Heima er bezt - 02.10.1993, Page 6
GUÐMUNDUR JÓNSSON
OG ÞORGEIR GUÐLAUGSSON:
HESTAR OG MENN 1993
í bókinni segir frá hestamönnum og hest-
um þeirra í ferðalögum og keppni hér-
lendis og erlendis. Viðtöl við sýningar-
menn og ræktendur, bæði íslenska og er-
lenda. Frásögn af ferð tveggja kunnra
hestamanna um byggðir og óbyggðir
Vestur-Skaftafellssýslu. Saga fjórðungs-
móta í Norðlendingafjórðungi í máli og
myndum. Frásagnir af helstu mótum
sumarsins og skrá yfir úrslit þeirra. Bókin
er prýdd fjölda Ijósmynda, bæði lit-
myndum og svarthvítum, auk teikninga.
Bók nr. 10 Heb-verð kr. 2970
HAFDÍS L. PÉTURSDÓTTIR:
í VIÐJUM VÍMU
OG VÆNDIS
Hér er sagt frá ótrúlegri lífsreynslu ungrar
íslenskrar konu, Matthildar Jónsdóttur
Campbell. Tuttugu og eins ár fór hún af
landi brott og ætlaði að höndla hamingj-
una með manninum sem hún elskaði, en
örlögin urðu önnur. Hún leiddist út í eitur-
lyfjaneyslu og vændi. Hún hefur gengið í
gegnum vítisloga í mörg ár og meðal
annars vaknað í líkhúsi þar sem hún
hafði verið úrskurðuð látin. Hún var tilbúin
að gera allt fyrir heróínið. Af óútskýran-
legum ástæðum tók hún sjálf þá ákvörð-
un einn daginn að reyna að hætta. Það
var ekki auðvelt og hún segir frá öllum
martröðunum sem hún gekk í gegnum og
fær jafnvel enn í dag. Henni tókst smátt
og smátt að vinna sig út úr brjálæðinu.
Nú starfar Matthildur í undirheimum
Chigago-borgar og aðstoðar þá sem eru
djúpt sokknir í eiturlyfjum.
Bók nr. 11 Heb-verð kr. 2545
( O’RAK ROI.ÍíI'
■ K \\ III \ I
CORAL POLGE OG KAY HUNTER:
LIFANDI EFTIRMYNDIR-
SAGA TEIKNIMIÐILS
Coral Polge hefur óvenjulega náðargáfu.
Þar sem flestir hefðbundnir skyggnilýs-
ingamiðlar lýsa gestum sínum að handan
stígur hún í raun einu skrefi framar og
teiknar á pappír eftirmyndir af þeim sem
hún er í þannig sambandi við, ættingjum
hinna brottfluttu til mikillar undrunar. Coral
Polge er mörgum íslendingum að góðu
kunn og eiga þeir margir slíkar miðils-
myndir eftir hana í fórum sínum en Coral
hefur heimsótt ísland nokkrum sinnum við
góðan orðstír. Fyrir þá, og alla aðra, sem
áhuga hafa á að kynnast ferli einstaks
miðils og sérstakri og áhrifamikilli aðferð
hans til sönnunar á lífi eftir dauðann, er
mikill fengur að þessari bók.
Bók nr. 12 Heb-verð kr. 2545
------IIANDBÚK SKJALDBOKCM1 (M-
GRÓÐUR
í HEIMAHÚSUM
UVDDEiWiGAR (W RAXWN OG MEHfERÐ STOnnAXniA I HEiMiillÚSLM Ofí MXMASKÁUW
DAVID SQUIRE OG
NEIL SUTHERLAND:
GRÓÐURí
HEIMAHÚSUM
Bókin er alhliða leiðarvísir um val og kaup
á stofuplöntum og umönnun þeirra.
Spennandi upplýsingar og leiðbeiningar
um fjölgun plantna. Kaflar um vatnsrækt-
un, gróðurker, dvergtré og kryddjurtir.
Sagt frá vinsælustu tegundunum og af-
brigðum í máli og myndum. Fjallað er um
meindýr og sjúkdóma stofuplantna og
meðferð þeirra. Bókin er glæsileg í útliti,
hundruð litmynda fylgja frásögn og skýr-
ingum.
Bók nr. 13___Heb-verð kr. 2365
JILLIAN STEWART:
STÓRA KÍNVERSKA
MATREIÐSLUBÓKIN
Glæsilegasta bók um kínverska mat-
reiðslu sem gefin hefur verið út á íslandi. í
Bókaskrá