Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1988, Síða 35

Heima er bezt - 01.04.1988, Síða 35
Bókahillan Steindór Steindórsson frá Hlödum merkileg saga, sem marga hefði fýst að heyra meira um. Og vafalítið hefir verið fengur í þeim köflum, sem sleppt hefir verið, því að Jónas var hispurslaus í um- ræðu um menn og málefni. Barátta hans og störf að náttúrulækningum eru alþjóð kunn. Bókin er fróðleg og víða skemmtileg, einkum þar sem Jónas segir sjálfur frá og má þar nefna Ferðasöguna með Steingrími lækni Matthíassyni. Jón Gísli Högnason: URÐARBÚINN Akureyri 1987. Bókaforlag Odds Björnssonar. Hér bregður Gísli Högnason sér á nýtt svið frá æfiþáttum og ferðasögum, en kemur fram á sviðið með barnasögu um unga telpu og tófuyrðling, sem hittast þar sem stelpan situr hjá kvíám föður síns. Hvolpur- inn Kátur kemur líka við sögu. Sagan er vel sögð og hefir höf. komist furðulangt í að leiða fram viðbrögð og skynjan urðarbú- ans unga og lítt sjálfbjarga, og ólikur er Gísli öllum þorra landsmanna í því, að hann hefir fulla samúð með urðarbúanum. Eg er ekki viss um hvort þessi saga höfðar til nútímakynslóðar, en mikið hnossgæti hefði hún verið mér og mínum jafnöldrum, þegar við vorum ung. En hver sem smekk- urinn er, þá er þetta góð lesning stálpuð- um krökkum. Hún vekur samúð og skilning á náttúrunni, lifandi og dauðri. Og vissu- lega er hún hentari barnshuganum, en margt það, sem fengið er bömum og ungl- ingum til afþreyingar. Þorsteinn Einarsson: FUGLAHANDBÓKIN Rvík 1987. Örn og Örlygur. Vorið nálgast. Farfuglarnir koma, heima- fuglarnir búa sig til hreiðurgerðar, og loftið fyllist lifi og söng. En mannfólkið vill gjarna vita deili á þessu fuglafólki, sem það er í sambýli við, en þeir em margir, sem þekkja aðeins mjög fáa fugla, og handhæga fugla- skoðunarbók hefir vantað, þótt nokkrar ágætar bækur séu til um íslenska fugla. Bók sú sem hér um ræðir er því hinn mesti happafengur öllum þeim sem vilja sjá og skoða náttúru landsins, hvort heldur er til lands eða sjávar og jafnvel ekki síst gesti, sem slæðast heim undir húsvegginn. Höf- undurinn, Þorsteinn Einarsson íþróttafull- trúi er vafalaust einn hinn fuglafróðasti nú- tíma íslendingur og hann hefir fremur öðru lært sína fuglafræði af því að skoða fuglana í náttúmnni allt frá ungum aldri, og veit því manna best, hver einkenni eru best til þess fallin að nafngreina fuglana úti í náttúmnni, hvort heldur þeir eru á flugi, sundi, vappi eða sitja á grein eða þúfu. I bókinni er lýst öllum íslenskum varpfugl- um, far- og vetrargestum auk allmargra sjaldgæfra gesta, eða 110 tegundum alls. Lýsingarnar eru að vísu stuttar en gagn- orðar og skýrar, auk þess er skýrt frá hag- lendi og meginstöðvum hverrar tegundar, hreiðri, hljóðum og hátterni ýmsu, er kenna má fuglinn á. Litmyndir eru af öllum teg- undum, en auk aðalmyndarinnar fjöldi smámynda af ýmsum stellingum, einstök- um líkamshlutum o.fl. sem auðkenna fuglinn. Allt virðist það svo skýrt sem best má verða og geta komið hverjum heil- skyggnum manni að gagni. En vitanlega er sama að segja um þessa bók sem aðrar slíkar, að fyrst verður fyllilega dæmt um kosti hennar og galla, þegar á hólminn er komið, þ.e. út í náttúruna. Flokkun fugl- anna er handhæg t.d. allir sjófuglar í einum flokki, og hefði ef til vill mátt ganga lengra í þá átt að flokka fuglana eftir aðalheim- kynnum þeirra, þótt þeir séu síður en svo staðbundnir. Ágætar nafnaskrár eru í bók- inni m.a. nöfn fuglanna á 9 tungumálum auk íslensku og latínu. Sitthvað fleira mætti nefna. En í stuttu máli sagt er þetta falleg bók, fróðleg og handhæg, og hvers