Heima er bezt - 01.06.1977, Blaðsíða 40
Samkór Abrahams 1939. Fremsta röð: Þóra Franklln, Sigtður Stefánsdóttir, María Hallgrímsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir Schiöth,
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Sesselja Eldjárn, Gunnlaug Baldvinsdóttir, Jenný Jónsdóttir, Ásta Bjamadóttir, Valgerður Þórólfsdóttir.
2. röð: Petrína Eldjárn, ( ? ) Jakobína Pálmadóttir, Gunnar Magnússon, Ólafur Magnússon, Sverrir Magnússon,
Bergur Sigurbjörnsson, Hlynur Sigtryggsson, Dalrós Baldvinsdóttir, María Stefánsdóttir, Þórdís Jakobsdóttir. 3. röð: Garðar Sigicr-
jónsson, Tryggvi Tryggvason, Jón Bergdal, Bragi Brynjólfsson, Kristinn Jónsson, Bjarni Hákonarson, Stefán Gunnbjörn Egilsson,
Magnús Sigurjónsson, Guðmundur Gunnarsson, Björn Þórðarson, Aðalsteinn Einarsson, Jórunn Geirsson við hljóðfærið (og Asta
Einarsdóttir). Söngstjórinn fyrir miðju.
Guðmundur Gunnarsson, Sverrir Magnússon, Gunnar
Magnússon, Matthildur Pálsdóttir og sú sem þetta rit-
ar. Get ég ekki nógsamlega þakkað forsjóninni, að ég
skyldi fá tækifæri til að njóta leiðsagnar þessa stórgáfaða
og dásamlega söngstjóra. Mér fannst, að á hverri æf-
ingu gæti maður lært margt og mikið, viðkomandi söng
og söngstjórn. Eitt sinn kom það fyrir, að ég gat með
engu móti komist á æfingu og gleymi ég því ekki, hvað
mér þótti það slæmt, næstum því óbærilegt.
Skaphiti söngstjórans var mikill og gat „hvesst“ þar
hressilega, ef fólkið masaði og hlustaði ekki eftir þeim
athugasemdum og leiðbeiningum, sem hann var að færa
fram í það og það skiptið. Var það auðvitað eðlilegt,
því sumir meðlimir kórsins tóku starfsemina ekki al-
varlega í byrjun, en þeir lærðu fljótlega að notfæra sér
þann ávinning, að hlusta og fara eftir öllu því, sem
hann sagði fyrir um og ætlaðist til af þeim.
£g hef nokkrar úrklippur úr Akureyrarblöðum frá
þessum tíma, þar sem er að finna umsögn um kórinn
og söngstjóra hans.
Einn var sá mikilsvirtur gagnrýnandi söngs á Akur-
eyri, sem oft skrifaði í blöðin um slíkt, en það var
Valdimar Steffensen læknir. Sjálfur hafði hann verið
mikill söngmaður, á yngri árum og var nokkuð kröfu-
harður í þessum efnum. Hann skrifaði um söng kórsins,
seinni hluta marsmánaðar 1939 og segir þar: „Það munu
margar mæla, að eigi rjúki mikið upp af andlega lífinu
á Akureyri og verður þessu tæplega mótmælt — Akur-
eyri á þó einn listrænan kór að minnsta kosti og þessi
kór söng síðastliðinn sunnudag fyrir fullu húsi og við
almennan fögnuð að því að virðast mátti. Og þetta var
að verðleikum. Söngur kórsins er hljómfagur, samfelld-
ur og blæbrigði í besta lagi. — Söngstjórn Róberts Abra-
hams var í einu orði sagt snilldarleg. Þegar ég sé þenn-
an mann á söngpalli, þá skil ég betur og betur ummæli
þau, er snillingurinn Ignaz Friedmann, sem allir söng-
vinir þekkja, hafði um hann í París fyrir nokkrum ár-
um: „R. Abraham er sannur fengur hverjum þeim bæ,
er kann og vill nota sér sönggáfu hans —
I blaðinu „Dagur“, er sagt frá konsert í byrjun apríl
1937: „Hinn nýi blandaði kór Róberts Abraham kvaddi
sér hljóðs í fyrsta sinn á sunnudaginn var kl. 3 í Nýja
Bíó. — Maður hlýtur að undrast þann mikla árangur,
Framhald á bls. 222.
220 Heima er bezt