Heima er bezt - 01.04.1964, Qupperneq 25
dóttir, húsfreyja í Víðihlíð við Mývatn. Þótti okkur
mikill fengur að fá hana hingað vestur. Skýrði hún okk-
ur frá ýmiss konar félagsmálum þingeyskra kvenna, m.
a. hvernig konur þar í sveit haga sínum orlofum, en
Hólmfríður er formaður orlofsnefndar austur þar.
Eftir að Hólmfríður hafði kvatt okkur 02: haldið
austur á bóginn, var ég ekki lengur í vafa um, að hyggi-
legt væri að héruðin skiptust á heimsóknum, þegar
stofnað er til orlofs, en það hafði mér áður dottið í
hug. Yrði það ekki til að auka kynni og vinarþel milli
byggðarlaga? Og þá væri ekki til einskis barizt.
H.Á.S.
ELDHÚSÞÁTTUR
Þegar snjór er yfir öllu, svell á götum, ef til vill skaf-
renningur og næðingur með frosti og fjúki, er fátt
meira hressandi að fá til matar en vænan disk af sjóð-
heitri ilmandi, heimatilbúinni súpu. Kjötsúpa með kjöti
og nógu grænmeti er holl og nærandi fæða og sama er
að segja um baunir með saltkjöti og gulrófum. — En
hvernig væri að breyta til og tilreiða kjöt- og grænmet-
issúpuna á fleiri vegu.
Af beinum má fá gott kjötsoð.
Hér fara á eftir nokkrar uppskriftir af súpu úr efni,
sem við eigum völ á nú á þessum árstíma:
BEINASOÐ.
1 kg bein, smátt höggvin
2 1 vatn
2 ts. salt.
Þvoið beinin og setjið þau yfir til suðu í kalt saltvatn.
Látið suðuna koma upp mjög hægt, því að þá dragast
næringar- og bragðefnin betur úr þeim út í soðið. Um
leið og suðan kemur upp er froðan veidd vandlega of-
an af. Leggið hlemm á pottinn og látið beinin sjóða við
hægan hita um það bil 2 klst. Síið soðið og kælið það
fljótt. — Geymist á köldum stað.
GULRÓFUSÚPA.
1 1 kjötsoð
1 1 mjólk
200 g gulrófur
150 g kartöflur
Va lítill laukur
30 g smjörlíki
25 g hveiti (2V2 ms.)
Salt
Pipar
1 ms. söxuð steinselja.
Sjóðið sneiddar gulrófurnar og kartöflurnar í kjöt-
soðinu og þrýstið þeim gegnum sigti. Bætið mjólkinni
út í, sjóðið og jafnið súpuna. Steinseljan bætir súpuna.
Hún er bragðgóð og C-vitaminrík, en ófáanleg á þess-
um tíma árs, nema við höfum verið svo forsjálar að
djúpfrysta hana eða þurrka á sl. hausti.
GRÆNERTUSÚPA.
200 g þurrkaðar grænertur eða 1 dós niðursoðnar
2 1 kjötsoð Salt
30 g smjörlíki Pipar
30 g hveiti 1—1 y2 dl rjómi.
Sjóðið erturnar og þrýstið þeim gegnum sigti. Bland-
ið maukinu saman við kjötsoðið og jafnið súpuna með
smjöri og hveiti. Salt og pipar eftir smekk. Væn skeið
af þeyttum rjóma á hvern disk.
KÁLSÚPA.
2 1 vatn
450 g feitt saltkjöt, skorið niður í mjög litla bita
300 g kartöflur
V2 hvítkálshöfuð (lítið)
Pipar á hnífsoddi.
Sjóðið saltkjötið og þegar það er að verða soðið, bæt-
ið þá kartöflunum í sneiðum og kálinu í smábitum út í.
Smurt brauð með osti er gott að hafa með.
OSTSÚPA.
40 g smjörlíki 50 g makkarónur
40 g hveiti 50 g rifinn ostur.
2 1 kjötsoð
Búið til jafnaða súpu og látið út í hana soðnar makka-
rónur og rifinn ost (ostafganga, rifna með grænmetis-
járninu).
FRÖNSK LAUKSÚPA.
1 1 vatn 3 laukar
1 1 mjólk iy2 ts. salt
2 ms. smjörlíki 2 ms. hveiti.
Sneiðið laukinn og látið hann sjóða í smjörlíki um
stund, en ekki brúnast. Bætið hveitinu út í og vökva og
salti og sjóðið súpuna við hægan hita í minnst V2 klst.
BRÚN KÁLSÚPA.
2 1 kjötsoð
300 g hvítkál
150 g gulrætur
40 g sykur
25 g smjörlíki
Salt.
Hitið soðið. Skerið kálið og gulræturnar í mjóar ræm-
ur og brúnið það í sykri og smjöri á pönnu. Sjóðið það
í kjötsoðinu í 15 mín. Salt eftir smekk.
Með öllum þessum súpurn má hafa smurt brauð með
osti og er það fullgild máltíð.
K.
Heima er bezt 157