Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1988, Síða 30

Heima er bezt - 01.04.1988, Síða 30
elskaði hann ennþá og þráði hann oft. Hann hafði verið henni ósköp góður, en það var allt saman leikur af hans hálfu. Núna væri hann kominn heim í faðm eiginkonunnar og sonar síns. Aumingja konan hans, hugsaði Rut. Hún heldur að hann sé henni trúr, af því að hún veit ekki betur. Ef ég væri nógu illgjörn myndi ég komast að heimilisfangi hennar og skrifa henni bréf um hegðun Hlyns. En ég skal ekki verða til þess að særa konuna. Hún hefur ekkert gert mér. Ég vona bara að hún komist að því fyrr en seinna hvernig eiginmaður hennar er. Æi, hugsaði hún. Ég má ekki hugsa um hann. „Jæja,“ sagði Lilja og lagði símtólið niður. „Þá er málinu reddað. Nú þarf ég að hringja í Elvar. Hann tekur íbúðina ábyggilega fegins hendi.“ Rut virti hana fyrir sér. Hún var eitthvað svo breytt. Undanfarinn mánuð hafði hún haldið sig heima þegar hún var ekki að vinna. Hún var hætt að fara á böll og það var eins og hún hefði misst allan áhuga á karlmönnum. Hún eyddi frístundum sínum með Rut og reyndi á allan hátt að gleðja hana. Það var eins og hún vildi allt fyrir hana gera. Rut virti hana stundum fyrir sér svo lítið bar á, og fannst hún vera þjökuð af einhverri byrði. Hún vissi ekki hvort það var sektarkennd eða eitthvað annað, en Lilja hafði þungar áhyggur af því. Stundum fannst henni Lilja ekki geta horfst í augu við sig og hélt að það stafaði af vor- kunnsemi. Kannski vorkenndi Lilja henni svona mikið að hún gat ekki afborið að sjá sársaukann í augum hennar. En hún gat ekki skilið þennan sektarsvip, sem einstaka sinnum brá fyrir á fallegu andliti vinkonu sinnar, þegar hún hélt að enginn sæi til. Rut vildi ekki hnýsast í einkamál Lilju og spurði hana því aldrei hvað væri að. Ef hún vildi segja frá því myndi hún gera það ótilkvödd. Það vissi hún af fenginni reynslu. Lilja iðraðist gerða sinna svo mikið, að hún var að sligast undan sektarkenndinni. Hún hafði ekki gert sér grein fyrir því, hvað afbrýðisemi hennar og illgirni ættu eftir að leiða af sér. Hún hafði átt von á því að Rut jafnaði sig fljótt, en eftir því sem vikurnar liðu og hún varð daprari og niður- dregnari, fór Lilju ekki að verða um sel. Hún skildi það núna hvað hún hafði gert. Hún hafði komið illa fram við Rut, sem aldrei hafði gert henni annað en gott. Rut kallaði hana vinkonu sína og trúði henni fyrir einkamálum sínum. Það var orðin henni kvöl að horfa framan í Rut. Hún reyndi að friða samvisku sina með því að eyða öllum sínum frístundum með Rut og reyna að gleðja hana á allan hátt, en ekkert dugði. Hún reyndi að segja Rut frá gerðum sín- um, en missti alltaf kjarkinn, þegar á átti að herða. Svo datt henni í hug að kannski myndi þeim líða betur ef þær skiptu um umhverfi. Hún fylgdist því vandlega með öllum íbúð- arauglýsingum og í gær hafði hún séð auglýsinguna frá Svan. Hún hafði hringt strax og í dag hafði hún dregið Rut með sér að skoða íbúðina. Núna voru þær búnar að ákveða að flytja og hlökkuðu báðar til. Þegar Lilja hafði lokið samtalinu við Elvar, settist hún hjá Rut. „Þau ætla að taka íbúðina,“ sagði hún ánægð. „Eigum við þá ekki að flytja sem fyrst? Við getum pakkað öllu smádótinu niður núna.“ „Jú, við skulum byrja strax,“ sagði Rut. „Ég ætti kannski að hringja í Val og Þröst og biðja þá um að hjálpa okkur.' Pabbi lánar þeim áreiðanlega sendiferðabílinn.“ „Gerðu það,“ sagði Lilja. „Ég byrja að pakka niður. Ég næ í kassa niður í geymslu meðan þú hringir." Þær létu ekki sitja við orðin tóm. Lilja sótti ótal kassa niður í geymsluna, sem fylgdi íbúðinni og Rut hringdi í bræður sína. Þeir voru fúsir til að flytja dótið þeirra og sögðust koma eftir litla stund. Þröstur þurfti að sækja sendiferðabílinn niður í fyrirtækið. Hún hjálpaði Lilju að pakka niður. Þær voru rétt hálfnaðar þegar bræðurnir birtust í dyr- unum. Þeir byrjuðu að bera húsgögnin niður í bílinn, en Rut og Lilja hömuðust við að tína allt smádótið niður í kassana. Þegar Þröstur og Valur fóru af stað með fyrsta flutning- inn, hringdi Lilja í Svan og bað hann að hleypa þeim inn í íbúðina. Á meðan bræðurnir voru í burtu, luku þær vin- konur við að pakka niður. Nú var ekkert eftir í eldhúsinu, nema borðið og stólarnir sex, svo og ísskápurinn. í bað- herberginu beið þvottavélin eftir því að verða flutt. Stofan var tóm að öðru leyti en því, að nokkrir kassar stóðu þar. Rut og Lilja drógu svefnbekki sína í inn í stofu til þess að flýta fyrir flutningnum. Einhvern veginn komu þær skrif- borðunum sínum þangað líka. Meðan þær köstuðu mæðinni, komu flutningamennirnir þeirra. Þeir báru húsgögnin niður í bílinn og Lilja og Rut kassana á eftir þeim. í þriðju ferðinni tóku þeir svo það sem eftir var í íbúðinni. í leiðinni komu þau við hjá Elvari og afhentu honum lyklana, svo að þau Lóa gætu flutt þegar þau vildu. Klukkan var orðin tvö um nóttina þegar flutningnum lauk. Rut þakkaði bræðrum sínum fyrir og sagðist bjóða þeim í mat einhvern tíma sem þakklæti og borgun fyrir hjálpina. Þeir voru ánægðir með það og buðu síðan góða nótt. Þær vinkonur ætluðu að ganga frá dótinu daginn eftir, en svefnbekkjunum komu þær fyrir í sitt hvoru herberginu og lögðust þreyttar og ánægðar til svefns. Þær vöknuðu eldsnemma á sunnudagsmorgninum og byrjuðu að koma sér fyrir. Um hádegið höfðu þær gengið frá mestu og tóku sér matarhlé. Rut útbjó fljótlegan há- degisverð og síðan luku þær við að ganga frá í íbúðinni og um tvö leytið var allt komið í röð og reglu. Þær settust inn í stofu og Lilja setti plötu á plötuspilarann, en þær höfðu ekki notið tónlistarinnar lengi, þegar dyrabjallan hringdi. „Hver getur þetta verið?“ spurði Lilja undrandi og gekk til dyra. Fyrir utan stóð Svanur Orrason, eigandi íbúðarinnar sem þær leigðu. Hann brosti glaðlega og spurði hvort hann væri að trufla. Lilja neitaði því og bauð honum inn. „Ég ætlaði bara að vita hvort þið væruð búnar að koma ykkur fyrir,“ sagði Svanur brosandi. „Hvernig líkar ykkur íbúðin?" „Okkur líkar hún vel,“ sagði Lilja og dró hann inn fyrir. 138 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.