Heima er bezt - 01.06.1977, Blaðsíða 23

Heima er bezt - 01.06.1977, Blaðsíða 23
sást vel til bílanna úr eldhúsglugganum, og undan fæti að hlaupa, austur að bensíntankanum. Norðan við íbúðarhúsið var svo byggð gevmsla, smíðahús og fleira. Þá kom Ólafur líka þeirri hugmynd sinni í framkvæmd, að koma fyrir vatnshrút við lækinn, sem rann suður, austan við íbúðarhúsið, þann sama, er knúði rafstöðina. Vatnshrúturinn reyndist undratæki, eins fábrotinn og hann var. Hann sá um að ávallt væri nægilegt vatn í húsinu, því færi eitthvað úr skorðum, var það lagfært strax af húsbóndanum. Á þessum árum byggði Ólafur hlöðu úr steinstevpu og við hana fjárhús. Túnið var stækkað eftir föngum, og náði að lokum norður að Vaðkotsánni og suður, vestan við veginn, eins langt og auðið var, vegna stórgrýtis. Túnið var girt og einnig afmarkaða svæðið norðan við veginn, að Jökulsá. Sumarið 1941, komst svo Ferjubakki í símasamband. Það urðu mikil þægindi fyrir heimilisfólkið, og ekki síður fyrir hina, sem einnig komust þá í símasamband við Ferjubakka. Nú þurftu þeir ekkert annað en hringja — tvær stuttar — til að geta talað við smiðinn og sauma- konuna, hvenær sem þörfin kallaði. Þegar ég nefndi þarna smiðinn og saumakonuna á Ferjubakka, hrökk ég við, því mér varð þá ljóst hve mörgu ég hafði gleymt. Ekki þarf að efa það, að ýmsir, sem fengu saumuð föt hjá Áðalheiði, hafi haft orð á því hve erfitt væri að útvega sér skjólgóð nærföt, bæði handa börnum og full- orðnum. Hvort sem þetta eru hugarórar eða ekki, þá varð það staðreynd, að Aðalheiður keypti sér stóra prjónavél. Ekki var það þó erfiðisminna að snúa henni en saumavélinni. Svipaða sögu var hægt að segja um Ólaf. Til þess að geta gert við ýmis áhöld og vélar, sem nú voru að koma á alla bæi í sveitinni, og voru stundum að bila, þurfti hann mörg áhöld. Þau kevpti hann, eftir því sem tök voru á. AJá þar t. d. nefna borvél, logsuðu- tæki, tengur og klúbba, rennibekk og ýmislegt fleira, sem enginn gat án verið, við þau störf, sem hann var fenginn til að leysa. Og með ári hverju fjölgaði þeim, er siíka hjálp þurftu að fá, og það eins fljótt og framast var hægt. Þau áhöld kostuðu hann stórfé, sem eftir nú- tíma peningagildi hafa skipt hundruðum þúsunda króna. Þar við bættist svo, að margir veigruðu sér ekki við að biðja hann að lána sér þessi áhöld, því þeir vissu, að hann gat engum manni neitað. Þegar þau svo komu aft- ur, báru þau oft þögul merki þess, að „sjaldan kemur lán hlæjandi.“ Um það get ég borið vitni af eigin sjón. Aðeins e i 11 dæmi set ég hér, um frátafir Ölafs frá heimilisstörfum, og jafnframt um hjálpsemi hans. Sum- arið, sem ég flutti í nýja íbúðarhúsið á Bjarmalandi, stóð svo á, að enginn miðstöðvarofn var fáanlegur fyrr en seint og síðar meir, hjá Kaupfélagi Eyfirðinga. Gekk þá vont kvef, með hósta og hita, sérstaklega á börnun- um, og tíð köld, norðan belgingur með talsverðri úr- komu. Þá var aðeins eitt ráð til að fá yl í húsið. Það var að setja innaní eldhólf eldavélarinnar nokkra vinkla af rörum, af sömu