Heima er bezt - 01.11.1977, Blaðsíða 33

Heima er bezt - 01.11.1977, Blaðsíða 33
eigandinn vera? Bjarnharður fann eigandann utan göt- unnar. Hann svaf fast. Andlitið var magurt og torkenni- legt. Maðurinn var tröll að vexti og virtist aldurhniginn. Eitthvað var við manninn, sem Bjamharði fannst hann kannast við, en áttaði sig ekki á, hvemig á því gæti staðið. „Hver ert þú, sem sefur hér á víðavangi?“ kallaði Bjarnharður til mannsins. Tröllvaxni maðurinn spratt á fætur sem ungur væri og greip til sverðs síns. „Þessa gerist ekki þörf,“ mælti Bjarnharður. „Ég fer með friði.“ „1 hvaða ríki er ég kominn?“ sagði stórvaxni maðurinn. „Þetta ríki heitir Garðaveldi. Borgin þarna framundan okkur heitir Sólvangur. Hún er aðsetur konungsins og' stjórnar hans. Ég heiti Bjamharður og er prins.“ „Greiðlega er úr svörunum leyst,“ sagði sá stórvaxni. „Hvert ert þú að fara?“ „Ég er að fara til borgarinnar Sólvangs," mælti Bjam- harður. „Vilt þú koma með mér sem gestur minn. Mér sýnist þú þurfa aðhlynningar við. Þú virðist langt að kominn.“ „Þakka þér boðið, prins. Þú afsakar, að ég þúa þig. Mér er illa við allar þéringar og þess háttar hofflegheit, enda þótt maður neyðist til þess í hirðsölum í viðurvist fyrirfólks og fagureygra kvenna. En nú er sá tími liðinn fyrir löngu.“ Þung stuna fylgdi síðustu setningunni. „Hvað heitir þú og hvaðan ertu?“ „Ég heiti Hróðmar Valdimarsson og ræð ríkjum í Goð- heimum. Það ríki er langt héðan. Ég er búinn að vera fjarverandi ríki mínu á þriðja ár.“ Samtalið rofnaði við það, að utan af sléttunni reið í veg fyrir þá flokkur manna, sem fór geyst og lét ófriðlega. „Þessir menn láta ófriðlega,“ mælti tröllvaxni maðurinn. „Ég er í hringabrynju minni, sem er hulin innanklæða. Maður veit aldrei nær ævintýramenn og ófriðarseggir ráð- ast á mann.“ Á meðan tröllslegi maðurinn talaði, hafði hann hagrætt skildinum og dregið sitt stóra sverð úr slíðrum. „Vertu ekki að hafa þig í hættu mín vegna, Hróðmar konungur,“ mælti Bjarnharður, sem hafði dregið sitt mikla orustusverð úr slíðrum. Skjöld sinn hafði Bjam- harður en ekki herklæðin góðu, sem voru allt of þung, nema þegar nauðsyn krafði. Mennirnir voru komnir alveg að þeim. „Ert þú Bjarnharður prins,“ spurði fyrirliðinn. „Ég er prinsinn. Hvað vilt þú mér?“ „Ég heiti Váli og er sonur Grímars hertoga, sem þú drapst. Nú vil ég hafa þitt líf. Sækjum að honum, piltar!“ Það hvein í hinu mikla orustusverði og tveir mannanna féllu, sinn í hvoru höggi. Hinir hörfuðu. „Veizt þú það ekki, Váli, að faðir þinn, er þú kallar svo, féll óhelgur. Hann hafði myrt föður minn og afa. Hér var aðeins um hefnd að ræða.“ „Sækjum að honum, piltar!“ „Þið skuluð líka reikna með mér, þorparar,“ þrumaði tröllið. „Ég held það væri bezt fyrir ykkur að hypja ykkur í burtu með lafandi skottin." „Sækjum þá allir sem einn!“ „Það er bezt, að sá hafi brek sem beiðist,“ mælti prins- inn. „Þú sverð þig í ættina, Váli.