Heima er bezt - 01.11.1977, Síða 8
JÓHANNES ÖRN JÓNSSON:
Nokkur Kelstu og fágætustu
fornaldarnöfn áricí 1703
■ —^ ftir að ég las hina miklu og fróðlegu ritgerð hr.
—j Gils Guðmundssonar um mannanöfn í „Heima
er bezt“ datt mér í hug að kynna lesendum
' þessa heimilisrits fágætustu mannaheiti, sem
koma fram við allsherjarmanntalið 1703, því að tiltölu-
lega fáir munu eiga þá fræðasyrpu. Fór ég því lauslega
gegn um manntalsbókina og tíndi upp úr henni þau
karla- og kvennaheiti, sem mér fannst að hér gætu kom-
ið til greina. Sleppti með öllu óþjóðlegum nöfnum,
sem allvíða finnast, en kappkostaði að halda til skila
fágætustu fornaldarnöfnum, einkum þeim, sem nú
munu fágæt eða finnast trautt, að því er ætla má, svo
sem: Tindur, Hafur og Loðinn. Þau fundust ekki 1855,
né 1910, hvað sem nú er.
Aftur á móti tel ég ekki fáein nöfn, sem 1703 voru
mjög algeng, þótt nú séu þau fát'ð, svo sem: Brandur,
Illugi og Ormur. Þeim nöfnum hríðfækkaði eftir 1703,
svo nærri stappaði útrýmingu.
Ég skal geta þess hér að árið 1703 sjást fáein spor
eftir góð og gild fornaldarheiti sem þá eru nýlega
horfin. Ég man eftir þessum í svip: Tanni í Borgar-
fjarðar eða Mýrasýslu, Úlfhéðinn í Rangárvallasýslu
og suður í Hraunum, sennilega komið upphaflega frá
Úlfhéðni Þórðarsyni á Stað í Grindavík, sem mikil
ætt er frá, m. a. Stóru-Brekkuætt í Fljótum. Enn má
telja Otkels nafn syðra og Þorljóts í Múlaþingi. Kolli
er einstætt nafn 1703 (eystra), en litlu fyrr hefur það
tíðkast í Skagafirði — Fljótum eða Sléttuhlíð.
Ekki eru öll nöfn, sem hér verða talin, mjög fágæt,
miðað við allt landið, þótt meiri hluti þeirra sé það.
Sumar sýslur eru svo snauðar af fátíðum fornaldar-
nöfnum að maður er eiginlega neyddur til að taka þar
nöfn, sem ella hefði verið látin eiga sig, eins og sést
bezt á þessu yfirliti.
Nú geta lesendur „Heima er bezt“ athugað, hver í
sínu byggðarlagi, hver af nöfnum þessum muni lifa
enn í dag, eftir því sem þeim er kunnugt. Mættu þeir
gjarna til fróðleiks í efni þessu senda „Heima er bezt“
stuttar skrár um fátíðustu fornaldarheiti, sem þeim
væru kunn, svo lauslegt yfirlit gæti fengist um þau
víðs vega um landið. Gæti það orðið betra en ekkert,
þótt vanskil yrðu óhjákvæmilega. Skrár um manna-
heiti á landi hér hafa víst ekki verið prentaðar síðan
Mannanafnaskrá hagstofunnar var gefin út fyrir réttri
hálfri öld.
GULLBRINGUSYSLA
Karlaheiti: Arnkell, Árviður, Ásgautur, Beinir, Bjarn-
héðinn, Gamli, Grettir, Haukur, Hildibrandur, Hólm-
fastur, Hólmsteinn, Húnbjörn, Húni, ísólfur, Kálfur,
Lýtingur, Núpur, Oddleifur, Skeggi, Stígur, Sölmund-
ur, Þórálfur, Þórhalli, Önundur.
Kvenmheiti: Arnheiður, Hallvör, Hergerður, Hún-
björg, Iðunn, Jódís, Ljótunn, Sólvör, Védís, Þórarna,
Þórelfur.
KJÓSARSÝSLA
Karlaheiti: Ásgautur, Haukur, Hjálmur, Semingur,
Steini, Steinólfur.
Kvemiaheiti: Álöf, Eyvör, Gyðríður, Hugborg, Inga,
Jóreiður, Oddgerður.
BORGARFJARÐARSÝSLA
Karlaheiti: Arnljótur, Áki, Álfur, Dagur, Eilífur,
Eyleifur, Hallsteinn, Haukur, Hávarður, Hrafn, Kár,
Loðinn, Lvtingur, Styr, Þórhalli.
Kvennaheiti: Aldís, Álfdís, Álfhildur, Álöf, Bóthild-
ur, Eyvör, Úlfdís, Úlfheiður, Védís, Æsa.
MÝRASÝSLA
Karlaheiti: Ámundi, Dagfinnur, Gils, Hallsteinn,
Hildibrandur, Sverrir, Vermundur.
Kvennaheiti: Bjartey, Dómhildur, Ljótunn, Ráðhild-
ur. Æsa.
SNÆFELLSNESS-
OG HNAPPADALSSÝSLA
Karlaheiti: Arnoddur, Bassi, Búi, Greipur, Hallvarð-
ur, Hreggviður, Kár, Kolbjörn, Ljótur, Már, Oddi,
Starri, Steinolfur, Styr, Svartur, Tjörvi, Tyrfingur,
Þorleikur, Özur.
Kvenmheiti: Brynhildur, Geirr'ður, Gunnfríður,
Halldís, Herborg, Herþrúður, Járnþrúður, Katla, Sig-
urdrífa, Þjóðhildur, Þórelfur.
DALASÝSLA
Karlaheiti: Ásvaldur, Eldjárn, Eyleifur, Hrómundur,
Skeggi, Sturlaugur, Svarthöfði, Tindur.
Kvennaheiti: Geirþrúður, Iðunn, Mildríður, Unnur.
BARÐASTRANDARSÝSLA
Karlaheiti: Borgar, Greipur, Leifur, Oddgeir, Sem-
ingur, Styrkár, Svartur, Úlfur, Valdi (2), Þorleikur.
Framhald á bls. 371.
Jöíi lieima er bezt