir þangað. Því miður getum við ekki orðió við öllum slíkum óskum. Við ættum kannski að kaupa tvo vagna í við- bót? Eóa þrjá? 17

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.