Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1988, Side 27

Heima er bezt - 01.04.1988, Side 27
kvæntist hann bróðurdóttur Sesseliu, sem hét Guðrún. Pabbi fæddist síðan 1852, og síðar áttu þau Ásmund, Þór- arin og Sesseliu, sem var yngst. Afi dó frá þeim ungum 1866, þá var pabbi tæplega 14 ára, en þá voru eldri bræðurnir farnir að heiman og vinnuhjúalaust, svo að hann varð að taka við öllu. Eftirfarandi sögu sagði pabbi mér: Hann var sendur í göngur upp að Hofteigi, þvi að þá var siður að reka haga- lömb og geldfé þ.e. sauði og geldar ær upp á Jökuldal. Þar eru góðir hagar. Margir Úttungumenn voru komnir saman í Hofteigi, og áttu þeir að ganga Jökuldalsheiði daginn eftir. Þetta var á sunnudegi. Þá held ég að séra Þorvaldur Ásgeirsson hafi verið þar prestur. Þeir sátu á rúmum í baðstofunni en prestur gekk um gólf, fer hann nú að tala um það, að það sé nú vit að senda 14 ára unglinga upp á Jökuldalsheiði. Pabbi, sem var fljótur að reiðast, ætlar að þjóta upp og verða vondur, en nágranni hans kippti í buxurnar og segir: „Ja, ekkjan í Gunnhildargerði hafði nú ekki nema fyrirvinnuna sína að senda í göngurnar“. Þá þagnaði prestur og gekk út, en pabbi hét því, að hann skyldi ekki verða eftirbátur þeirra karlanna. Pabbi giftist mömmu 1882 og hafði verið fyrirvinna heimilisins frá því afi dó 1866, og alllöngu áður en hann gifti sig hafði hann alveg tekið við búinu. Það eru eftirmæli um pabba bæði í Óðni og Austra eftir nágranna hans, Jón Jónsson á Nefbjarnarstöðum. Ég held það sé ofsögum sagt, sem segir þar að pabbi hafi reist baðstofuna og öll útihús á einu ári. Ég held það hafi verið alveg ómögulegt. Pabbi var kannski ekki neinn sérstakur smiður, en hann tindaði samt allar hrífurnar, en ég held hann hafi fengið bakkaljáinn annars staðar, en þó var hann stundum að dunda við það. Það var margt, sem hann gerði í smiðjunni. Allt var slegið með orfi og ljá, það lét pabbi vinnu- mennina og kaupamenn gera. Hann sló aldrei sjálfur, þoldi það ekki fyrir gigt eftir að ég man eftir mér. Þó byrjaði hann æfinlega sláttinn sjálfur og sló þá kraga kringum bæinn. Þetta var eiginlega siður. Pabbi var þrekmenni mikið og fór allar kaupstaðarferðir sjálfur. Á haustin lét hann náttúrlega alltaf vinnumennina reka fé til Seyðisfjarðar og lóga því. Það voru bara sauðir, því að hagalömbin voru fóðruð, þau voru svo lítil, þó var einhverju af þeim lógað heima svo sem 2-3 í kæfu. Lambakjöt var aldrei saltað, það var að vísu borðað en þótti svo rýrt, að það var ekkert notað að ráði. Saltkjötið var af sauðum og geldum rollum. Pabbi var heilsutæpur seinni árin, og vann þá við að lagfæra og dytta að og sjá um húsin. Hann var eiginlega útslitinn fyrir aldur fram, og það er líklegast að veikindi hans hafi stafað af því. En engu að síður fór hann allar lestaferðir og bar baggana af túninu á bakinu upp í hlöðurnar. Hann bar þá í stiga upp í kúa- og hestahlöðuna. Það var þrekvirki. Ég man eftir því, þegar hann var orðinn lasinn, að hann lét okkur setja baggana upp á þúfu, þar settist hann undir þá. En áður var hann vanur að slengja þeim upp á herðarnar. Pabbi vann ekki innanhússtörf önnur en gera við amboð og þessháttar. Verkaskiptingin milli kynjanna var skýr. Ég Hl'ONIN BiiJ!UiJ!Lrr«i3an ■Tif íJLULiíi áíiliiiG 6UE55U Legsteinn Gunnhildargerðishjóna, Guðrúnar og Sigmundar. afsagði að þjóna nokkrum manni, nema pabba og Sigfúsi bróður mínum, hann var svo ungur. En þá var siður að draga plöggin af körlunum og hafa til sokkana þeirra brotna á hæl, svo að þeir gætu komist í þá, þegar þeir kæmu frá fénu. Pabbi minn var á undan í mörgu, þó að hann væri ekki menntaður. Hann hafði reynslu og náttúrugreind. Hann var svo fljótur að reikna í huganum, að enginn hafði roð við honum. En hann skrifaði lítið. Auðvitað skrifaði hann nafnið sitt, en hann hafði venjulega mann til að skrifa fyrir sig. Systur mínar gerðu það seinna, og við yngri systkinin eftir að við lærðum að skrifa. Pabbi hafði aldrei gengið í skóla, hann hafði aldrei tíma til þess. Ég átti skrifað sveitakvæði eftir Þórarin, yngri bróður hans, það brann hjá mér á Bergstaðastræti 70. Ég átti stóra krukku, sem ég geymdi ýmislegt í, sem pabbi hafði gefið mér, eins og til dæmis uppskriftir af búinu, þegar hann tók við. Þetta brann allt. Þórarinn var yngstur bræðranna og hann vildi allt fyrir hann gera. Þórarinn dó ungur. Á tímabili var ósköp um það, að fólk færi til Ameríku. Það þorði enginn að koma til pabba og „agentera“ fyrir slíkum ferðum. Hann var á móti Ameríkuferðum. Og ég fann að hann hafði skömm á séra Jóni Bjarnasyni frá Dvergasteini, sem „agenteraði“ afskaplega mikið og fór til Ameríku og varð mætur maður. En pabba fannst þetta vera landráð og það hvarflaði aldrei að honum að fara. En mig langaði til að fara til Ameríku, þegar ég var krakki. En það voru engin efni til, og ég ekki nógu dugleg til að drífa mig, þegar ég varð eldri. Enda gilti það allt að einu. Heima er bezt 135

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.