Heima er bezt - 01.11.1977, Page 17

Heima er bezt - 01.11.1977, Page 17
Bodin-kirkja. gestum sínum gömlu sóknarkirkjuna, Bod'n kirkju, sem þegið er með þökkum. Skammt frá kirkjunni er stór kirkjugarður, er vekur athygli vegna sérstaklega góðrar umgengni, og gildir það sama um alla grafreiti, sem séðir voru í þessari ferð. Grafir ekki upphlaðnar, því er reiturinn aðeins slétta, þéttsetinn bautasteinum, án grinda eða tildurs í kring. Letur fornra steina virtist endurskyggt. Hér var auðséð ræktarsemi sýnd löngu gengnum feðrum og mæðrum. Sá hluti garðsins, sem lá fram með veginum var hlaðinn úr grjóti og þakinn grassverði. Gengið var til kirkju, sem er byggð á 12. öld hlaðin úr múrsteini með geysi þykkum veggjum, eða um tveggja metra þykk- um. Fyrstu gluggar kirkjunnar voru aðeins 25 til 30 cm breiðir því var kirkjan mjög dimm. En um árið 1600 voru gluggar kirkjunnar færðir í þá stærð sem þeir hafa í dag. Sóknin, sem er geysistór, nær yfir 6440 ferkílómetra, og er eldri en þessi kirkja, og vitað er að hér var áður guðshús byggt á sama stað. Um 1700 jókst fólksfjöldinn í sókninni svo mikið að kirkjan var stækkuð til suðurs. Þetta síðuskip kallast enn „nýja kirkjan“ þó það sé um 200 ára gamalt. I einn vegg þess er greyptur legsteinn frá 1666, sóknarprestsins Hans Lauritson Blix, er gaf altaristöfluna í kirkjuna, er var sett upp 1667. Altaristaflan er sérstætt listaverk og einn af merkustu gripum Noregs. Þar er einnig altarisborð með þykkri marmaraplötu talið frá árinu 1300. Það er einnig predikunarstóllinn frá 1650. Árið 1753—54 eru þessir fornu dýrgripir endurmálaðir af þýskfæddum manni Gottfried Ezechill, letur allt af ekta gulli gert, eða silfri. En verkið kostaði eða greiddi N. Chr. Friis biskup. Gömlum bónda verður hér margt að undrunar- efni, er hann lifir sögu feðra sinna í þessu æfaforna en veglega húsi, og ekki er það á hans færi að lýsa þeim tilfinningum, sem hrærðust í brjósti hans þar sem hann stóð á kirkjugólfinu með húfuna í hendinni við hlið Rolf Stóver. En auðséð var að báðum var þessum fjar- skyldu frændum þetta heilög stund. Og ekki hefur honum verið fjárvant, honum séra Blix, þegar hann gaf altaristöfluna til kirkju sinnar. En hvað þetta listaverk kostaði í þá daga fæst ekki svar við. Sóknarpresturinn í Bodín var einnig kannski við dómkirkjuna í Niðarósi og bjó þar mestan hluta af árinu, en þessari stóru sókn þjónað af kapelánum. Ljúfar stundir líða fljótt, áfram verður að halda og nú til kaupstaðarins Bodp. Héraðið er 864 km2 að stærð með 31.100 íbúa og Bod0 fékk kaupstaðarréttindi 1816. Á árunum 1860—70 stækkaði bærinn mjög ört, á síldar- árunum, er hún næstum óð á land upp. Síðan hefur vöxtur bæjarins verið hægari og jafn. Að því hefur stuðlað góð höfn, góð fiskibátaútgerð, vegir, jám- brautarstöðin og flugvöllurinn og hafa hjálpast við að skapa nýtískulegan fiski- og verzlunarbæ. 1940 voru í Bod0 720 hús. En 27. maí brunnu 420 þeirra í loftárás Þjóðverja. Elliheimili og sjúkrahús sluppu við tortímingu vegna staðsetningar utan við bæinn og fólk flýði til skógar. Eftir stríðið var bær- inn endurreistur, og vöxtur hans verið ör s'ðan. Hluti aðalgötu bæjarins er aðeins göngugata. Þar er stór blómasölu-skáli, sem tengdasonur Stóver hjónanna rek- ur, og dóttir þeirra er þar við afgreiðslu og er kvnnt fyrir Flóabónda, skipst er á hlýju brosi. Ungu hjónin reka gróðurhús sunnan Bod0. Er það hitað með olíu, en ekki borgar sig að rækta tómata við þær aðstæður, aðeins blóm, sem hér eru seld, og einnig send til og seld á fjarlægari stöðum bæði sunnar og allt norður í Tromsö. Frú Stóver og bóndakonan dveljast hjá blómunum, meðan Rolf sýnir bónda það sem hann fýsir að sjá. Víðar en á íslandi finna menn til skyldunnar, því banki bændanna er valinn til að fá peningum skipt og þar seldar ávísanir. Næst er gengið til mjólkurbúsins. Þang- að eru bílar að koma hlaðnir mjólkurbrúsum, sem raðað er í stóra, jámslegna kláfa, sem komið hafa með skip- um frá eyjum og víkum. Þessum kláfum er skipað út og upp með véla-afli og raðað á bílpallana, en þaðan fara brúsarnir á færiband við stöðvarvegg, er flvtur þá að mjólkurvigtinni. Einnig eru tankbílar í flutningum, þróun til nvrra atvinnuhátta. Bodin-kirkja séð aö innanveröu. Heivta er bezt ‘565

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.