Heima er bezt - 01.03.1973, Side 4
SIRA GISLI BRYNJOLFSSON:
Agúst Sveinsson,
/
Margir munu kannast við það, sem Espólín hef-
ur eftir Ögmundi biskupi Pálssyni um sveitir
Suðurlandsundirlendisins:
Grímsnesið góða —
gull-Hrepparnir
suItar-Tungur
og svarti-Flói.
Þessi skoðun virðist hafa verið furðu lífseig.
Til þess bendir frásögn Þorvalds Thoroddsens af ver-
manninum, sem kom að austan og fór til róðra suður
með sjó. Sagði hann svo frá ferðinni, að hann hefði
fengið rjóma að drekka í Hreppunum, nýmjólk á Skeið-
unum, undanrennu í Flóa, mysu í Ölfusi og vatn í Sel-
vogi.
En hversu vel eða illa sem Sunnlendingar una þeim
dómi, sem felst í þessari ferðasögu, þá er það víst að
Hrepparnir hafa alltaf verið taldir mikil kostahéruð og
óvíða betra undir bú en í þessum uppsveitum Árnes-
þings. Og svo aftur sé vitnað í Thoroddsen, er hann var
á ferð um Hreppana:
. „Allsstaðar er sama búsældarlandið, ágæt beit í fell-
unum, mýrarbollar og stórir grasflákar á milli þeirra en
afréttarland óþrjótandi grasi vaxið upp til jökla.“
Og enn er landið hið sama í gull-Hreppunum.
Ásar { Gnúpverjahreppi.
76 Heima er bezt