Heima er bezt - 01.04.1952, Page 9

Heima er bezt - 01.04.1952, Page 9
Nr. 4 Heima er bezt 105 Þrir skjöldóttir tarfar. Mismunandi hornalögun og vöxtur þeirra áberandi. fyrir árásinni. En handtök árás- armannsins voru föst og ákveS- in. Steinmóður vippaði sauðnum út úr húsinu, gekk frá hurðinni með sömu ummerkjum og áð- ur. Síðan teymdi hann sauðinn af stað. Skepnan gekk við hlið hans, mótþróalaust. En þegar þeir voru komnir fram á brún- ina á beitarhúshólnum, tók 'kindin allt í einu snöggan kipp, Steinmóður var óviðbúinn, missti fótanna, fékk ómjúka byltu. Sauðurinn geystist á fleygiferð niður hólbarðið, dró Steinmóð, sem hafði náð með báðum höndum um hækilinn á öðrum afturfæti hans. Maðurinn hélt dauðahaldi, beit grimmdarlega á jaxlinn, sleppti ekki takinu, þó að hann merðist og hrumlað- ist til blóðs á sporuðum gler- ungnum. Og sauðurinn gaf eft- ir, lagðist fyrir gapandi af mæði. Steinmóður velti honum á hrygginn og hábatt hann. Tunglið var týnt; skin þess náði ekki lengur til jarðarinn- ar. Snjónum kyngdi niður, þétt skæðadrífa. Dúnalogn. Stein- móður rýndi í myrkrið og mugg- una, stóð upp, kveinkaði sér. Það tók í skrámurnar eftir byltuna. Sauðurinn hökti við hlið hans. Þannig gengu þeir um hríð, þá leysti Steinmóður bandið af fæti hans, brá því um hornin. Og sauðurinn lötraði, sigraður, bljúgur og auðsveipur. Þegar kom að kotinu, fór Steinmóður í útikofann. Eftir nokkrar stimpingar hafði hann snúið sauðinn niður og njörvað hann á öllum fótum. Ljós af ós- andi grútartýru sló draugslegri glætu um kofakrilið, sem var reft með hvalbeinum. Grátt húsaskúm hékk úr tróðinni. Steinmóður sat klofvega á sauðnum, greiddi ullina frá barkanum, mundaði ryðgaða en bitlega hnífgrélu. „Þú skalt ekki stela,“ urraði hann milli samanbitinna tann- anna, „og afneitaðu ódáminum. Sál hans skrýðist prestshempu á veglegustu dögum ársins, en reikar í sauðargerfi um nætur. Og nú drep ég hann.“ Hann öskraði síðustu orðin, hló tryllingslega og brá hnífn- um. Sauourinn veinaöi, spyrnti í bóndin; það stríkkaði á hverjum vöðva, krampakenndar hreyf- ingar í fjörbrotum. Dauðastríð- ið var stutt. Volgur, kæfandi þefur steig upp af blóðinu. Steinmóði varð flökurt, ber- serksgangurinn rann af honum, hann reikaði frá blóðbælinu, kúgaðist, maginn gerði upp- reisn, kaldur sviti spratt á enn- inu, gult, gallblandað gulfur rann úr vitum hans. „Guð minn, hvað hef ég gert?“ Steinmóður jafnaði sig, gerði sauðinn til, hafði hraðar hend- ur, fól kjöt og slengi í viðarkesti, en gróf haus og fætur ásamt gærunni uppi í heygarði, máði vandlega út öll merki í kofan- um. Hann var orðinn hrakinn og lémagna, staulaðist inn í eld- húsið, kaldur og kúguppgefinn. Þar brytjaði hann kjöt í pott- inn. Svo tók hann felhelluna úr hlóðunum, skaraði í öskudyngj- una, þandi gúlana og blés, los- aði fölrauða glóðina úr læðingi og reif hríslutanna í eldinn. Og tíminn leið — silaðist á- fram, eins og próventukarl, sem þrjózkast við að deyja. Flyksu- drífa féll inn um strompinn. myndaði fönn á gólfinu framan við eldstæðið. Vatnið kraumaði í pottinum, gufan leitaði út 1 hrákalt andrúmsloftið, mettaði það æsandi matarilmi og hvarf upp í rótina. Með morgninum gekk konan í eldhúsið. Hún var úttauguð eftir erfiða andvökunótt, þefaði og skimaði, eins og hvimpið dýr. „Hvað ertu að gera, maður?“ Steinmóður lyfti höfðinu, starði á hana fjarrænum, sting- andi augum. Á andliti hans voru þornaðar blóðdrefjar; skerandi glott lék um bleikrauðar var- irnar. „Ég hef loksins losað mig við dauðýflisháttinn, dró feng í bú- ið, vildi ekki gera guð almátt- ugan að lygara í barnshjörtun- um.“ Hann rétti úr bognu bakinu, einkennilegur, ögrandi glampi blikaði í blóðhlaupnum augum hans. Hann benti til hlóðanna, sagði hás og andstuttur: „Þarna er matur . . . matur til að sefa hungur soltinna barna . . . kjöt og soð frá — guði.“ Svo stóð hann á fætur — var orðinn dofinn af langri setu — riðaði, hló kaldranalega, vafr- aði út í gráan og rysjóttan morg- uninn. IV. Bæjarhrafnarnir voru árla á flökti, sátu á skemmuburstinni, ýfðu blásvartar fjaðrir og krunkuðu stríðnislega til kunn- ingja sinna, hundanna, sem geyjuðu í hlaðvarpanum. Brynjólfur hreppstjóri losaði svefninn. Það var rokkið í svefnhúsi þeirra hjónanna, þétt héla á glugganum; dagsbirtan

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.