Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.2001, Page 37

Bjarmi - 01.12.2001, Page 37
ur sína tólf ára. Það var honum til láns aó kaþólskur prestur í Birmingham tók hann og yngri bróður hans að sér og reyndist þeim einstaklega vel. H ri ngad rótti nssaga Tolkien var sérvitringur og haldinn full- komnunaráráttu varðandi verk sín. Hann hafði t.d. aldrei hugsað sér að gefa út bókina Hobbitinn, sem er undanfari Hringadróttinssögu, hann skrifaói hana fyrir börnin sín fjögur og las hana fyrir svefninn. Góóur vinur Tolkiens, bók- menntafræðingurinn og rithöfundurinn C. S. Lewis, hvatti hann eindregió til að gefa hana út. Hobbitinn kom út 1937, seldist vel og var margverólaunuð. Aðdá- endur bókarinnar skrifuðu höfundinum og vildu heyra meira um Hobbitana, Miógarð og hringinn. Tolkien hóf aó rita Hringadróttinssögu sem var vissulega framhald af Hobbitanum en miklu alvar- legri og stórbrotnari saga í þremur bind- um. Útgefendur höfðu ekki mikla trú á þessu verki og höfnuðu því. Fékk þaó mikið á þennan viókvæma mann. Síðar fékkst útgefandi til að gefa út verkið. Hann reiknaói þó með því að það myndi ekki bera sig fjárhagslega, en raunin varð önnur. Fyrsta bindió, Föruneyti hrings- ins, kom út í júlí 1954. Ritdómur um bókina sem birtist ÍThe London Sunday Times var á þessa leið „ ...héóan í frá má skipta fólki í tvennt: Þá sem hafa lesió Föruneyti hringsins og þá sem ætla að

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.