Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1973, Qupperneq 12

Heima er bezt - 01.03.1973, Qupperneq 12
BJORN SIGMUNDSSON: Heitur sólskinsdapur Bernskuminning Eitt af síðustu verkum sem vinna þurfti í sveit- inni í mínu ungdæmi fyrir sláttinn, var að reka saman og rýja roilurnar. Eftir að sláttur var hafinn mátti engan tíma taka til annarra verka og þau verk, sem ekki voru unnin fyrir slátt urðu að bíða til haustsins. Þá voru heldur engin tæki nema orfið og hrífan til að nota við heyskapinn og mátti því engan tíma missa til annarra starfa, ef nægjanleg hey áttu að fást handa búpeningnum. Nú er öldin önnur síðan heyvinnuvélarnar komu til sögunnar. Áður fyrr þurfti að standa við slátt hvernig sem veður var myrkranna á milli, nú vinnur enginn við heyskap nema þegar gott er veður og því ýmsum störf- um hægt að sinna jafnframt. Þetta vor sem hér um ræðir var gott, gréri býsna snemma og rollurnar stálust með meira móti úr heima- högunum til afréttanna. Bændur þurftu því að senda allmikið lið til að smala þeim og voru til þess valdir ungir og traustir menn, því oft voru ærnar sprettharðar og ekki fúsar á að yfirgefa hið kjarngóða gras afrétt- anna og frelsi fjallanna. Það var venja að fara að kveldi dags til smölunar afréttanna og komið aftur undir hádegi næsta dag. Smölun heimahaganna önnuðust þá unglingar og eldri menn og luku þeir sínu ætlunarverki um svipað leyti og þeir sem smöluðu afréttirnar. Seinnipart dagsins var svo tekið til við rúninginn og var honum lokið fyrir kvöldið, þar sem fátt var féð og var þá jafnvel rekið til afréttar strax sama kvöldið. Á fjármörgu heimilunum gekk aftur rúningurinn langt fram á nótt og jafnvel fram undir morgun, þar sem flest var. Á tveimur yztu bæjum byggðarinnar var allmargt fé og gekk því rúningurinn langt fram á nótt. Þegar honum var lokið var fénu sleppt í heimahagana, sem girtir voru sameiginlega fyrir báða bæina, þar átti það að jafna sig þar til það yrði rekið til afréttar. Það var því farið með seinna móti á fætur á þessum bæjum næsta morgun, en það fyrsta sem gera þurfti var að ná hross- um úr haganum, athuga hvort ekki þyrfti að járna þau hross, sem fara áttu í reksturinn, því vegalengdin var all löng sem fara átti, alla leið austur á Bleiksmýrardal. Heima í búri og eldhúsi vann kvenfólkið að því að búa út og taka til nesti handa rekstrarmönnunum og var það bæði mikið og gott, þó æði mikið af því kæmi ósnert til baka. Þegar reka átti féð austur á Bleiksmýrardal frá þessum bæjum, var venjuleg rekstrarleið vegurinn út sveitina út að Bíldsá, síðan upp með henni upp á Bíldsárskarð og niður í Fnjóskadalinn nálægt Fjósatungu. En þá er eftir geysi löng leið eftir dalnum fram að Gönguskarði, en þar fyrir framan byrjar fyrst Bleiksmýrardalurinn. Nú hafði bændunum dottið það snjallræði í hug að reka fram Garðsárdal, sem er miklu styttri leið en krækja út á Bíldsárskarð. Að vísu mun vegurinn vera eitthvað lak- ari á dalnum en þó fullgóð rekstrarleið á þessum tíma árs. Þennan dag sem hér um ræðir var ákaflega hlýtt og gott veður, að vísu var skýjað loft en sunnan blær og marahláka. Við vorum fjórir sem áttum að fara í þenn- an fyrirhugaða fjárrekstur og kom okkur saman um það við bændurna, að reka yrði féð ákaflega varlega í þess- um hita, því væri bezt að flýta sér ekkert af stað en nota heldur nóttina til rekstursins. Það var því komið undir kvöld þegar lokið var að smala girðinguna, þar sem féð var geymt og hægt að leggja af stað. Rollurnar virtust verða fegnar að losna úr prísundinni og runnu hratt norður veginn, yfir Þverána á brúnni og síðan upp með árgihnu að norðan. Þegar kom upp hjá Garðsá var sjáanlegt að sum lömbin voru farin að mæð- ast og dragast afturúr. Var því ákveðið að fara mjög hægt fyrst í stað, þar til næturkulið færi að verka á hita- molluna. Þrír stórir lækir eru þarna á leiðinni þangað til sjálf afréttin byrjar. Fyrst er þá Garðsáin, sem kemur úr Bæjardalnum og rennur rétt sunnan við túnið á Garðsá. Þá kemur næst Gerðisáin úr Gerðisdalnum og byrjar þar heimaland fremsta bæjarins, sem þá var í byggð og kallað Þröm. Þriðji lækurinn kemur svo úr Kanagili, en þar fyrir framan byrjar hin eiginlega afrétt, Garðsárdalurinn. Allir þessir lækir voru í foráttu vexti, þó gekk sæmilega vel að koma fénu yfir þá. Þegar hér var komið mun hafa verið komið fram undir háttatíma. Þarna skammt fyrir framan Kanagilið er eyðibýli, sem Kristnes hét. Þar ákváðum við að hvíla fénaðinn ræki- 84 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.