vídd og notuð voru til að tengja saman miðstöðvarofnana. Grímur Sigurjónsson, móður- bróðir minn, hafði mælt fyrir þeim, útbúið þá og sent mér, því um hann mátti segja með sanni, að hann hefði ráð undir rifi hverju. Hafði ég orð á þessu við Ólaf frænda minn, og kom hann þegar mest var þörfin, eins og af himni sendur, með öll nauðsvnleg áhöld í hesta- kerru, tengur, klúbba, logsuðutæki og fleira og kom þessu öllu í lag sama daginn. Um kvöldið var veldi kuldans í nvja húsinu rekið á flótta, og öllum leið stór- um betur. VI Engan íslending, sem hóf lífsbaráttu sína á fyrsta og öðrum tug tuttugustu aldarinnar, gat órað fyrir því, að næstu áratugir bæru í skauti sínu aðrar eins breytingar á lífsháttum og lífsviðhorfi þjóðarinnar, eins og öllum er nú orðið ljóst. Á fáum áratugum má segja, að hún hafi brotist úr þúsund ára kyrrstöðu, þrátt fyrir ægi- stranga baráttu og inn í heim allsnægta og þæginda, sem engan dreymdi um fyrir einni öld. Hjónin á Ferjubakka, Ólafur og Aðalheiður, voru á meðal þeirra, sem náðu þessum síðasta áfanga. Og þó að brugðið hafi verið upp örfáum mvndum frá afreks- göngu þeirra, skulum við samt líta um öxl og gá betur að. Það er októbermorgunn 1967, sunnan andvari og sól- in farin að verma austurhliðina á íbúðarhúsinu á Ferju- bakka. Við komum frá Ásbyrgi og stöðvum bílinn á veginum austan við bæinn. Þegar við komum upp á Ferjuhraunin, veittum við því athygli, hve skógurinn var orðinn dökkur í Ferjubakkakinn. Undanfarna daga höfðu laufvindar verið þar að leik við bliknuð blöð. Við höfum ákveðið að litast um á Ferjubakka. Þegar við komum að íbúðarhúsinu nemum við staðar. Hér er nú allt svo undarlega hljótt. Við vitum að enginn kemur til dyra þó guðað sé á glugga. Húsið er mann- laust. Hryggileg breyting frá því, sem eitt sinn var. Við göngum suður fyrir það og sjáum inn í auð her- bergi. Svo nemum við staðar við aðaldyrnar, að vest- an. Okkur verður litið til fjallanna í vestri, hve fagur- lega þau eru sveipuð sólarvoðum. En þegar við lítum nær, dylst okkur ekki að hér hafa vinnufúsar hendur unnið sitt ævistarf og neytt allrar orku til að gera þeim sem á eftir komu lífið bærilegra. En tímans elfa befur nú ruðst áfram með svipuðum rassaköstum, og systir hennar, hún Jökla gamla, gerði, hérna vestan við okkur, þegar hún eyddi öllum gróðri á stórum svæðum, svo að eftir varð aðeins sandur og grjót. Hér hefur — aftur á móti — verið unnið ræktunarstarf í umhverfi, sem hlýt- ur að vekja hlýhug hjá hverjum þeim, sem þar nemur staðar og litast um, j a f n v e 1 þó að blóm séu öll bliknuð. Þá er það oft heillaráð að loka augunum og lit- ast um í myndabók minninganna. Og það skulum við nú gera. Þ a r eru líka myndir, sem geta verið ótrúlega skvrar og hafa það — meira að segja — fram yfir hinar, að þar hverfur a 1 d r e i sól af hæztu hnjúkum. Og — líttu nú á, lesandi minn: Það er heiður júlímorgunn 1916. Ilmur bjarkanna berst að vitum okkar og þó glitra enn daggardropar á Heima er bezt 203
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.