Heima er bezt - 01.06.1977, Blaðsíða 29

Heima er bezt - 01.06.1977, Blaðsíða 29
ásinn syðst. Á þann hátt fengist um þrju hundruð metra fallhæð, miðað við hæð árinnar, hjá Jökulsárbrúnni, rétt sunnan við Ferjubakka. Með þessum aðgerðum bjugg- ust þeir við að fá mætti minnst þrjú hundruð megavatta orku. Allt þetta svæði þekkti Ólafur eins vel og fingurna á sér, og ég vissi að hann hefði gaman af að heyra eitt- hvað um þessa ráðagerð. Um hana byrjar hann líka að fara nokkrum orðum: „------Þú ert í bréfi þínu að tala um hvernig áætlað er að nota Jöklu gömlu í fyrirhugaðri virkjun. Ekki er ég nú viss um að hún verði neitt lamb að leika sér við, og að hún eigi þá ekki eftir að gera mönnum einhverja brellu. En hvað um það. Falleg er hún oft, á sólbjörtum sumardögum, séð ofan af Ferjubakkahæðinni, þar sem hún liðast eins og silfurband, yfir gráan sandinn. Og niðurinn, þessi þungi, sífelldi niður, sem maður sofn- aði út frá á kvöldin, og vaknaði til á morgnana, í meira en hálfa öld. — Geymast ekki einmitt í honum sögur liðinna ára, liðinna kynslóða? Ekki er þar ávallt gleði- tónn, fremur en í lífi okkar mannanna. Þegar ég fer að hugsa um að segja þér einhverjar fréttir, finn ég að ég hef ekkert að segja, nema það, sem þú fréttir um leið og ég, — um landhelgisdeiluna, verk- föllin, ríkisstjórnina og nú síðast stjórnmálaslitin við Breta. Já. Þetta eru nú meiri lætin, og svo er nú bölvuð flensan farin að geysa hér, rétt einu sinni. En þú getur reitt þig á, að við ætlum ekki að fá hana. Það er — sko — af og frá.--- Jæja, — kæri vinur. Þarna sérðu, að ég hef hreint ekki neitt að segja, eða — réttara sagt — ekkert frá hin- um ytra heimi og þá verður maður að leita inn á við, í sín eigin hugarfylgsni, eins og þar er nú orðið tætt og ruglingslegt. En fyrst maður er á annað borð far- inn að gægjast inn á við, ertu þá ekki til með að ganga með mér, í huganum — svo sem einn ofurlítinn hring, heina á gömlu jörðinni minni? Jörðinni minni, segi ég. En átti ég hana þá nokkurn tíma? Á annars nokkur maður nokkurn tíma jörð? Maður bara fæðist á jörð- ina, býr þar ofurlítinn afmarkaðan tíma, á ofurlitlum afmörkuðum stað, og borgar fyrir það peninga, ein- hverjum, sem heldur endilega að hann eigi, fær að búa þar, nokkurn veginn óáreittur, í nokkra áratugi, en laumast svo hljóðlaust á brott, já — næstum sporlaust, með ekkert nema minningarnar. En — þetta var nú útúrdúr. Sjáðu! Þarna stóð gamli bærinn minn. Flann var gam- all, þegar ég var ungur, en mér þótti vænt um hann, og systur grétu hann, þegar hann var jafnaður við jörð. Og svo byggðum við húsið. Og — það var ungt, þegar við vorum að verða gömul. Og þarna rann lækurinn, sem er ekki lengur. Börn hafa yndi af lækjum. Þau sitja á bakkanum og horfa á strauminn og lonturnar í hyljunum. Og þau gutla með litlu höndunum sínum, í tæru vatninu. Sjáðu! Það er að koma vor. Ilmur af skóginum fyllir loftið og lóan syngur. Eigum við að ganga niður í Ólafur Gamalielsson 81 árs gamall. hvammana, fyrir neðan túnið og — hlusta? Eða eigum við að fara upp með ánni, í áttina að Vaðkoti? Alls staðar er svo fallegt og alls staðar eru minningarnar. Þarna gættu systur ánna, yfir burðinn, þegar þær voru enn lítil börn. Og þarna áttu þær heilan heim, fullan af ævintýrum. Þú segir í bréfinu þínu, að þegar komi fram um alda- mótin, megum við fagna því að sofa og hvílast, eða réttara sagt, við getum fagnað þeirri hugsun nú, að þ á megum við sofa og hvílast. En — heldurðu samt ekki, að þegar við — í alvöru — eigum að fara, erum við aldrei a 1 v e g viðbúnir. Það var eitthvað, sem við átt- um eftir að segja við vin okkar. Máske voru það aðeins nokkur hlýleg orð, sem okkur láðist að segja, á ein- hverri stund, þegar þau hefðu haft svo mikla þýðingu. Eða — var það einhver misskilningur, sem við áttum eftir að leiðrétta, eða einhverjir óuppgerðir reikningar? Eða — áttum við bara eftir að finna ilminn af skógin- um, aðeins e i n u sinni enn? Eða finna sunnan blæinn leika um vanga okkar, eitt augnablik. Ég veit það ekki. En ég held samt, að það sé alltaf e i 11 h v a ð, sem við höfum gleymt, þegar við förum.“-------- Heima er bezt 209
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.