Heima er bezt - 01.11.1964, Blaðsíða 9
Laxamýri.
orðið næsta tímafrek og kallað mann á stundum frá bú-
sýslu og öðrum heimastörfum. Flest þeirra hafa verið
unnin að meira eða minna í kyrrþey og án endurgjalds.
Jú, ég hef eftir fremsta megni unnið að almennum fram-
faramálum bæði fyrir hrepps- og sýslufélagið, auk þess
hef ég látið kirkjumál mig miklu sldpta.
— Segðu mér eitt að síðustu Jón Þorbergsson! Þú ert
kominn á níræðisaldur og átt meiri og umsvifaríkari
starfsferil að baki, en flestir aðrir bændur þessa lands.
Langar þig ekki til að setjast í helgan stein og hvíla þig
eftir erfiði og áhyggjur áranna?
— Hvíla mig. Sagðirðu það? Nei, það veit hamingjan
að hvíld er mér það sama og dauði. Á meðan ég get
staðið á fætur og hreyft munnvikin vil ég halda áfram
að starfa, halda áfram að vinna að hugðarefnum mínum,
halda áfram að vinna ættjörðinni gagn. Ég nenni ekki að
vera aðcjerðarlaus.
Og svo þú haldir ekki að ég sé seztur í helgan stein
eins og farlama gamalmenni langar mig að segja þér
hvað ég hef gert á yfirstandandi ári, starfað að hugðar-
efnum mínum fyrir utan búsýslustörfin sjálf.
Það er í fyrsta lagi það, að ég hef lagt mikla vinnu í
samanburð á nytjum sauðfjárbúskapar og mjólkurfram-
leiðslu. Tilefnið var það að Kaupfélag Suður-Þingey-
inga hefur undanfarið átt í erfiðleikum vegna lítt seljan-
legra mjólkurafurða, sem safnast hafa upp hjá félaginu.
Ég vakti máls á þessu á aðalfundi Kaupfélags S. Þ. í ár.
Það varð til þess að kosin var nefnd til að gera tillögur
um úrbætur og ég var kosinn formaður hennar. Af sama
tilefni hef ég skrifað grein um þetta mál í búnaðarblaðið
Frey og hefur hún birzt í tveim tölublöðum ritsins í
sumar.
í öðru lagi hef ég látið áburðarmálin mikið til mín
taka upp á síðkastið. Mér finnast þau vera í ólestri víða
hjá bændum og hef áður sent erindi til Búnaðarþings um
að það hlutizt til um rannsókn á gæði töðunnar eftir
áburðartegundum sem notaðar eru hverju sinni. í ár
mætti ég svo á búnaðarsambandsþingi í Suður-Þingeyj-
arsýslu og fékk því til vegar komið að sambandið eða
sambandsstjórnin tók málið þar upp.
Og í þriðja lagi má geta þess í sambandi við afskipti
mín af búnaðarmálum, þá hélt ég í sumar bændaræðu á
svokölluðum bændadegi að Laugum, þar sem ég ræddi
aðstöðu landbúnaðarins og hagsmunamál bænda í heild.
f sambandi við þetta má geta þess að ég átti frumkvæðið
að bændadeginum í heimasýslu minni, sá fyrsti var hald-
inn að Laugum 1948 og síðan árlega. Nú eru tilsvarandi
bændadagar að komast á um allt land.
(Framhald á bls. 396.)
Heima er bezt 393