Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1973, Qupperneq 20

Heima er bezt - 01.03.1973, Qupperneq 20
KVEÐÉG mér til hugarhcegðar UNA Þ. ÁRNADÓTTIR fædd 28. maí 1919 á Kjarvalsstöðum í Hjaltadal, fluttist að Kálfsstöðum í sömu sveit 1923 og átti þar heima til 1944. Síðan búsett á Sauðár- króki. Hefur ritað nokkuð í bundnu og óbundnu máli, hafa komið út eftir hana tvær skáldsögur: Bóndinn í Þverárdal (1944), og Enginn fiskur á morgun (1969). Auk þess nokkrar smásögur og kvæði í blöðuin og tímaritum. UM GÖNGUR Hallar nú sumrinu heima í dal, haustskrúða búa sig fjöllin. Blítt ljómar sól yfir bláfjallasal, berjalyng roðnar um höllin. Koma nú göngur með hundgá og hnegg, hó og kölhn. Mjallhvítir fjárhópar framan úr dal fjarlægjast sumarsins haga. Með langdregnum jarmi og saknaðarsón syrgja þeir frelsisins daga. Komandi vetur og kuldi og fönn kjörin baga. Berst nú um dalinn minn hávaði og hark, hlátrar og bergmál og sköllin. Vermandi haustsóhn gyllir svo glatt grundir og engi og völlinn. Ljóma í kvöldroða vinleg og væn Vesturfjöllin. GAMALT OG NÝTT I föðurgarði fyrrum var flot og smjör og tólk. Ég harðfisk man og hamsa og hafragraut og mjólk. Og skyr á síu sá ég og súrt þar slátur var. Á helgri jólahátíð ég hangikjötið skar. Já, þetta er þjóðarmatur og þar af margur vex. En íslands æskulýðinn nú elur gos og kex. Og tóbak, ís og tyggjó, sem teygt og jóðlað er. Æ, því er ver með þessu öh þjóðleg menning fer. HALLDÓR t Hann var bara köttur hann Halldór hth minn og hann var ósköp sætur. Með grábröndóttan háraht og hlýja og loðna kinn. Hann veiddi mýs um nætur. En stundum þegar kaldast var hann kúrði í minni sæng og kalda vermdi fætur. Við mahð hans ég sofnaði, svo milt og vært og rótt, ég man þær góðu nætur. Og ég man það hvað góður og vitur hann var og vænn og gæfuríkur. Svo fjarskalega þrifinn og fugla aldrei drap. Hann var fáum köttum líkur. Hafragraut og rjóma ég honum einatt gaf, — hann var hnellinn lífs á velli. — Og hangikjöt og harðfiskur hans dýrðardraumur var. Hann dó í hárri elh. Og seinna, þegar leið minni lýkur hér á jörð, um Iífsins grýtta vegi. Þá getur skeð að aftur ég hitti Halldór minn, á heiðum sólskinsdegi. AÐ HAUSTNÓTTUM Sumarið liðna var bjart og blítt, blærinn mildur og sólskin hlýtt, lóur í lyngmóum sungu. Grasið ilmaði, glóðu blóm, glöð sungu börnin skærum róm, með sumar í augunum ungu. Frjósa nú hndir í fjallahlíð, fennir lyngið og grösin fríð, mikill er kuldans kraftur. Kaldur vetur þótt verði hér vorgleðin blundar í hjarta mér og vaknar er vorar aftur. 92 Heima er bext

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.