Heima er bezt - 01.10.1967, Page 6

Heima er bezt - 01.10.1967, Page 6
margar, því að barnahópurinn varð stór, alls urðu böm- in 13, sex stúlkur og sjö drengir, þar af voru fimm al- systkini af fyrra hjónabandi Ingvars. Ingvar á Skipum mun hafa verið óvenjulega knár maður, hagur á tré og járn, vel verki farinn til sjós og lands. Hann stundaði landbúnað og sjósókn, for- mennsku, jöfnum höndum, sjósóknina frá Skipum og Stokkseyri. Enginn bjó betur upp á heylest én hann, enda sátu baggamir vel þó langt væru sóttir, og enginn stjórnaði betur bátskel á brimsundi en hann. í formanna- vísum þeirra tíma segir skáldið um Ingvar á Skipum: Ösla fríðan öldujó Ingvar sniðugt lætur Skipum frá um skerjakór skatna meður sinnisrór. Ingvar hélt jafnan úti bátum frá Skipum haust og vor. Þetta var sex manna far og hét Blíðfari. Róðrarnir voru stundaðir fast ef fiskur var, oft róið tvisvar til þrisvar á dag. Veiðarfærið var lína, beitt öðuskel og kræklingi. Það kom því í hlut húsfreyjunnar og barnanna að verulegu leyti, langtímum saman, að annast um voryrkj- ur og sjá um landbúskapinn. Þar með að afla eldiviðar, sem aðallega var þang, sjá um sauðburð, hirða um æðar- varp og stunda silungsveiði, sem að vísu var ekki mikil, hyggja að selanetum í fjörunni og smala kvíaám. Við þessi störf undi Jón á Skipum vetur og sumar, til tíu ára aldurs, en þá hófst barnaskólaskyldan. Barna- skólanám Jóns stóð í fjóra vetur. Skólastjóri þau ár á Stokkseyri var Sigurður Heiðdal, en með honum störf- uðu þeir góðu kennarar Jónas Jósteinsson og Helga Þor- gilsdóttir. Sóknarpresturinn, séra Gísli Skúlason á Stóra- Hrauni, uppfræddi Jón í kristnum dómi og fermdi hann. Mikið dálæti höfðu Skipasystkinin á að taka á móti bátnum í lendingu, og fast sóttu þeir Jón og Gísli bróð- ir hans að fá að „sitja í“ eins og það var kallað. En seint þótti þeim sækjast að fá þá ósk uppfyllta. Gamansamur háseti á Blíðfara, Guðjón bóndi á Leiðólfsstöðum, sagði þeim að það gæti ekki orðið fyrr en baðstofuþilið á Skipum yrði svo heitt af sólinni, að þeir brenndu fing- urna við að snerta það. Loks kom þó að því að þilið varð nógu heitt, og alveg óvænt ákvað faðir þeirra að þeir skyldu fá að fljóta með, og án þess að drengirnir vissu, lét hann beita línu- stubb, sem þeir áttu að eiga aflann af. Ýmislegt úr þessari fyrstu sjóferð er Jóni á Skipum minnisstætt enn í dag, hún varð honum opinberun, sem alla tíð síðan hefur haft áhrif á hann, einkum samfélags- andinn á þessari litlu bátskel og virðulegur og æðrulaus trúarstyrkurinn til almættisins. Endurminningar um ýmislegt frá bernsku til fermingar. Fyrstu endurminningar Jóns á Skipum eru tengdar móður hans, grannvaxinni fríðri konu, sem oft var sár- þjáð, en hún lézt úr krabbameini árið 1916, þegar Jón var fjögra ára gamall. Ekki mun hann hafa skilið eða hugsað út í ástæður hennar, heldur gengið eftir umönn- un hennar og móðurhlýju, og fengið það sem hann þráði. Skýrast er honum líklega í minni frá fyrstu ævi- árunum, að kominn var í bæinn ókunnur gestur, digur og mikill karl, sem sló um sig nóg til þess, að piltkorn- inu þótti sér bezt borgið uppi í fangi móður sinnar, sem veitti honum vernd. Þar var kominn Símon Dalaskáld, hávær og kveðandi af munni fram vísur ófáar um heimilisfólkið og hvað eina sem fyrir bar, sumar ekki úr minni dottnar enn, þó að skáldskapargildið sé lítið. Þá er Jóni og mjög ríkt í minni fráfall móður sinnar. Hún var í samráði við eiginmann sinn búin að velja og Iítírn Skipa-hjónanna, Ingigerðar og Jóns: Gisli Vilhjálmur, Ragnheiður og Móeiður 342 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.