“ Að svo mæltu réðist Bjarnharður á móti þeim með slíku hamremmi og leikni að undrun sætti. Eftir ör- stutta stund lágu níu menn dauðir á vellinum. Hinir hörfuðu frá. „Finnst þér þetta betra, Váli, en að sættast á málið? Ég hefði greitt þér góðar bætur eftir Grímar hertoga, sem þú kallar föður þinn. En nú hefur þú með oforsi þínu slegið það vopn úr hendi þér. Nú er of seint að tala um sætt, nema þú látir vopn þín mér í hendur og gefir þig mér á vald.“ „Aldrei skal það verða. Áfram, di-engir. Við erum tutt- ugu og einn talsins. Drepum Bjarnharð prins!“ Þeir sóttu allir að í ákafa, en Bjarnharður og tröllvaxni maðurinn urðu þeim torsóttir. Enn hörfuðu óvinirnir. Eftir stutta hvíld réðust þeir til atlögu aftur. Bjamharður sá, að nú átti að sverfa til stáls með þeim. Hann barðist því af enn meiri hörku. Menn og hestar hmkku fyrir og fyrirliðinn féll til jarðar. Hinir hættu þá sókninni. „Gefist upp,“ mælti prinsinn þrumuröddu. „Gefist allir upp án tafar, annars verðið þið allir drepnir.“ Mennirnir, sem eftir lifðu, fleygðu vopnunum orðalaust. „Þú, ókunni vinur minn,“ mælti Bjamharður, „bægðu þeim frá með sverði þínu ef þeir skyldu ætla að svíkjast að mér á meðan ég kanna sár fyrirliðans. Ég held, að það sé ekki ólífissár.“ Bjamharður kannaði sárið, sneri sér svo að mönnum Vála og sagði: „Sárið er ekki lífshættulegt, ef læknishjálp berst fljótt. Annist um særða manninn. Breiðið yfirhafnir ykkar að honum, en varizt að hreyfa hann fyrr en hjálpin berst. Fylgist með heim til borgaiinnar og fylgið hjálparliðinu, eftir, þá finnið þið höllina.“ Að svo mæltu steig Bjamharður prins á bak hesti sín- um og reið greitt áleiðis til borgarinnar, og Hróðmar kon- ungur fylgdi með á stóra hestinum sínum. „Þú segist heita Bjamharður og vera prins. Engan hef ég séð þinn líka að afli og hreysti, nema einn,“ mælti tröllvaxni maðurinn dapurlega. „Hver er sá,“ spurði Bjamharður, sem grunaði þó, að hér væri kominn heljarkarlinn, faðir Valdimars prins. „Hann heitir Valdimar og er eldri sonur minn. Sé hann á lífi, verður hann konungur. Ég segi þá af mér konung- dómi strax ef ég finn hann.“ Þeir voru komnir heim að borginni og riðu sem leið lá til hallarinnar. Lífvarðarforinginn kom á vettvang. Hann sá þegar á svip prinsins, að eitthvað hafði komið fyrir. Hermenn- imir störðu undrandi á stórvaxna manninn, sem var í fylgd með prinsinum. Trúnaðarþjónn prinsins kom og bauð þjónustu sína. „Heyrðu, Hróar,“ mælti prinsinn. „Farðu með þennan mann inn í einkaherbergi mitt í höllinni, þangað kemur enginn nema ég. Þjónaðu honum vel og útvegaðu honum mat og drykk. Hann þarfnast hvors tveggja. Ég þarf að sinna öðru. Kem eins fljótt og ég get.“ Er prinsinn hafði sett lífvarðarforingjann inn í málið, var hjálparsveit send eftir sjúka manninum, varin af flokki alvopnaðra hermanna, því prinsinn treysti ekki fylgdarmönnum Vála. Taldi þá ótrygga, fyrst þeir gáfu sig að illverkum og létu siga sér til hefndarverka. Að þessu loknu gekk prinsinn til íbúðar sinnar. Þar Heima er bezt 381

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.