Heima er bezt - 01.04.1952, Side 4

Heima er bezt - 01.04.1952, Side 4
100 Heima er bezt Nr. 4 áður en háttað var og alltaf sungnir sálmar líka.“ „Viltu nú ekki bregSa upp mynd af vökunni og undanfara hennar, fara með mig í lang- ferð inn í liðna tíð, bjóða mér inn í gömlu baðstofuna á Þóris- stöðum og kynna mér þennan fornmerka þátt heimilislífsins?“ „Jú, ég ætti að geta það. Nú, þú ert þá staddur í langri bað- stofu, sem snýr út og suður. Lengdin er tvær rúmlengdir og tvær rúmbreiddir, breiddin rúm- lengd og rúmbreidd. Hjónahúsið er syðst, inn af öðrum enda bað- stofu, fyrir því er engin hurð, en það er þiljað upp að bita. Kvöldsett er orðið, og fólkið sefur rökkursvefn. Benedikt — blessaður karlinn minn, eins og ég kallaði hann, og Guðný, kona hans, eru sofnuð inni í hjóna- húsi, og pabbi og mamma lúra í rúminu við baðstofuþiljuna. Þær Anna og Soffía sofa undir aust- ursúðinni. Rúm þeirra snúa göfl- um saman. Sveinn gamli spóna- smiður sefur undir gaflinum nyrzt í baðstofunni. Við krakk- arnir höfum hreiðrað um okkur úti í einhverju skotinu og höf- um hljótt um okkur; um svefn er ekki að tala, við erum á því skeiðinu, en reynum að finna okkur eitthvað til dundurs, eins og að skanderast, þangað til vakan hefst. í þetta sinn er vak- an helguð rímunni, og í kvöld hefst lestur rímunnar af Fer- tram og Plató. Hrotur berast til okkar utan úr myrkrinu. Fast er sofið. Loks heyrum við þrusk inn við bað- stofugaflinn. Pabbi og mamma eru að fara fram úr. Og nú berst þys frá hverju rúmi. Það er geispað, stunið og tekið í nefið. Mamma fer fram með lampann, sækir eldinn undir flöguna, nær sér í glóð, setur á lampann og blæs lífi í hana. Andartaki síð- ar er komið ljós í baðstofuna. Lýsislampinn hangir á öðrum dyrastaf hjónahússins, og á að bera birtu inn í það og um alla baðstofuna, en lítil vill hún verða birtan hjá gamla Sveini við norðurgaflinn, en hann bæt- ir fljótt úr því, kveikir á lampa, sem hann hefur til sérnota, því að hann er smiður heimilisins og vefari, öðrum þræði, og þarf góða birtu. Fólkið hristir nú í skyndi af sér svefndoðann. Pabbi hefur tekið sér sæti í hús- dyrunum og ég stend við hlið hans, því að ég hef embætti að gegna, á að færa kveikinn fram í lampanum jafnskjótt og hann brennur. Sveinn gamli höktir að vefstólnum. Anna, sem er farin að eldast, tekur rokkinn sinn, og * Soffía slíkt hið sama. Gömlu hjónin sitja inni í húsinu, Guð- ný með prjóna, en „karlinn minn“ með kamba. í þessu heyrist gengið inn göngin, hurðin opnast og ungur maður birtist í gættinni. Það er Jóhann sauðamaður. Hann hlamsar sér á rúmið sitt undir vestursúðinni, réttir fram fæt- urna og kallar á Soffíu, þjónust- una sína, en hún dregur af hon- um skó og sokka. Meðan þessu fer fram, býr pabbi sig undir kveðskapinn. Það er notalegur ylur í baðstofunni, ylur, sem verður enn notalegri, er hríðar- gráni heyrist gnauða við þekj- una. Hér er svo hlýtt, að allir sitja á nærfötunum við vinnu sína, en kýrnar eru líka í kjall- ara undir baðstofugólfinu. Pabbi réttir nú hendina upp á hilluna eftir bókinni, og sem Soffía hef- ur „þjónustað" hann Jóhann, hefur pabbi að kveða. Eftir- væntingarþys fer um baðstof- una, og rokkarnir raula undir. Það er ríman af Fertram og Plató: Artus nefni ég gildan gram gylltum stýrði brand-di. Stórauðugur stillir nam stjórna Frakkala-and-di.“ „Þetta var skemmtilegt. En segðu mér: Var ekki mikil draugatrú í œsku þinni?“ „Jú, en ég var ósköp ótrúuð á drauga. Fólkið heima vildi ekki heyra, að draugar væru til. Ég man vel eftir því einu sinni, að verið var að lesa í drauga- heftinu í þjóðsögunum. Guðný föðursystir mín kom að og spurði: „Hvaða bók er þetta?“ Henni var sagt það. „Ég tek hana og brenni henni þegar í stað á ykkar ábyrgð, ef þið ekki skilið henni,“ sagði hún. Það var aldrei talað um drauga.“ „Hún hefur auðvitað verið kunnug orðróminum um afa sinn, og ef til vill munað gamla manninn, þvi að Galdra-Geiri dó 1803. En voruð þið ekki myrk- fælin, krakkarnir?“ „Nei, við fundum aldrei til myrkfælni, og það mun hafa verið sjaldgæft á þeirri tíð, því að draugarnir lifðu svo góðu lífi í æsku minni. En það reið baggamuninn, að það var aldrei um drauga talað á heimilinu ... Einu sinni hef ég þó séð það, sem ekki var. Það var, skal ég segja þér, þegar sjóslysið mikla varð á Svalbarðsströndinni, þriðjudaginn 10. janúar 1871. Þá var ég sjö ára. Þeir höfðu far- ið sjö saman á bát inn að Akur- eyri til að sækja björg í bú, tveir frá Gautsstöðum, sinn frá hvor- um Dálksstöðunum, einn frá Svalbarði og tveir frá Þóris- stöðum: Benedikt, blessaður karlinn minn, og vinnumaður- inn Metúsalem Jónasson. Á bátnum var mikið háfermi, því að timbri hafði verið hlaðið inn- frá, en veður var hið bezta. Skömmu áður en þeir létu frá landi, kom til þeirra piltur fram- an úr Eyjafirði og bað um far með þeim, en hann þurfti að komast út á Höfðaströnd, hafði aldrei á sjó komið áður og var ósyndur eins og þeir allir. Varð það úr, að hann fékk að fljóta með. Svo er það seint um kvöld- ið, að ég er inni í húsinu, en eins og ég sagði áðan, var bað- stofan ekki þiljuð nema upp að bitum. Fyrir ofan bitann sást fram að baðstofudyrunum, og sá ég innan úr húsinu, ef ein- hver kom inn. Ég sé, að bað- stofuhurðin opnast og „karlinn minn“ kemur inn, og kalla upp: „Blessaður karlinn minn kom- inn!“ — hleyp fram fyrir, en þá er þar ekkert að sjá, og enginn hafði komið inn. Þetta þótti kynlegt. En skömmu síðar frétt- ist um slysið, bátnum hafði hvolft, svo að segja upp í lands- steinum, og enginn komst af nema pilturinn eyfirzki, hann flaut á trjáviðarböndum, kall- aði á hjálp og varð bjargað. Fimm líkanna rak strax, en tvö aldrei. — En talið var, að ég hefði séð sýnina, einmitt um það leyti, er slysið bar að höndum. — Ef mennirnir hefðu verið syntir, er ekkert líklegra en þeir hefðu allir komizt heilir í land.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.