Heima er bezt - 01.10.1967, Blaðsíða 10

Heima er bezt - 01.10.1967, Blaðsíða 10
Kýrnar reknar í haga að loknum kvöldmjöltum. íslenzkur landbúnaður séður frá bæjardyrum Jóns í Skipum. Um þetta efni gef ég Jóni Ingvarssyni sjálfum orðið. Hann segir: „Það fer ekki milli mála, að þeirri stefnu meðal ís- lenzkra stjórnmálamanna hefur aukizt fylgi síðustu ár- in, að vafasamt megi teljast, hvort nokkurri átt nái frá þjóðhagslegu sjónarmiði séð að vera að braska við land- búnaðarframleiðslu í þessu kalda og harðbýla landi. Það borgi sig ekki að breyta fjallagróðri í dilkakjöt, og að fóstru mannkynsins eigi að útrýma í þessu landi. ís- lenzkar mæður eigi að fá á barnapelann mjólk frá þeim löndum, þar sem það kostar sama og ekki neitt að fram- leiða þessa vöru. Bændurnir, þessi iðjusama og nægju- samasta stétt þjóðfélagsins, sé þjóðinni svo dýr, að þeim eigi að fækka. Tilraun var gerð til þess að láta sunn- lenzka mjólkurframleiðendur vinna kauplaust sumarið 1966. Á því ári fækkaði mjólkurframleiðendum á svæði Mjólkurbús Flóamanna um 50, hefðu áreiðanlega orðið 100, ef peningum bænda hefði ekki verið skilað til þeirra á haustnóttum sama ár. Ég er ekki einn um þá skoðun að álíta að þjóðarsálin myndi við það líða, ef að svo yrði þrengt að landbúnað- inum, að sveitirnar legðust í auðn. Ég er hræddur um að gimsteinarnir á perlubandi fjallkonunnar væru færri, 346 Heima er bezt ef að menn eins og Guðmundur á Sandi og Sigurður á Arnarvatni hefðu verið verksmiðjuþrælar erlendra auð- hringa. Þá hefðu aldrei orðið til listaverk á borð við „Ekkjan við ána“ og „Fjalladrottning móðir mín“. Minnumst orða Halldórs Laxness: „Hann sem var áður afglapinn á torgum er orðinn skáld í Hallormsstaða- skóg“. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi þurfti að eigin sögn að bregða sér upp á Esjuna að lokinni setu á skóla- bekk vetrarlangt og velta sér þar upp úr mosa og mold til að komast í sem nánasta snertingu við ættjörðina, og verða svo það sem allir vita að hann varð: ástsælasta skáld þjóðarinnar. Það er friðsæl kyrrð sveitanna, fegurð öræfanna og tign fjallanna, sem orðið hefur mesti afl- gjafi listamanna okkar. Persónulega er ég bjartsýnn á möguleika okkar á sviði landbúnaðarins. Ég held að þeir sem fóru um hið forna Rangárþing fyrir 30 til 40 árum og sáu allan sand- inn og uppblásturinn, og hyggja svo að því í dag, hvað gerzt hefur, þar sem nú blasa við á sömu svæðum enda- lausir töðuvellir, þeir geti ekki efazt um möguleikana. Því fyrr sem gengið verður milli bols og höfuðs á eyðingarstefnunni gegn bændum og þeirri óþjóðholl- ustu sem þar kemur fram, því betra fyrir íslenzka hags- muni. Eitt með því bezta, sem fram hefur komið með þjóð okkar á seinni árum er útfærsla landhelginnar og upp- græðsla landsins. Og ómi svo í hverri sál og hverju hjarta A

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.