Heima er bezt - 01.03.1973, Blaðsíða 35

Heima er bezt - 01.03.1973, Blaðsíða 35
Halldór Laxness: Af skáldum. Rvik 1972. Menningarsjóður. Hér hefir Hannes Pétursson valið og safnað 20 greinum og ritgerð- um eftir Halldór Laxness um íslenzk skáld, eldri og yngri. Eru greinar þessar skrifaðar á löngum tíma, hin elzta 1927 en hin yngsta 1963. Flestar greinanna eru skrifaðar við tiltekin tækifæri, afmæli, dánardægur eða ritdómar um nýjar bækur skáldanna. Undantekningar frá því eru þó greinarnar um Jónas Hallgrímsson og Hallgrím Pétursson. Er hin síðarnefnda lengsta og veigamesta ritgerðin, enda komið víða við, en vitanlega hlýtur margt í skoð- unum höfundar að orka tvímælis. Annað mál er, að staðhæfingar hans og kenningar vekja til umhugsunar og skerpa tvímælalaust skilning manna á hinu ágæta verki Passíusálmunum, og lífi Hall- gríms og skáldskap, og er það höfuðgildi ritgerðarinnar. Líkt má segja um hinar greinarnar, að þær gefa innsýn í verk höfundanna, enda þótt lýsingarorð Laxness um þá flesta séu höfð í hástigi, og auðsénn sé vinarhugur hans til þeirra. En bezt verður myndin þó af Laxness sjálfum og viðhorfi hans til skáldbræðra sinna og skáld- skapar á löngum tíma ævi hans. Allar eru greinarnar skemmtilegar aflestrar eins og annað frá penna Nobelsskáldsins og gott að hafa þær þarna á einum stað. Óskar Stefánsson frá Kaldbak: Úr lífi smalans. Akureyri 1972. Útg. Skjaldborg. Hér segir gamall bóndi frá ýmsum þáttum ævi sinnar, en tíðrædd- ast verður honum um æskuminningarnar og dýrin, þótt hann einnig komi víðar við um búskap og ferðalög. Frásögnin er látlaus, einföld og innileg á góðu, íslenzku alþýðumáli, sem margt mætti læra af. Ber hún vitni manni, sem lifir í nánu samlífi við náttúr- una, bæði dauða og lifandi, og ann íslenzkri mold og öllu, sem hrærist í kringum hann. Hann er gæddur þeim næmleika náttúru- barnsins, að skynja veðrabrigði og aðra duttlunga náttúrunnar, er draumspakur og athugull í bezta lagi. Þetta er hlýleg bók og ánægjuleg aflestrar hverjum þeim, sem skynjar náttúruna um- hverfis sig með samúð, og hinum getur hún kennt að unna nátt- úrunni, dýrum og dauðum hlutum. Bragi Sigurjónsson: l’áskasnjór. Akureyri 1972. Bókaútg. Skjaldborg. Þessi nýja ljóðabók Braga er hin sjötta í röðinni, og má það kalla vel af sér vikið, af manni hlöðnum störfum, að vinna slíkt í hjá- verkum. Hún er um margt ólík fyrri bókum höf., hún er bjartari og Ijóðrænni, og orð og hagmælska hefir aldrei leikið honum svo á tungu. í kvæðunum fléttast saman á haglegan hátt bjartsýni æskunnar og íhygli hins roskna og reynda manns. Ýmsum mun koma einkennilega fyrir sjónir um mann, sem svo mjög hefir staðið í orrahríð landsmálanna og Bragi, að þar skuli ekki vera að finna ádeilu- eða baráttuljóð, svo að heitið geti. Sýnir það gjörla með hve mikilli alúð hann ræktar akur listar sinnar, og hefir haldið þeim unaðsreit sínum fjarri kulda og harki landsmálanna og hins daglega argafass. Fjölbreytni í háttum og leikni í meðferð þeirra er mikil, og hann bregður sér jafnvel