Heima er bezt - 01.11.1977, Blaðsíða 27

Heima er bezt - 01.11.1977, Blaðsíða 27
Ekki er vert að yrkjum vér um annara orð né verk, þó miður virðist merk. Bernsklega einatt börnum fer, börn eru allir menn svo var og verður enn.“ Hér var enn vitnað til ummæla Daða fróða Níelsson- ar. Lagvísir hafa vafalaust fundið út að við vísu séra Jóns má nota títtnefnt tvísöngslag. En hvað skyldi það nú vera sem Jón Hákonarson á við þegar hann talar um „Hólma grút“ í kvæði sínu? Enn skal vitnað til ummæla Daða fróða um Sæmund prest Hólm og mun þá mörgum finnast sem Daða að undarlegar hafi verið athafnir klerks: „Síra Sæmundur var gildur meðalmaður á vöxt og stinnvaxinn, ekki fríður sýnum að sögn, sómdi sér þó allvel, ljósgulur á hár og rétthærður, tók ákaflega nef- tóbak, hafði allatíð góða heilsu, og það eignaði hann laugun þeirri sem hann brúkaði jafnan, og svo var háttað: Hann safnaði keitu í stóra lagartunnu ög lét stækna þar svo árum skipti. Síðan kastaði hann þar ofan í blautri há, með öllu hári, af skjóttri meri er hann átt hafði og kallaði Dontu. Þetta ker lét hann standa hjá sæng sinni og byrgði vandlega að ofan og hélt vel hreinu að utan. Kallaði hann það ýmist pontuna sína eða blessaða kyrnuna sína og vildi enga manneskju láta við því hreyfa, laugaði sig oft í því, en ekki þótti fólki þægilegur þefur af honum verða á eftir....“ Einhverra hluta vegna var þessi sérvitri hæfileika- klerkur í hávegum hafður hjá Bjarna Thorarensen sem orti um hann fagurt og frægt minningarljóð, þar sem finna má eftirfarandi ljóðlínur: Hví var hugvitsmaður heimskur talinn, og aðra elskanda unnt af svo fáum? Hví var hann hrekkvísra og heimskra skotmál, og fal að hjarta snúið þá faðm hann bauð? Því var Sæmundur á sinni jarðreisu oft í urð hrakinn út úr götu, því hann batt eigi bagga sína sömu hnútum og samferðamenn. Hér spyr Bjarni og svarar, eins og svo mörg skáld á eftir honum, þegar þeim hefur fundist að einhver hæfileikamaðurinn hafi ekki notið þess álits sem honum bar í lifanda lífi. En við þessu eru til ósköp mannleg svör sem alltaf verða til staðar, en verða ekki tíunduð hér. Sem skáldi leyfist Bjarna Thorarensen að spyrja svona, en saga hans kennir að æði oft var grunnt á mild- inni og umburðarlyndinu hjá honum sjálfum viðvíkjandi öðrum hæfileikamönnum þegar hann settist í sæti dómar- ans eða siðapostulans. Um það mætti nefna mýmörg dæmi. En hvað Sæmund Magnússon Hólm snertir, þá mætti ímynda sér að mörgum nágrannanum hafi verið það ljúfara að hafa samskipti við sléttmálan aula en illa þefjaðan snilling sem var svo orðhvass í ofanálag. Þess verður þó að geta, svo ekki hallist á í frásögninni, að mörgu sóknarbarni séra Sæmundar var fremur hlýtt til hans. Hve margir lesenda þessa þáttar skyldu kannast við nafn skáldkonunnar frá Klömbrum í Reykjadal, Guð- nýjar Jónsdóttur? Þingeyingar vilja eigna sér hana og hafa ýmislegt til síns máls, því meðal þeirra dvaldist hún hluta úr ævi og þar urðu höfuðljóð hennar til. Sam- kvæmt málvenju var hún þó eyfirðingur bæði að ætt og uppruna og blönduð sunnlensku blóði. 1 bókum er hún sögð fædd að Auðbrekku í Hörgárdal árið 1804. Þetta tel ég ekki vera rétt, heldur mun hún vera fædd að Saurbæ í Eyjafirði 21. apríl 1804, en var flutt í reifum að Auðbrekku fæðingarárið þar sem faðir hennar, Jón Jónsson, gerðist þá klerkur í Möðruvalla- plássinu með búsetu þar. Séra Jón Jónsson var merk- isprestur og jafnframt snjall læknir og hefur íslensk læknastétt heiðrað nafn hans með því að setja það í Læknatalið. Séra Jón hefur oft verið kenndur við Grenjaðarstað í Þingeyjarsýslu, sem og sum börn hans, en þangað fluttist hann á efri árum, dvaldist þar lengst í prestsstarfinu og þar andaðist hann háaldraður. Undanfarið hef ég verið að glugga svolítið í æviferil sonar hans, Björns, sem betur er þekktur sem Norðan- fara-Björn, og í þessu grúski uppgötvaði ég fæðingar- stað Guðnýjar. Mér til ánægju hef ég svo rekist á um- mæli Hildar systur hennar sem staðfesta niðurstöður mínar. Lesendur þessa rits munu vonandi fá að kynn- ast því á sínum tíma hversvegna foreldrar Guðnýjar frá Klömbrum, Jón Jónsson og Þorgerður Runólfs- dóttir, áttu heima í Saurbæ framanaf ári 1804. En nóg um þetta í bili. Skáldskapur Guðnýjar frá Klömbrum vakti strax at- hygli manna. Meira að segja Fjölnismönnum fannst það tilhlýðilegt að birta ljóð eftir hana og höfðu þeir þó uppi annað kveðskaparviðhorf en þá var almennt viðurkennt. 21. ágúst árið 1827 giftist Guðný Sveini nokkrum Níelssyni sem gerðist djákn hjá föður hennar á Grenj- aðarstað. Hún festi mikla elsku við þennan mann og þau bjuggu saman í átta ár og eignuðust börn sem mesta merkisfólk er komið út af. En þá yfirgaf Sveinn konu sína öllum að óvörum og settist að í Húnavatnssýslu, giftist þar öðru sinni og gerðist prestur. f því hjóna- bandi eignaðist hann einnig börn. Hjúskaparslit þessi ollu Guðnýju miklum sársauka Heima er bezt 375

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.