Heima er bezt - 01.01.1958, Qupperneq 24
HVAÐ UNGUR NEMUR - ÞÁTTUR
RITSTJÓRI: ÆSKUNNAR
STEFÁN JÓNSSON -----------------------------------------------
NÁMSTJÓRI
AKUREYRI
Skólar og skógargróður.
akureyri er, eins og allir vita, höfuðstaður
/\ Norðurlands. Þessi kaupstaður er fagurlega
/ settur við botn Eyjafjarðar. Húsin standa á
tveimur eyrum, Akureyri og Oddeyri, og í
bröttum brekkum upp af eyrunum. Eru þær brekkur
sums staðar svo brattar og háar, að þær væru kallaðar
fjallaheiðar í Danmörku. Af Vaðlaheiði er Akureyri
fegurst, einkum um lágnættið um sumarsólstöður, er
sól gyllir fjöll, en létt þokuslæða hylur hafflötinn. Og
ekki er útsýnin af Vaðlaheiði síðri á kyrrum haust-
kvöldum, þegar Akureyri er skrýdd marglitum Ijósum.
Akureyri er, að mínu áliti, fallegur bær, en það, sem
mesta athygli vekur, er þó gróðurinn í bænum. Fagrir
skrúðgarðar eru þar við flest hús og auk þess stórir
trjágarðar með hávöxnum trjám, svo sem: Gróðrar-
stöðin, Lystigarðurinn og Menntaskólagarðurinn. Kon-
ur í Akureyrarbæ hafa mest unnið að því að koma upp
Lyotigarðinum, en hann er einna fegurstur og stærstur
af slíkum görðum hérlendis. — Þeirra og starfa þeirra
vorður líka minnzt um komandi aldir, því að á minnis-
varða úr steini, sem reistur er í garðinum, er skráð:
Konur gerðu garðinn. Þessi setning er skýr og fáorð,
en að baki þessara fáu orða er löng og merk saga.
Um tvo áratugi annaðist Halldóra Ólafsdóttir skóla-
meistarafrú Menntaskólagarðinn, hlynnti að trjágróðri
Akureyri, séð af Vaðlaheiðarbrún.