Heima er bezt - 01.06.1977, Blaðsíða 25

Heima er bezt - 01.06.1977, Blaðsíða 25
Þegar þær koma heim á hlaðið, nema þær staðar. Það er eins og þær heyri eitthvað. Eins og æfðir spretthlaup- arar þjóta þær suður fyrir bæinn. Jú! Þarna situr amma með prjónana sína, sunnan við baðstofustafninn, þar sem blessuð sólin vermir allt enn og hjá henni situr litli bróðir með gullin sín. Hann horfir undrunar- og að- dáunaraugum á hestinn, sem honum var gefinn nýlega, geislandi fagur og ofsafjörugur að sjá. Og á honum sit- ur knapinn, svona líka reistur, í blárri treyju með gullna hnappa og blóðrauða húfu. Þegar litli bróðir sér syst- ur sínar koma, breiðir hann út faðminn, því nú eru þær búnar að vera svo lengi í burtu. Hann veit líka að þær taka hann í fangið og hann fær kossa hjá þeim báðum, og sömuleiðis hún móðuramma hans, því svo hefur hún alltaf verið þeim elskuleg. Því hafa líka svsturnar báðar heitið, að það skuli þær endurgjalda henni, þegar ellin færi að mæða. Enn er hún samt svo ótrúlega létt á fæti og snör í snúningum. Þessi litli bróðir heitir Arnbjörn, og fæddist fyrir rúmu ári, eða 13. júlí 1926. Systurnar báðar setjast hjá litla bróður og ömmu, sem ljómar af gleði. Og sólin vermir þau og sömuleiðis fiskiflugurnar, sem virðast hafa slegið upp balli, þarna á baðstofustafninum, með óvenju hástemmdu og sam- hljóða suði. Einnig þær gleðjast yfir því að hafa lifað svona yndislegan ágústdag. Þegar börnin stækkuðu og vélarkrafturinn kom til sögunnar, varð heyskapurinn og jafnvel allir snúning- arnir við að koma upp nýja húsinu, leikur einn og gaman, því margar vinnufúsar hendur voru á lofti, og vinnugleðin alls ráðandi. Á hverju hausti fór þó einka- sonurinn — Arnbjörn — í skóla, en það kostaði lengri vinnudag, meiri áreynzlu og meiri afköst fyrir þá, sem heima voru. Einnig í þeirri baráttu var sigur unninn. Svo kom að því, að sonurinn fór alfarinn að heiman. Eldri dóttirin — Birna — fór einnig burtu. Róðurinn þyngdist því stórum fyrir þau, sem eftir vou og þá sér- staklega fyrir Ólaf. Aðalheiður og yngri dóttirin — Guðrún — þurftu því oft að neyta allrar orku til að ná í höfn. Húsbóndinn á Ferjubakka og fjölskyldan öll voru miklir dýravinir. (Sjá Sunnudagsblað Tímans, frá 4. apríl 1971). Allar skepnur, sem þar áttu heima, sýndu það bezt. Afurðir af búinu voru því ávallt góðar. Því varð það Ólafi hin mesta raun, þegar hann fann hve erfitt honum reyndist að losa um hey á veturna, og gefa það í garða. Og þrátt fyrir ýmsan útbúnað, til að verjast rykinu, með því að nota svonefndar heygrím- ur, kostaði það hann fleiri og fleiri svitadropa að gefa skepnunum. Mörg síðustu árin, meðan hann dvaldi á Ferjubakka, kvað svo rammt að þessu, að jafnvel þeg- ar hann tók snöggt viðbragð, eða gekk liðugt nokkur spor, varð hann svo móður, að hann gat ekki komið upp orði, fyrr en frá leið. Allt erfiði við að koma inn heyi með kvíslum, bera upp hey, eltast við kindur og ótal margt fleira, kom því í hlut Aðalheiðar og yngri dótturinnar, að sjá um í vaxandi mæli, og oft meira af vilja en mætti. Þá voru það líka erfið spor, sem Ólafur átti oft, síðustu árin á Ferjubakka, upp brekkuna frá Ólafur og Aðalheiður fagna góðum gestum. stöðvarhúsinu og þá ekki síður suður að Jökulsár- brúnni á vetrum, þegar vont var veður og þæfings- færi. Hann hafði þann starfa í mörg ár, að fylgjast með vatnshæðinni í Jökulsá, vissa daga í viku hverri og stundum daglega, þegar áin var mjög breytileg, og skrifa niður, þar til settur var þar sjálfvirkur hæðamælir. Og alltaf minnist ég þess hve hægt við gengum, eitt sinn, síðasta sumarið, sem hann dvaldi á Ferjubakka. Þá bað ég hann að sýna mér þar elztu mannvirki, sem enn mætti greina. Við gengum norðvestur frá fjárhúsunum, sem enn standa, yfir næstu sléttu og komum þá í dokk, sem dýpkaði eftir því sem nær dró ánni. Neðst í dokk- inni sá vel fyrir görðum, sem ætla mátti að eitt sinn hefðu verið fjárhúsveggir. Ég lét undrun mína í ljós við Ólaf frænda, og það með, að þarna hefði hvert hús hlotið að fara í kaf í fyrstu stórhríðum. Þá brosti frændi og sagði: „Nei — þarna var aldrei hús, heldur sundlaug, sem Páll Vigfússon, sem eitt sinn var á Ferjubakka, bjó út, til að baða sig í. Þegar svo Jökulsárbrúin var bvggð, 1905, fann einhver upp á því, að þarna væri upplagt að synda, með því að veita vatni í lautina, úr bæjar- læknum, þegar henta þætti. Þar volgnaði það líka í góðri tíð, og þá væri bezt að baða sig. Brúarmenn voru oft milli tíu og tuttugu. Þú mátt trúa því, að hér var þá gusugangur og glatt á hjalla, því þetta voru — næstum allt — ungir menn.“ Ég sá að komu glampar f augun á Ólafi, þegar hann mælti þetta, og flaug þá í hug, þegar ég — strákurinn — Heima er bezt 205
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.