Heima er bezt - 01.10.1957, Page 26
SKÁKÞÁTTUH
eftir Friðrik Ólafsson
í síðasta þaétti tókum við til meðferðar eitt af grund-
vallaratriðum skákarinnar, þ. e. mátsetningu með hrók.
Við athugun kom fljótlega í ljós, að hrókurinn var ekki
einfær um þetta, en með aðstoð Hans hátignar sóttist
verkið bæði vel og auðveldlega. Hvíti kóngurinn leit-
aði einungis andspænis við hinn svarta kollega sinn og
rak hann síðan út á jaðarinn með aðstoð hróksins.
Ég tel nú ekki þörf á að kenna mátsetningu með
drottningu, því að hún er háð hinum sömu lögmálum
og drepið er á hér að framan. Næsta viðfangsefni okkar
er þá biskuparnir tveir, og ættu þeir heldur ekki að reyn-
ast okkur erfiðir viðureignar. Við stillum nú fómar-
dýrinu, svarta kónginum, í einhverja hagkvæma stöðu
og sjáum síðan, hvaða brögðum andstæðingurinn beitir
við tortímingu hans.
1. Kb2 (sameinaðir ráða biskuparnir yfir öllum lín-
um á borðinu, en þeir eru hjálparvana án kóngsins).
1. —Kd. 2. Bc2,—Ke3. 3. Kc3 (smám saman þrengist
hringurinn um svarta kónginn. Vandinn er allur sá, að
hrekja hann inn í eitt hinna fjögurra horna, og eru þá
dagar hans taldir). 3. —Kf3. 4. Kd4—Kg4. 5. Bel—Kf3.
6. Bd3 (gæta verður þess vel, að kóngurinn fái hvergi
glufu). 6. —Kf4. 7. Be4 (og enn þrengist hringurinn).
7. — Kg5. 8. Ke5—Kg4. 9. Bf2 (allt tekur þetta sinn tíma,
en „þolinmæði þrautir vinnur allar“). 9. — Kg5. 10. Bf5
S VART
A 6 c 0 «
a»co* * a m
H V í T T
Stöðumynd I.
—Kh6 (nú er kóngurinn kominn út á jaðarinn, og á þá
einungis eftir að reka hann upp í hom). 11. Kf6—Kh5.
12. Be6-Kh6. 13. Bg4-Kh7. 14. Kf7-Kh6. 15. Be3t-
Kh7, og nú kemur mátið í öðrum leik.
í næsta þætti fer málið heldur að vandast, því að þá
ber okkur niður á biskup og riddara. Riddarinn, þessi
stuttfótur, er ekki jafn skrefalangur og samverkattiaður
hans, biskupinn, og hefur þetta ýmsa erfiðleika í för
með sér. En við gerum okkur ekki neinar grillur út af
þessu að sinni og látum áhyggjurnar bíða næsta þáttar.
Fr. Ól.
HEILABROT
eftir Xophonias Pétursson
1. Kona nokkur seldi grannkonu sinni helming eggja
þeirra, er hún átti, og hálft egg betur. Síðan seldi hún
annarri konu helminginn af því, sem hún átti þá eftir,
og hálft egg betur. I þriðja sinni gerði hún enn sömu
verzlun, og þá átti hún aðeins 3 egg eftir. Ekkert egg
skar hún í sundur.
Hve mörg egg átti hún upphaflega?
2. Tveir ferðamenn voru setztir niður til að matast.
Bar þá að hinn þriðja, er bað þá að selja sér mat. Sig-
urður átti 5 kökur en Ásgeir 3. Þeir átu allir þrír jafnt
af þessum 8 kökum. Að skilnaði lagði aðkomumaðurinn
8 skildinga á stein og bað þá að skipta þeim rétt milli
sín. Sigurður vildi þá taka 5 skildinga en láta Ásgeir
hafa 3, eftir því, hve margar kökur hver átti, en Ásgeir
áleit, að peningarnir yrðu að skiptast, af því að allir
hefðu etið jafn mikið. Hinn aðkomni maður mælti þá:
„Sigurður á að fá 7 skildinga en Ásgeir 1 skilding.“
Var það rétt?
3. Orðhvatur maður spurði eitt sinn í veizlu þann,
er næstur honum sat: „Hve gamall ert þú, faðir þinn
og afi þinn?“ Þeim, sem spurður var, þótti spurningin
óþörf og svaraði henni þannig: „Það er vel hægt að
reikna út. Við feðgarnir eru til samans 54 ára, faðir
minn og afi eru 109 ára, og afi minn og ég erum 85 ára.“
Hve gamall var hver þeirra?
Úr Þórarinsbókinni, útg. 1874.
346 Heima er bezt