Heima er bezt - 01.11.1964, Qupperneq 13

Heima er bezt - 01.11.1964, Qupperneq 13
STEINDOR STEINDORSSON FRA HLOÐUM: Bœk ur og myn i. egar vér lítum til allra þeirra myndskreyttu blaða og bóka, sem daglega berast oss í hendur, fer varla hjá því, að oss verði hugsað til þess tíma, þegar naumast sást mynd í íslenzkri bók, nema ef til vill fáeinar skýringarmyndir í kennslubók eða mynd af skáldi framan við ljóðabók þess. Þannig var það á fyrstu tugum þessarar aldar, og segja má, að fyrst á 4. og 5. tug aldarinnar taki myndir að gerast algeng- ar í bókum hér á landi, þótt yfir hafi tekið hin síðustu árin. Oss, sem ólumst upp í aldarbyrjun og tókum mynd- um í lesmáli með eftirvæntingu og fögnuði, mundi vart hafa dreymt, að vér ættum eftir að lifa það, að verða næstum því ofþreyttir á myndum í bókum og blöðum, eins og nú er raunar títt. Myndirnar eru meiri að fyrir- ferð en lesmálið, og dagblöðin eru meira að segja tekin að flytja heilar myndasíður. En þetta er eitt af táknum tímans. Eitt af því ótalmarga, sem skapar hinn geysi- lega mun á fortíð og nútíð. í greinarkorni þessu verður stiklað á nokkrum stærstu steinunum í sögu myndagerðar í íslenzkum bókum. Mörgu er vitanlega sleppt, bæði af því, að hér er aðeins um stutta upprifjun að ræða en ekki bókfræðilega rann- sókn, og eins því, að svo margar bækur, sem þurft hefði til nákvæmrar greinargerðar, eru mér ekki tiltækar. ELZTA MYNDSKREYTINGIN Það er kunnugt, að mörg fornhandrita vorra eru myndskreytt, oft af miklum hagleik og kunnáttu. Ekki sízt var mikil vinna og list oft lögð í skreytingu upp- hafsstafa, enda þótt íslenzk handrit standi þar að baki þeim handritum fornum, sem skrautlegust eru talin, t. d. sumum írsku handritunum. Þegar prentlistin hófst voru hinar prentuðu bækur í fyrstu að nokkru eftirlíking handritanna. Verður því ekki neitað, að margar hinna elztu prentuðu bóka voru stórum listrænni að allri ytri gerð en síðar varð, og á það ekki síður við hér á landi en annars staðar. Elztu bækurnar, sem vér vitum um, að prentaðar hafi verið á íslenzku, Nýja testamentis þýðing Odds Gott- skálkssonar 1540 og Corvínus Postilla 1546, voru báðar prentaðar erlendis. Titilblöð beggja eru skreytt með myndaumgj örð, eins og þá tíðkaðist mjög, en auk þess eru fjórar myndir í texta postillunnar, og er hún þannig fyrsta myndskreytta bók, sem prentuð hefur verið á íslenzku. Ekkert vitum vér nú um bækur þær, sem kunna að hafa verið prentaðar í prentsmiðju Jóns Arasonar á Breiðabólsstað, hvort í þeim hafi verið myndir, en frem- ur má það teljast ólíklegt, því að sennilega hefur sú prentsmiðja verið fremur fátækleg að öllum búnaði, og bera elztu Hólabækurnar vitni þess, en sennilega eru þær prentaðar með tækjum hennar, þótt eitthvað kunni Titilblað af Passio 1559. Heima er bezt 397

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.