yfir í hið órímaða ljóðform og ferst það vel úr hendi. Allmörg kvæði eru með blæ þjóðvísunnar, og er þar slegið á nýjan streng. Margt er af snjöll- um náttúrulýsingum, sviphreinum og sólroðnum, enda óskar höf. sér að deyja inn í fegurð landsins, sem engan kann að undra að loknum lestri bókarinnar og þess innileika, sem kemur þar fram gagnvart náttúru landsins. Það er tilgangslaust að tína upp ein- stök kvæði eða tilvitnanir, enda þótt ekki séu öll kvæðin jafngóð, en í heild einkennist bókin af birtu og yl, og hefði raunar fremur átt skilið heitið Páskasól en Páskasnjór, því að venjulega stafar kaldri birtu af snjónum, þótt um páska sé. Mér virðist lífsskoðun höf. koma fram í þessu erindi: Aldrei skulu ill völd yndisbyggð týna. Eftir veður ísköld skal ætíð skína morgundýrð margföld. Gunnar Gunnarsson: Heiðaharmur. Rvík 1972. Almenna bókafélagið. Þetta er 3. bindið í hinni handhægu og snotru útgáfu AB af sögum Gunnars Gunnarsson. Heiðaharmur er ein hinna yngstu skáldsagna hans og fjallar um eyðingu og síðasta viðnám fólksins á heiða- byggðum Austurlands, eða nánar tiltekið Vopnafjarðarheiðum. — Munu kunnugir þekkja þar svipmyndir af fólki og atburðum, þótt fært sé í skáldlegan búning, og þótt viðhorf lesandans séu ef til vill önnur, hlýtur hann að fyllast samúð og virðingu með viðnáms- fólkinu. Vera má, að Heiðaharmur verði ekki talinn til mestu sagna Gunnars, en engu að síður hefir hann skapað þar ógleym- anlegar persónur, eins og t. d. feðginin á Bjargi, Brand og Bjarg- föstu, auk margra annarra, sem minna koma við sögu. Og hvort sem menn samþykkja viðhorf höf. til eyðingar heiðabyggðanna eða ekki, hljóta þeir að hrífast af festu hans og tryggð við fornar dyggðir, er það út af fyrir sig þörf hugvekja á þeim upplausnar- tímum, sem nú standa yfir. Og ef til vill kemur viðhorf höf. til íslenzks þjóðernis og þess, sem bezt er í íslenzkri þjóðarsál, hvergi betur fram í sögum hans en hér. Og ekki spillir hið þróttmikla tungutak, þar sem hvert orð er sem meitlað úr íslenzkri öræfa- náttúru. Ingólfur Kristjánsson: Dagur og ár. Rvík 1972. Almeima bókafélagið. Þetta er geðþekk ljóðabók. Kvæðin stutt og bregða upp skyndi- myndum, sem snerta lesandann og hann virðir fyrir sér með ánægju. Stundum sendir höf. frá sér beinskeyttar örvar, sem hæfa í mark, þótt broddur þeirra sé ef til vill ekki sár, enda er höf. miklu fremur ljóðrænt skáld en ádeilusmiður. Allmjög ber á söknuði hins horfna og yfirleitt er höf. alvörumaður. Stundum bregður fyrir vonleysi, eða öllu heldur honum virðist tilveran tilgangslaus, en undirstraumur ljóðanna er þó bjartsýni. Þótt hin erlendu blóm kali í næðingum vorsins, er höf. ljóst, að jörð öll endurfæðist með nýju vori. Ingólfur kann vel til ríms, þótt hann noti mest órímaða formið, sem er skaði. Við fljótan lestur finnst mér mest um kvæðin Vordraumur og ljóð. Ingólfur hefir sýnt með þessari bók, sem raunar var áður kunnugt, að hann er meðal hinna hugþekkustu yngri skálda vorra. St. Std.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.