Heima er bezt - 01.11.1964, Side 2

Heima er bezt - 01.11.1964, Side 2
Siraumhvörf í menntamálum Vér lifum á öld breytinga og byltinga. Hvar sem vér litumst um, er heimurinn á fleygiferð. Þjóðlíf vort og þjóðfélag er allt annað en það var fyrir einum áratug, að ég ekki tali um aldarfjórðungi eða hálfri öld. Vér gerum oss þess breytingar ljósar á sumum sviðum en öðrum ekki. Þannig verður oss löngum að sníða kennslu og skólakerfi vort eftir því, sem vel hentaði í byrjun þessarar aldar. Eitt megineinkenni nútímans er vélvæðing. Vér höf- um leitast við að fylgjast þar með kapphlaupi tímans eftir því sem efni stóðu til, þótt margt vanti að vísu enn. Miskunnarlaus nauðsyn lífsbaráttunnar hefir knúið oss til þess. Vígorð samtíðarinnar er aukin framleiðsla. En hún er því aðeins kleif, að aukin sé tækni og vélvæðing. Á örskömmum tíma hefir þjóðfélag vort breyzt úr vél- vana, tækjasnauðu bændaþjóðfélagi í vélvætt iðnaðar- samfélag, skiptir þar ekki máli, hvort vélunum er beitt í verksmiðjum, veiðiskipum eða til jarðyrkju, um leið hefir þungamiðja fólksfjöldans fluttzt úr sveit að sjávar- síðunni. Samtímis höfum vér meira og meira horfið frá rányrkju til ræktunar. En allar þessar breytingar hafa fært oss heim sanninn um það, að þörf er aukinnar kunnáttu við sérhvert starf, ekki einungis til þess að vinna starfið eins og það kemur fyrir daglega, heldur einnig undirstöðuþekking á lögmálum náttúrunnar. Og þetta er ekkert sérkenni á oss íslendingum, þótt breyt- ingin sé ef til vill hraðari hér en víðast annars staðar. Svipuð saga gerist um heim allan, og alls staðar er hróp- að á meiri kunnáttu og nýja kunnáttu. Mannkynið á í miskunnarlausu kapphlaupi við hung- urvofuna. Og svo er fyrir að þakka auknum samskipt- um mannanna, að hungursneyð í einu landi er ekki leng- ur einkamál þeirrar þjóðar, heldur mannkynsins alls, ef svo mætti segja. Allar þjóðir hljóta því að taka þátt í kapphlaupinu um að afla meiri matvæla, þótt skortur- inn knýi ekki á dyr þeirra, alltaf eru einhverjir til, sem þjást af skorti. Hið eina, sem gefur mönnunum von um að sigra í þessu kapphlaupi er aukin þekking þeirra á því, hversu hagnýta megi gæði jarðarinnar, og hve miklu af efnaforða hennar megi á hverjum tíma breyta í mat og aðrar lífsnauðsynjar vor mannanna, án þess þó að rýrður verði höfuðstóll náttúrunnar sjálfrar. Reynsla liðinna alda hefir sýnt það áþreifanlega, að rányrkja í hverri mynd sem er, hlýtur fyrr eða síðar að vísa hung- urv nunni heim að húsdyrunum. Á öðru leitinu er svo keppni stórþjóðanna um heims- yfirráðin. Þótt vér höfum enga samúð með slíkri keppni er hún engu að síður staðreynd, og jafnvíst er það, að sigurinn í þeirri keppni, er ekki lengur kominn undir hreysti og hetjuskap þjálfaðra hermanna, heldur hvílir hann á starfsemi kyrrlátra vísindamanna, sem beita þekk- ingu sinni og hugviti til smíða á vígvélum til sóknar og varnar. Og þótt það virðist þversögn, er slík vígvéla- smíði lífsnauðsyn, svo lengi sem mönnunum lærist ekki að halda friði um alla jörð. Með öðrum orðum, hvar sem vér skyggnumst um, er hvarvetna hrópað á meiri þekkingu, meiri kunnáttu. Og þekking sú, sem krafizt er, er öll á raunvísinda- sviðinu. Það nægir manninum ekld lengur að rýna úr sér augun á máðum stafkrókum á skorpnuðu bókfelli, þylja Hómerskvæði eða pæla gegnum latneska höfunda á frummálinu, þótt það allt geti verið skemmtilegt og vænlegt til andlegrar leikfimi, ef svo mætti að orði kveða. Lífsbaráttan, sjálf tilvera mannkynsins á jörð vorri krefst annarra hluta. Hún krefst fremur öllu öðru þekkingar á náttúrunni sjálfri og lögmálum hennar, jafnt lifandi vera og dauðra hluta. Án þeirrar þekkingar fáum vér menn ekki séð oss farborða. Þegar hér er rætt um raunvísindi er átt við öll þau fræði, sem snúast um efnisheim þann er vér hrærumst í. Líffræði, eðlis- og efnafræði og jarðfræði í víðtækustu merkingu þeirra orða. Stærðfræðin reynist nauðsynlegt hjálpartæki til þess að öðlast skilning á þessum fræðum og rekja þau að innstu rótum og hagnýta sér þau. Lækn- is og heilsufræði eru greinar líffræðinnar, studdar eðlis- on efnafræði. Vélfræði 05 tæknivísindi hvíla á eðlis- fræði og stærðfræði. Undirstöðuþekking einstakra at- vinnugreina verða alls staðar sótt til raunvísindanna. Gildir þar einu, hvort vér fáumst við ræktun jarðarinn- ar, sækjum afla í sjávardjúp eða stundum iðnað í þrengri merkingu þess orðs. Alls staðar verða hin svonefndu raunvísindi grundvöllurinn, sem starf vort hlýtur að hvíla á, ef það á ekki að vera í lausu lofti reist. Van- þekkingin hlýtur að hefna sín fyrr eða síðar, enda þótt vér getum baslast eitthvað áleiðis í fyrstu. Þetta eru stað- reyndir, sem vér ekki megum gleyma og verðum að taka tillit til í þjóðaruppeldi voru og fræðslumálum yfir- leitt. Vér megum ekki láta það villa oss sýn, að feður vorir og afar komust af án þessarar þekkingar. Frum- stæðir atvinnuvegir þeirra kröfðust ekki langs skóla- lærdóms, enda var hann ekki fáanlegur. En hið marg- slungna, vélvædda þjóðfélag nútímans fær ekki skotið sér undan lærdómnum. 386 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.