Heima er bezt - 01.11.1977, Qupperneq 7
við spiluðum saman. Við erum svona að bauka við
þetta hvert í sínu horni, eins og maður segir.
— Nú ert þú útivinnandi húsmóðir. Hvað viltu segja
um það?
— Ég hef ekkert nema gott um það að segja, svo
framarlega sem heimilisástæður leyfi það. Það geta
verið svo fjölmargar ástæður fyrir því að húsmæður
vinni úti. Til dæmis er mjög algengt og reyndar nauð-
synlegt af fjárhagsástæðum að hjón, sem eru að koma
sér upp þaki yfir höfuðið, verði bæði að vinna úti. —
Nú, svo er geysileg eftirspurn eftir vinnuafli kvenna
í fjöldamörgum starfsgreinum, svo sem í fiskiðnaði,
verksmiðjuiðnaði og ekki síst við kennslustörf og hjúkr-
un, svo örfá dæmi séu nefnd. Það geta verið svo fjöl-
margar ástæður sem seiða húsmæður út fyrir veggi
heimila sinna, þetta hlýtuí að fara eftir ástæðum og
löngunum hvers og eins, og allur gangur á því.
— Hvað um þma vinnu?
— Ég er í fullu starfi á dvalarheímili aldraðra í Skjald-
arvík. Málefni aldraðra hafa verið og eru mjög ofarlega
í huga mínum. Mér líkar vel að starfa við hjúkrun og
aðhlynningu á þeim. Á mínu heimili hjálpumst við öll
að við heimilisstörfin, og þetta er leikur einn fyrir
mig.
— Ertu með fleiri bækur í smíðum?
— Ég veit nú ekki hvað ég á að segja um það. Fyrst
langar mig til að sjá hvernig frumburðinum vegnar.
Það fór auðvitað ekki hjá því að við Heiðdís rædd-
um um leiki barna hér á Akureyri, einkum á Oddeyr-
inni, þar sem við erum bæði Eyrarpúkar. Hennar leik-
ir voru ósköp svipaðir þeim sem ég þekkti frá minni
æsku, t. d. öskudagsfagnaðurinn sem ávallt hefur verið
einn mesti hátíðisdagur akureyrarbarna. Allt væri þetta
efni í heila barnabók, og kannske verður einhver til þess
að semja hana.
Heiðdís Norðfjörð er fædd á Akureyri 21. desember
1940.
1. desember árið 1959 giftist Heiðdís Gunnari Jó-
hannssyni bifvélavirkja. Gunnar er fæddur 20. apríl
1935 að Möðruvöllum í Eyjafirði.
Heiðdís og Gunnar eiga þrjá syni:
Gunnar, fæddur 26. júlí 1961, menntaskólanemi og í
Tónlistarskólanum á Akureyri.
Jón Norðfjörð, fæddur 19. mars 1966.
Jóhann Valdemar, fæddur 18. ágúst 1971.
Svo að lokum þetta.
Því er gjarnan haldið fram að vel skrifuð og mótandi
barnabók sé áhrifamikið og nauðsynlegt uppeldistæki,
og því sé enganveginn sama hvernig hún sé samansett.
Þetta er tvímælalaust rétt skoðun sem þó verður að
athuga í tengslum við lífsganginn sjálfan.
Barnabókahöfundar vilja að sjálfsögðu gefa bókum
sínum einhvern tilgang og þeir hyllast til að upphefja
gildi þeirra. Til marks um þetta halda sumir þeirra því
fram að lífsviðhorf mitt og minna jafnaldra hafi af
verulegu leyti mótast af því lesefni sem okkur var feng-
ið í æsku. Þessir höfundar telja að við hrærumst enn í
draumheimum ævintýrafrásagnanna sem örfuðu ímynd-
unaraflið til gagns. Og þeir telja okkur eiginlegt að
breyta samkvæmt siðfræði góða fátæka drengsins í
fallegu bókinni sem var eins konar áhersluauki við
uppeldið á heimili og í skóla.
Það er satt að mikið var gert af því að innræta okk-
ur góðvild til náungans eftir ýmsis konar leiðum. En
því miður held ég að hraði lífsins og kapphlaupið eftir
peningum hafi orðið þess valdandi að það góða sem
ég vildi gerði ég ekki, en gerði heldur það vonda sem
ég vildi ekki. Á þessu eru vitaskuld til undantekningar
sem betur fer.
Og þessi ásókn heldur áfram með enn meiri hraða en
Framhald á bls. 371.
Gunruzr Gunnarsson.
Jón NorðfjörO.
Jóhartn Valdemar.
Heitna er bezt 355