Heima er bezt - 01.06.1977, Blaðsíða 14

Heima er bezt - 01.06.1977, Blaðsíða 14
1880. Er hið mesta mein, að ekki skuli unnt að ljúka útgáfu annálsins. Hallgrímur gaf einnig út nokkrar þýddar skáldsögur. Enn ve'rður að geta hér manns, sem stóð að mikilli bókaútgáfu, enda þótt það væri ekki í atvinnuskyni, en það var Arthur Gook trúboði (1883—1959). Hann hóf útgáfu bóka skömmu eftir aldamótin og hélt henni áfram uns hann fluttist frá Akureyri fáum árum fyrir andlát sitt. Gaf hann út svo tugum skipti bóka og bækl- inga bæði frumsaminna og þýddra. Flest voru þetta smárit, en þó voru allstórar bækur með t. d. Kristur — biblían — vantrúin o. fl. Öll voru þessi rit trúarlegs efnis og mörgum dreift ókeypis, en vel vandað til flestra þeirra. Auk þess gaf Mr. Gook út mánaðarritið Norð- urljósið um fjölda ára. Það er nú ársrit og gefur Sæ- mundur G. Jóhannesson það út. Hann hefir einnig haldið uppi nokkurri útgáfustarfsemi í stíl og anda Arthur Gooks. Árið 1923 gerist merkisatburður í sögu bókaútgáfu á Akureyri, en þá keypti Þorsteinn M. Jónsson (1885— 1976) aðra bókaverslun bæjarins Bókaverslun Sigurðar Sigurðssonar, og ári síðar hóf hann bókaútgáfu, sem um nær þriggja áratuga skeið var athafnamesta útgáfa á Akureyri og oft hin umsvifamesta á öllu landinu. Hægt var að vísu farið af stað en útgáfunni óx fljótt fiskur um hrygg, og mun Þorsteinn alls hafa gefið út hátt á þriðja hundrað bóka eða sem svarar 10 bókum á ári. En þó að bókaútgáfa Þ. M. J. væri ærið starf hafði hann ætíð mörg önnur járn í eldi, kennslu, skólastjórn, rekstur bókaverslunar og stórbús auk margvíslegrar þátttöku í opinberum málum. Hafði hann lengstum litla aðstoð við forlagið, svo að það varð næstum tómstunda- vinna hans, enda var hann margra manna maki að vinnuþreki og afköstum. Athyglisvert er, að á kreppu- árunum eftir 1930 dró hann hvergi saman segl, en færð- ist heldur í aukana, og var þá þó fremur dauft vfir bókaútgáfu í landinu. Segja má, að skipta megi útgáfubókum Þorsteins í þrjá meginflokka: íslensk skáldrit, þjóðleg fræði og kennslubækur. Hann gaf út frumútgáfur af mörgum kvæðasöfnum og leikritum Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi og söguna Sólon Islandus, einnig heildar- söfn kvæða Davíðs tvisvar sinnum. Þá gaf hann út bækur eftir þessa höfunda: Guðmund Hagalín, Guð- mund Daníelsson, Friðrik Á. Brekkan, Jónas Rafnar, Elinborgu Lárusdóttur, Kristínu Sigfúsdóttur, Huldu, Halldór Laxness, Jóhannes úr Kötlum, Jóhann og Guð- mund Frímann, Pál J. Árdal og Jónas Jónasson frá Hrafnagili auk ýmissa annarra. Þorsteinn lét sér annt um að koma ungum og efnilegum höfundum á fram- færi, og hefir því verið minna haldið á lofti en skyldi, en ýmsir þeirra hurfu síðar frá honum, þegar hann hafði rutt þeim brautina. Flokkurinn um íslensk fræði er minni að vöxtum, en engar bækur voru Þorsteini hugleiknari, og lagði hann fram mikla vinnu við undirbúning útgáfu þeirra. Full- yrða má, að þegar frá eru talin þjóðsagnasöfn Jóns Árna- sonar og Sigfúsar Sigfússonar, hefir Þorsteinn gefið út nær allt það merkasta sem prentað hefir verið af ís- lenskum þjóðsögum og