Heima er bezt - 01.10.1967, Side 34

Heima er bezt - 01.10.1967, Side 34
ég kæri mig ekki um að skila þér kvefaðri aftur í land.“ „Hefurðu færi handa mér?“ spurði Vala. „Hvernig spyrðu. Heldurðu að ég fari á sjó með aðeins eitt færi, jafnvel þó ég sé einn. Hvernig færi þá, ef ég festi í botni og sliti eða renndi því öllu út í ógáti. Annars gerði það ekkert til þótt við hefðum ekkert færi, við spjölluðum þá bara saman.“ „Fari ég á sjó, kann ég betur við að koma heim með fisk í soðið, og Alöngu gömlu þætti skrítið ef ég kæmi tómhent heim.“ Brátt voru þau komin út undir eyjuna. Þetta var há klettaeyja öll grasivaxin, og voru þar margar teg- undir villtra blóma sem ekki sáust í nálægum sveitum í landi. Hæst var eyjan á þeirri hhð sem að þorpinu sneri, eins og hún sneri baki við landinu, en mót suðri breiddi hún út faðminn, og þar var eini staðurinn þar sem hægt var að lenda í hvítalogni og sjólausu, en annars var oft talsverður súgur við eyjuna og ill- lendandi nema fyrir þaulkunnuga sökum skerja og launboða sem ekki sáust fyrr en að þeim var komið. Margur báturinn hafði rennt á grunn á leið sinni fram í eyna, en aldrei hafði þar orðið alvarlegt slys á þessum slóðum. Einar á Læk átti eyjuna og hafði keypt hana af föðurbróður sínum, sem fékk hana í arf eftir föður sinn. Hafði það verið ættarvenja, að elzti sonur erfði eyna, en þar sem þessi föðurbróðir Einars hafði verið ókvæntur og barnlaus, svo eyjan myndi á sínum tíma falla til útarfa, þótti Einari bezt fara á, að hann tryggði sér eyjuna þar sem hann var elzti sonur föð- ur síns. Nú hafði hann reist sér skála á litlum hól þar sem útsýnið var hið fegursta. í þessum hóli átti fornmað- ur að vera heygður, og álösuðu margir Einari fyrir að raska ró haugbúa. En hann svaraði því til, að væri haugbúa ónæði að sambýlinu við sig, gæti hann gert sér aðvart, og myndi hann þá taka óskir hans til greina. En meðan haugbúi sýndi þess engin merki að honum væri samfélag Einars á móti skapi, mundi hann halda áfram að byggja. Einar skrapp því fram i eyju og dútlaði við kofa sinn hverja frjálsa stund sína. Föður hans þótti þetta fyrirtæki stráksins ekki spá góðu. Fyrst eyddi hann öllu sem hann ætti og meiru til í kaup á nytjalausum eyjarskratta, og svo hrófl- aði hann þar upp kofa til þess að þurfa ekki að bjóða stelpunum upp á að liggja úti, þegar hann færi að hafa þær með sér þangað. „Margur heldur mig sig, faðir sæll,“ sagði Einar, þegar karlinn fór að nöldra um axarsköft þau, sem hann væri búinn að gera og myndi gera á ókomnum árum. Einar var þá átján ára. Raunin varð líka sú, að aldrei komu reiðir feður til Asmundar á Læk og klöguðu framferði sonar hans, að hann tældi saklausar dætur þeirra með sér út í þessa „Sódóma og Gómorra“, sem karl taldi að sonur sinn myndi ætla að gera úr þessari eyju sinni! Aftur á móti hafði Einar einu sinni komið að gamla manninum, — sem raunar var enn á bezta aldri þá, — í kofa sínum ásamt einni helztu frú staðarins. Rak hann þau þá úr ríki sínu með harðri hendi, rétt eins og Drottinn forðum daga Adam og Evu! Þá var nú ekki hátt risið á frystihússtjóranum, stórútgerðar- manninum og síldarspekúlantinum. Frúin fékk tauga- áfall og lá í rúminu á aðra viku. Einar talaði aldrei um þetta, og þá ekki þau skötu- hjúin. Þegar ekkert kvisaðist um ferð þeirra, og auð- sýnt var að Einar hafði engum trúað fyrir þessu ævintýri, tóku þau að bera sig vel á ný og halda upp- teknum hætti. En nú var eyjan ekki notuð framar, nema Einar væri örugglega fjarverandi. Um tveim árum síðar bar svo við eina hálfbjarta vornótt, er Einar var að koma úr róðri, að hann sá bát á reki sunnan við eyna og þóttist þar þekkja litla trillu sem faðir hans átti. Einar tók bátinn aftan í og var skapi næst að halda með hann til lands. En móður sinnar vegna stýrði hann upp í eyjarvoginn og batt bátinn við stein svo rammbyggilega, að faðir hans hlyti að sjá, að ekki hefði báturinn fjötrað sig svo fastan af sjálfsdáðum. Þótt sá gamli væri slompaður, sem Einar efaðist ekld um, myndi hann eflaust hugsa sig um tvisvar, áður en hann færi aftur með vinkonur sínar út í hans eyju. Einar var að hugsa um þetta framferði föður síns, meðan báturinn skreið á hægri ferð inn sundið. „Þú ert svo þögull, Einar, um hvað ertu að hugsa?“ spurði Vala. „Þú myndir ekki vilja gefa fimmeyring fyrir hugs- anir mínar, því þær voru einskis virði,“ svaraði hann um leið og báturinn rann upp með klöppinni, sem var tilbúin bryggja frá náttúrunnar hendi. Vala stökk í land og dró djúpt að sér andann. 370 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.