Heima er bezt - 01.11.1964, Page 34

Heima er bezt - 01.11.1964, Page 34
Skólahúsið að Reykholti. ið, rétti upp þrjá fingur og benti svo á eldinn í vindl- ingnum. Við skildum strax, að þrír félagar hans hefðu hrapað með flugvélinni og farizt í eldinum. Síðan þok- uðumst við af stað á leið niður á þjóðveginn. Ég sá strax, að við yrðum seint komnir heim, ef við gætum ekki farið hraðara en þetta. Ég fór úr skónum og benti hon- um að fara í þá. Þegar hann tók húfupottlokið af fæt- inum, sá ég að hann var sár á fætinum. Svo lögðum við af stað í annað sinn og gekk þá ailt miklu betur. Við héldum svona áfram um stund og gengum sitt hvorum megin við flugmanninn. Allt í einu greip hann urn úln- liðinn á mér og ætlaði að gæta að hvað klukkan væri. Bróðir minn hafði úr og var klukkan þá orðin þrjú. Hann leit þá á sína klukku og var hún þá fimm. Datt mér þá í hug að þetta væri þýzka tímatalið og væri þetta þýzkur flugmaður. Ég spurði hann, hvort hann væri „Gennany“ og virtist hann samþykkja það. Því næst spurði ég hann, hvað hann væri gamall og renndi hann þá frá sér rennilásnum og dró upp vegabréf og sáum við þá, að hann var með þýzka járnkrossinn og fleiri merki, sem við þekktum ekki. í vegabréfinu var mynd af honuin og ýmislegt, sem við gátum ekki lesið. En við sáum að hann var fæddur 1921 og var því 22 ára. Við héldum svo enn áfram. Ég sagði að þetta væri ísland og við værunt íslendingar. Hann skildi það. Hann benti niður fvrir sig og sagði: „Reykjavík“ 0g SVO sagði hann: „Lightmgu, og benti á töskuna, sem bróðir rninn hélt á, en það var fallhlíf. Hann hafði flogið yfir Reykjavík, en var skotinn niður af tveimur amerískum flugvélum, en komst út í fallhlíf. Ég sagði að Ameríkumenn væru góðir rnenn til þess að hann yrði ekki hræddur, þegar hann hitti þá. Hann var þyrstur og drakk tvisvar úr pollum á klöppunum. Við fórum þar sem stytst var niður á þjóðveginn. Þegar við áttum eftir svo sem 60— 70 metra, kom amerískur herbíll. Þá sagði hann mér að veifa hvíta flagginu, sem ég hélt á. Hann sagði mér einnig að veifa því, þegar flugvélar fóru að sveima yfir okkur og komu allnærri okkur. Þegar við vorum komn- ir rétt niður á veginn, kom annar bíll, lítill og stoppaði hjá okkur. Ut úr honum kom sver og feitur maður og beið eftir að við kæmum. Sá þýzki rétti upp báðar hend- urnar, en þá kom mikið fát á Ameríkann og hann varð eitt blóðstykki í framan. Hann þreif svo upp skamrn- byssuna sína og miðaði henni á okkur. Flugmaðurinn þýzki var alveg rólegur, og benti honum á að taka sína skammbyssu, sem hékk við belti hans og var það gert. Því næst tók hann passa flugmannsins og lítinn hníf, sem hann var með. Þjóðverjinn fór síðan úr skónum og þakkaði mér fyrir lánið með handabandi. Flugmaður- inn settist síðan upp í bílinn við hliðina á bílstjóranum, en Ameríkaninn fór í sætið fyrir aftan hann og sýndist mér hann setja skot í skammbyssuna sína. Hann lét okk- ur síðan skrifa nafn okkar og heimilisfang og settist síðan aftur í aftursætið fyrir aftan bílstjórann og fang- ann. Hann kvaddi okkur með handabandi og svo óku þeir af stað til Reykjavíkur. Mörgum dögum seinna kom mynd af flugmanninum í Morgunblaðinu, og var þar sagt, að hann hefði særzít á hægri handlegg og feng- ið skrámur hingað og þangað, og væri hann fyrsti þýzki stríðsfanginn á íslandi. Flugvélin var Junker 88, tveggja hreyfla og eyðilagð- ist hún gersamlega.“ Þegar litið er yfir ritgerðir í skólablaðinu Alími frá ýmsum árum, kemur það í Ijós, að nemendur hafa haft gaman af að bollaleggja um það, hvernig þeir vildu hafa væntanlegt mannsefni eða konuefni. Hér birtast tvær ritgerðir sem sýnishorn af þessum ritsmíðum. Sú fyrri heitir: Hvernig ég vil hafa mann- inn minn. Hin síðari heitir: Hvernig ég vil EKKI hafa konuna mína. HVERNIG ÉG VIL HAFA MANNINN MINN. „Síðan ég fór að vitkast, hef ég verið að velta því vandamáli fyrir mér, hvernig mann ég vildi helzt. Mér finnst það harla erfitt og enn hef ég ekki fundið þann rétta, og ég veit að það verður ekki á næstunni. Auð- vitað vil ég hafa hann búinn öllum beztu kostum, sem einn mann má prýða, en ekki ætla ég að telja þá alla upp hér. Ég læt mér nægja það helzta. I fyrsta lagi verð- ur hann að vera vel vaxinn, hár, grannur, herðabreiður og miðmjór. Ekki hjólbeinóttur. Hann á að hafa góðar hreyfingar og bera höfuðið hátt, en láta ekki hökuna nema við bringu. Hann á að vera dökkhærður, dökkur á brún og með dökk augu, — með ásjálegan munn og nefið vel lagað. Eyrun mega ekki vera stór. Axlaslapp- an og vambsíðan vil ég ekki hafa hann. Ö O 418 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.