skyldum fræðum. Miklu hæst ber þar Þjóðsögur Ólafs Davíðssonar í 3 bindum 1945, en einnig söfnin Gráskinnu er þeir söfnuðu til Sigurður Nordal og Þórbergur Þórðarson og Grímu, sem Þor- steinn safnaði til sjálfur ásamt Jónasi Rafnar, en fvrsti stofn hennar var úr safni Odds Björnssonar. Til þessa flokks má einnig telja Hornstrendingabók Þórleifs Bjarnasonar 1943 og Sögu Snæbjarnar í Hergilsey 1930. Kennslubækur þær er Þorsteinn gaf út eru flestar handa barna og unglingaskólum, eru þær fjöldamarg- ar en mest þeirra er íslendingasaga Arnórs Sigurjóns- sonar 1930 og síðar 1942, og Landafræði eftir Guð- mund Þorláksson og aðra eftir Ástvald Eydal og Stein- dór Steindórsson. Éftir að ríkisútgáfa námsbóka kom til sögunnar átti Þorsteinn oft í nokkru stríði við þá stofnun. Hann gaf út allmikið af barnabókum, og mun einna fyrstur manna hafa orðið til þess að gefa út ís- lenskar þjóðsögur skreyttar myndum handa börnum. Meðal fyrstu bókanna, sem Þ. M. J. gaf út var ritsafn, er hann nefndi Lýðmenntun. Áttu það að vera fræði- bækur í líkingu við Bókasafn alþýðu, og verði mjög stillt í hóf. Ekki féll sú útgáfa í frjóan jarðveg og komu aðeins út 4 bindi. Eitt þeirra var Himingeimurinn eftir Ágúst H. Bjarnason. Tímaritið Nýjar kvöldvökur gaf Þorsteinn út í nær 30 ár og var lengst þess tíma ritstjóri þeirra. Höfðu þær áður verið gefnar út af hlutafélagi, sem Þórhallur Bjarnarson átti hlut að, en hann var í félagi við Þorstein um fyrstu útgáfubækur hans. Fátt gaf Þorsteinn út af þýddum skáldsögum annað en ungpíubækur Margit Ravn, sem Helgi Valtýsson þýddi. Þorsteinn var enginn nýjabrumsmaður í útgáfu- starfsemi sinni. Auglýsti sjaldan bækur sínar og var treg- ur til að leggja mikið í skrautlegar kápur og því um líkt, en lagði hinsvegar kapp á að vanda til efnis og frágangs. Verður því ekki móti mælt, að hann var einn af merkustu útgefendum landsins á sinni tíð, og þó lengur sé leitað. Hann fluttist til Reykjavíkur 1956, og fékkst lítið við útgáfu eftir það. Eins og áður er getið gaf Prentsmiðja Odds Björns- sonar nær enga bók út um árabil. En upp úr 1950 stofn- aði Prentverkið að nýju Bókaforlag Odds Björnssonar, og hefir það nú um aldarfjórðung verið athafnamesta forlag á Akureyri og í fremstu röð útgefenda á landinu. Það og störf þess standa svo nærri oss nú, að ekki gerist þörf að rekja þau til hlítar. Forstöðumenn þess hafa verið þeir feðgar Sigurður O. Björnsson og Geir sonur hans. Útgáfubækur forlagsins eru næsta fjölbrevttar, hygg ég meðal þeirra sé að finna dæmi flestra þeirra bókaflokka, sem gefnir eru út á íslandi, sem best má sjá af bókaskrá þeirri, sem forlagið hefir nú gefið út nær frá upphafi og fylgt hefir Heima er bezt á hverju ári. í því safni er að finna æfisögur, skáldsögur, íslenskar og þýddar, ljóð, leikrit, ferðasögur, landafræði, sagnfræði og ótal margt fleira. Stærsta verkið er áreiðanlega Vest- ur-íslenzkar æfiskrár í 4 gildum bindum, sem síra Benja- mín Kristjánsson hefir samið. Af unglingabókum hafa sögur Ármanns Kr. Einarssonar vakið mesta athygli. 194 Heima er bezt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.