Heima er bezt - 01.06.1958, Page 5
Ármann Kr. Einarsson.
upp, — hafa verið gefnar út aftur, — og selzt upp. Enn
er nýrrar bókar í þessum flokki að vænta, auk þess sem
höfundur hefur nýja skáldsögu í smíðum.
Ef skyggnzt skal um eftir skýringu á þeim óvenju-
legu vinsældum, sem barnabækur Armanns eiga að
fagna, getur að vísu ýmislegt komið til greina. Meðal
annars það, að hann er það ungur maður að árum, að
hann getur haslað sögupersónum sínum og atburðum
völl í undraheimum nýtízku tækni, þeim heimi, þar sem
drengir og unglingar dveljast langdvölum í vökudraum-
um sínum. Hann kann vel að byggja upp spennandi frá-
sögn og vekja eftirvæntingu og óvissu, og hann segir frá
á ljósu máli, án tilgerðar og útúrdúra. En fyrst og fremst
er þó þarna um eitt og sama að ræða og jafnan, þegar
sagan hrífur huga barna og unglinga, — höfundi er gef-
inn sá hæfileiki að skrifa fyrir börn. Höfundar geta lært
að skrifa fyrir fullorðna en ekki fyrir börn. Þar verður
það hæfileikinn, náðargáfan, sem úr sker. Og þá gáfu
hefur Ármann Kr. Einarsson hlotið í vöggugjöf í ríkum
mæli.
Sáhtíh
I næstu viku verður sáð,
þá vænkast bóndans starf og ráð.
I góðan akur fellur fræ,
úr fjalli þíða geislar snæ.
1942—47 gerðist hann lögregluþjónn í Reykjavík, en
hóf síðan aftur kennslustörf og starfar nú við Eskihlíð-
arskóla í Reykjavík.
Ritstörfin hafa því verið tómstundavinna hans, eins
og flestra annarra, er við þau hafa fengizt og fást enn
hér á landi. Hann hefur samið jöfnum höndum skáld-
sögur fyrir fullorðna og börn, en þó hneigzt meira að
því að rita fyrir börnin, og auk þess, sem hann er nú
kunnasti barnabókahöfundur okkar, hafa sögur hans
verið þýddar á norsku og hlotið hina beztu dóma, en í
undirbúningi er útgáfa þeirra á fleiri málum.
Fyrsta bók Ármanns, smásagnasafnið „Vonir“, kom
út árið 1934, en því næst þrjár ævintýrabækur, „Margt
býr í fjöllunum“ 1937, „Höllin bak við hamrana“ 1939,
„Gullroðin ský“ 1940. Árið 1943 kom út eftir hann
skáldsagan „Saga Jónmundar í Geisladal", og hlaut hún
góða dóma, og framhald hennar, „Ung er jörðin“, 1948,
þó enn betri. „Yfir fjöllin fagurblá“, sögur og ævintýri,
kom út 1945, og skáldsagan „Júlínætur“ árið 1951.
Með útkomu barnabókarinnar „Falinn fjársjóður“
hefst eiginlega nýr áfangi á höfundarferli Ármanns.
Þessi bók kom út árið 1953 og hlaut einstaklega góðar
viðtökur. Framhald þeirrar sögu, „Týnda flugvélin“,
kom út árið eftir, og síðan hefur ein bók í þessum flokki
komið út á ári hverju, „Flugferðin til Englands“ 1955,
„Undraflugvélin“ 1956, og loks „Leitarflugið“ 1957.
Með hverri nýrri sögu í þessum flokki hafa vinsæld-
irnar aukizt, og enda þótt þær séu nú gefnar út í stærra
upplagi en tíðkast um bamabækur, seljast þær fljótt
í garði sprettur gróðurnál,
og gleði fer um hjarta og sál,
við lóusöng og lækjanið
þér lífið býður starf og frið.
Við sólskin, vor og sunnanátt
nú sækir fram og lítur hátt
sú æskuhressa, unga sveit,
er óðalsrétt og skyldur veit.
Hún græðir örugg gróðurvöll,
í grýttu holti plantar þöll,
um föðurtúnin fléttar grön
og fer að öllu snjöll og vön.
En heima vantar víða trú.
Ég vann of lítið, einnig þú.
Þar skortir trúarbrögð og bæn,
er blessuð jörðin verður græn.
Að vekja slíka verkatrú,
því veldur hvorki ég né þú.
Til slíks þarf stærri, meiri mann,
við mættum biðja Guð um hann.
13. apr. 1958.
Árni G. Eylands.
Heima er bezt 187