er hægt að krefjast meira. En ef til vill er mesti kostur hennar sá að hún vekur menn og laðar til að fara út í náttúruna og skoða eitt af mörgum undrum hennar, sem fugla- lifið vissulega er. Kristján Karlsson: KVÆÐI 87 Rvík 1987. Almenna bókafélagið. Kristján Karlsson lætur skammt stórra höggva á milli í kvæðagerð. Síðast gaf hann út Kvæði 84, og nú fyrir síðustu jól þessa bók: Kvæði 87. Það er ekki létt verk að skrifa um kvæði Kristjáns. Myndimar í þeim eru svo margvíslegar og oft sundur- leitar, svo að lesandinn ruglast í ríminu við að finna hvað sé að baki. En það er heldur ekki aðalatriðið, heldur hvernig kvæðin orka á lesandann, en það verður að segjast eins og er, að kvæði Kristjáns eru gædd einhverju seiðmagni, sem fær mann til að njóta þeirra og lesa þau aftur og aftur og sifellt koma fram nýir fletir. Þetta er styrkur þeirra, en ef til vill fylgir honum sá veik- leiki, að lesandinn vanræki að lesa þau nógu vel. Eitt það, sem mér fannst ein- kenna þessi nýju kvæði Kristjáns eru litirn- ir. Það eru áreiðanlega ekki mörg þeirra, sem ekki minnast á liti. Blátt og rautt er það sem mest gætir. En með þessum hætti leiða kvæðin mann ósjálfrátt til að hugsa þau sem málverk. En hversvegna er skáldið að skjóta erlendum setningum inn í kvæði sin, meira að segja eru lokaorðin á ensku? Mér þykir þetta sem svartur blettur á tungu, en kannske kemur þar til fákunnátta mín. Vilhjálmur Hjálmarsson: MJÓFIRÐINGA SÖGUR - Fyrsti hluti Rvík 1987. Menningaisjóður. Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrv. ráðherra hef- ir gerst allmikilvirkur sagnaritari eftir að hann dró sig í hlé úr orrahríðum stjórn- málanna. Sagnaritun sína hóf hann með skemmtilegum minningum úr ráðherrastól, síðan fylgdi saga Eysteins Jónssonar í þrem bindum, og nú hefir hann tekið til við sögu heimabyggðar sinnar, og mun hún áætluð þrjú bindi. Þetta fyrsta bindi fjallar aðallega um frændur og nánustu forfeður höf., sem lengstum hafa setið á höfuðbólinu Brekku í Mjóafirði, þar sem til hefir orðið eina þorpsmyndun í firðinum, miklu mest fyrir athafnasemi þeirra frænda. En jafnframt því að sitja jörð sína og reka stórbúskap voru þeir forystumenn í sjósókn, og atvinnuþróun byggðarlagsins varð mjög undir handarjaðri þeirra með verslun og útgerð, sem skapaði Brekku- þorpið. I þessu bindi er sögð merkileg atvinnusaga en margt hefir gerst annað tíðinda í Mjóafirði, þótt byggðarlagið hafi aldrei verið fjölmennt. En þótt fróðlegt sé að kynnast byggðarsögunni, er þó áhuga- verðara að komast í kynni við þá menn, er söguna sköpuðu, en margir hafa þeir verið miklir persónuleikar að allri gerð, dugmiklir og framsýnir. Slikum mönnum er alltaf gaman að kynnast af greinagóðri frásögn. Margt verður lært af æfi þeirra og störfum. Hvað sem nútíma sagnfræðingar segja um þróun sögunnar verður því aldrei neitað, að það eru mennirnir og athafnir þeirra, sem setja svipinn á söguna en ekki fram- talsskýrslur og línurit. Það er ekki vanda- laust að skrifa um náin ættmenni, eins og Vilhjálmur hefir hlotið að gera, og tekst honum furðuvel, að láta ættartengsl ekki glepja sér sýn, þótt vitanlega hefðu óskyldir ritað söguna frá öðru sjónarhomi. Og víst er um það, að náin kynni hans af ættmennum sinum og athöfnum þeirra ásamt heilbrigðu ættarstolti og samúð hafa gert bókina áhugaverðari og lífmeiri, en ef ókunnur fræðimaður hefði lagt þar hönd að verki. Öll frásögn Vilhjálm er létt og læsi- leg, og er fullvíst, að þetta fyrsta bindi af Mjófirðinga sögu vekur forvitni lesandans um framhaldið. Heimaerbezt 143

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.