Heima er bezt - 02.10.1993, Side 21
ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR
er Patti, lítill íkorni, og án hans vill Þyrill
ekki fara í ferðalagið. En hann er ekki
einn um þá ánægju. Benna, leikfélaga
hans, þykir líka vænt um litla íkornann,
enda er hann raunverulegur eigandi
hans... Nú hefst barátta þeirra leikfélag-
anna um yfirráðin... Sagan er létt og
skemmtilega skrifð.
Bóknr.2101 Heb-verð kr. 300
CHRISTINE VON HAGEN:
DRENGURINN FRÁ
ANDESFJÖLLUM
Hann er lítill en hnellinn strákur, dökk-
hærður og brúnn á hörund og var hjá afa
sínum. Afi hans bjó einsamall í kofa uppi í
Andesfjöllum. Mannaferðir voru ekki tíðar
þangað upp eftir. Þó fór múldýrarekinn
Ernesto þar um öðru hvoru með múldýra-
lestina sína og voru það hátíðar- og gleði-
dagar í lífi litla snáðans. í einni heimsókn
hans réðust örlög drengsins. Hann ætlaði
að fara til borgarinnar með múldýrarekan-
um og leita uppi foreldra sína. Gamli
maðurinn var slyngur hattagerðarmaður
og drengurinn hafði lært þá list af honum.
Hann hafði gert einn fallegan hatt, sem
hann ætlaði að selja í borginni. Það var
aleiga hans og farareyrir. Margt á eftir að
drífa á daga litla drengsins frá Andesfjöll-
unum.
Bók nr. 2102 Heb-verð kr. 250
NIGEL TRONTER:
SPÁNSKA EYJAN
Sól og sumar... Eyðiey og sokkið skip í lít-
illi vík... Orðspor um falinn sjóræningja-
fjársjóð... Þrír unglingar, ein stúlka og
tveir drengir, með froskmannsbúninga og
ýmsan búnað til rannsókna... Getið þið
hugsað ykkur ákjósanlegri stað fyrir þá,
sem eru í ævintýraleit, en þetta yndislega
sumarland...
Bóknr.2103 Heb-verð kr. 300
GREY OWL:
ÆVINTÝRI SAJO LITLU
Þetta er saga sem mun hrífa alla lesend-
ur, sem unna dýrum og hinni frjálsu nátt-
úru. Lýsingarnar á því þegar Negik, solt-
inn og grimmur otur, rauf stíflu bjóranna,
litlu ungunum tveimur, sem flúðu hræddir
og hjálþarvana, en komust í fóstur til
Sajo, litlu Indíánastúlkunnar, eru skráðar
af furðulegum manni, sem þekkti lifnaðar-
hætti dýra og manna á þessum slóðum
svo vel, að ekkert gerist með ólíkindum.
Bóknr.2104 Heb-verð kr. 300
DORITA FAILIE BRUCE:
DÓRA FLYST
í MIÐDEILD
Sagan gerist í heimavistarskóla fyrir ung-
ar stúlkur. Dóra er komin í miðdeild
ásamt stöllum sínum, þeim Rósamundu,
Möllu, Eiríku og Sjönu, en þæreru aðal-
manneskjurnar í leynifélagi í skólanum og
drífur margt á daga þeirra. Þær lenda í
ýmsum ævintýrum og er samstaðan ákaf-
lega traust hjá þeim. Þessi bók er sérlega
vel skrifuð og efnismikil, persónur eru
margar og mikið gerist í stórum skóla, þar
sem stúlkur á ýmsum aldri eru aðalsögu-
hetjurnar.
Bóknr.2105 Heb-verð kr. 300
TVÖ ÆVINTÝRI
í þessu hefti eru tvö ævintýri, Galdranorn-
in og töfrastafurinn og Friðrik og Katrín.
Hefti nr. 2106 Heb-verð kr. 100
TÖFRASKIPIÐ
Gamalt ítalskt ævintýri.
Hefti nr. 2107 Heb-verð kr. 100
W.P. HERZOG:
MEÐ ELDFLAUG TIL
ANNARRA HNATTA
Vinirnir Mikael og Taluga fljúga í geimfari
til plánetunnarTatans. Þar kynnast þeir
heimi, sem stendur jörðinni miklu framar
að menningu. Þar er búið í kúluhúsum,
ferðast í flugbílum, borgað með orkuein-
ingum í stað peninga og vélmenni þjóna
þar. Styrjaldir eru ekki lengur háðar þar.
Furðuheimur, líf á fjarlægri stjörnu.
Skyggnst inn í framtíðina. Mun slík þróun
nokkurn tíma eiga sér stað á jörðinni?
Bók nr. 2108 Heb-verð kr. 300
INGEBRIGT DAVIK:
MUMMI OG JÓLIN
Mummi er 6 ára drengur, sem á heima í
Landey, nokkuð stórri eyju, ekki langt
undan landi. Hann er einkabarn foreldra
sinna, sem búa í Nesi, en pabbi hans er
sjómaður. Amma hans á heima í Brekku-
bæ, en Magga leiksystir hans á Vita-
tanga, hinum megin vogsins. Um þessi jól
drífur margt á daga Mumma litla.
Bóknr.2109 Heb-verð kr. 300
E. STREIT:
RIKKI FLUGSTJÓRI
Rikki er flugstjóri hjá „Round the World
Airlines" og flýgur Boeing-þotunni Bjarna
Wilhelm í áætlunarflugi frá New York til
New York, umhverfis jörðina. Fyrst verður
vart truflunar á sjálfstýritækjum vélarinn-
ar. Rikki lítur á hana sem viðvörun eða
fyrirboða einhvers annars alvarlegra. Á
leiðinni frá Fairbanks til Tókíó verður bilun
í loftþrýstiútbúnaði flugvélarinnar. Bæði
áhöfn og farþegarfá háloftaveiki vegna
þess að andrúmsloftið er of þunnt. Rikki
áttar sig á síðustu stundu og steypir flug-
vélinni niður í þéttari loftslög. Nú hefst tví-
sýn barátta áhafnarinnar við að reyna að
halda flugvélinni á lofti eins lengi og unnt
er. Skyldi þeim takast að komast alla leið
til Tókíó, eða verða þeir að nauðlenda
flugvélinni einhvers staðar á hafinu?
Bók nr. 2110 Heb-verð kr. 300
ÝMSIR HÖFUNDAR:
JÓLALÖG OG SÖNGVAR
UMSJÓN JÓN STEFÁNSSON
Þessi bók inniheldur allmörg jólalög og
söngva sem börn læra auðveldlega. Til
þess að auka ánægjuna fylgja nótur öll-
um söngvum sem birtir eru í bókinni.
32 bls.
Bók nr. 2111 Heb-verð kr. 780
Bókaskrá
21