Heima er bezt - 01.10.1967, Qupperneq 33

Heima er bezt - 01.10.1967, Qupperneq 33
einmitt veturinn eftir. Þá áttu fleiri en einn draugur að ganga þarna ljósum logum,“ sagði Einar. „Þú verður eflaust hissa þegar ég segi þér, að það var ég sem stóð fyrir þessum draugagangi, en svo þegar Málfríður var búin að segja vinkonum sín- um frá, og þær sínum vinkonum, og svo koll af kolli, voru sögurnar orðnar anzi mergjaðar og ekki mjög líkar því sem raunverulega gerðist.“ „Ég fer nú að verða forvitinn, ekki hefði ég trúað því á þig, að þú lékir drauga til að hrella fólk.“ „Ég var tilneydd, það var ekkert gamanmál á ferð- inni á Hamri þann vetur. En nú skulum við ekki tala meir um þetta, því ég verð víst að segja þér frá öllu sem gerðist á heimilinu, svo þú fáir forvitninni svalað, en draugagangurinn var snar þáttur í þeirri sögu, sem ég ætla að segja þér í nótt.“ Þau voru nú komin heim að Læk, húsi því sem foreldrar Einars ásamt systkinum hans bjuggu í. Dá- lítill túnblettur var umhverfis húsið, og rann lækur fram með húshliðinni að norðan, og af læknum fékk húsið nafn sitt. Einar bauð Völu inn í herbergi það sem þeir Svan- ur höfðu til umráða, en fór sjálfur fram til að skipta um föt. Vala gekk út að glugganum og horfði út. Spölkorn í burtu hinum megin við lækinn var Holt, þar sem Stebba átti heima. Vala gat ekki annað en brosað, þegar hún sá gluggatjöldin þar dregin ofurlítið frá og stúlkuandlit í glugganum. Stebba lá áreiðanlega á gægjum. Þetta var í fyrsta sinn sem Vala fór að næturlagi heim með Einari, og raunar í fyrsta sinn sem hún kom í þetta hús, svo það var ekki furða, þótt Stebbu þætti betra að missa ekki af neinu, að minnsta kosti hvað klukkan væri, þegar hún færi frá honum aftur. Einar kom brátt aftur og bað Völu að koma með sér og hjálpa sér að taka til í nestiskassann. „Því gleymdi ég nú alveg, að ég þyrfti að borða, ef ég færi með þér á sjóinn á morgun,“ sagði hún. En Einar sagðist bara taka svo ríflega til fyrir sig, að hún gæti líka fengið bita. „Við skulum þá flýta okkur, svo aumingja Stebba geti farið að sofa, því varla vakir hún lengur, þegar hún sér að við förum á bátnum,“ sagði Vala. „Stebba er svo vön að vaka yfir mér, að hún lætur sig ekkert muna um hvern klukkutímann,“ sagði Ein- ar hlæjandi. „Vilja þær allar eiga þig?“ spurði Vala. „Ætli það, þeim þykir bara gaman að vita hvað ég aðhefst, og Stebba er nú svo vel sett, þar sem glugg- arnir okkar standast á, að ég lái henni ekki þótt hún kíki út stöku sinnum.“ Þegar þau gengu niður frá húsinu lyfti Einar hend- inni og veifaði í átt að glugganum hjá Stebbu. Gluggatjaldið var dregið fyrir í skyndi. „Nú hefur hún skammazt sín,“ sagði Vala. „Nei, nei, hún hefur heldur móðgazt,“ svaraði Einar. Svanurinn lá bundinn við litla trébryggju beint niður undan húsinu á Læk. Vala hoppaði út í bátinn, opnaði vélarhúsið og fór að fást við vélina, en Einar leysti landfestar og stjakaði bátnum frá landi. Brátt fór vélin í gang, og báturinn skreið hratt af stað yfir spegilsléttan blágrænan hafflötinn. Það bærðist ei hár á höfði, og allt var hljótt. „Þessir vélaskellir eru eins og lófaklapp í kirkju,“ sagði Einar og gretti sig. „Ég var einmitt að hugsa um, að það væri synd að rjúfa þessa næturkyrrð, það er eins og náttúran haldi anda,“ sagði Vala lágt. Hann lagði handleggina um herðar hennar og þrýsti henni ofurlítið að sér. „Það er eitt sem ég furða mig á, Vala.“ „Og hvað er það?“ „Að þú skulir þora með mér einum í svona ferð. Margt gæti nú skeð.“ „Eins og hvað?“ „Þú bara hæðist að mér.“ „Nei, Einar, því fer fjarri, en það er svo undar- legt, að ég hef aldrei hugsað út í þetta fyrr, mér hef- ur alltaf frá því fyrst ég kynntist þér fundizt, að í návist þinni væri ég algerlega örugg, og það finnst mér enn.“ „Þakka þér fyrir þessi orð, vina mín, en ertu þá ekki ein af þeim sem treystir einum of mikið á ridd- aramennsku okkar karlmannanna, þangað til það er orðið of seint?“ „Ég var að tala um þig, en ekki aðra karlmenn, Einar, sagði Vala alvarlega. Þú veizt að ég hef farið á sjó fyrr með strákunum á Hauganesi, en ég hef aldrei farið ein með þeim, og til eru þeir menn sem' ég þyrði ekki að ganga ein með milli húsa þótt glaða- sólskin væri. Þetta er nú allur kjarkurinn." „Nei, nú trúi ég þér ekki,“ sagði Einar og hneppti jakkanum hennar upp í háls. „Þér má ekki verða kalt, Heima er bezt 369

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.