Heima er bezt - 02.10.1993, Side 23
GUÐMUNDUR FRIMANN:
ÞANNIG ER ÉG
VILJIRÐU VITA ÞAÐ
„...þegar ég neitaði öllum játningum gerði
Mundi Björns sig líklegan til að fremja
þennan voðaverknað, tók mig fangbrögð-
um og dró mig að einni beljunni. En heið-
ur minn var í húfi. Hefði nafna mínum frá
Veðramóti tekist þessi ómannúðlega að-
för í Skarðsfjósinu hefði það sennilega
verið í fyrsta og eina skipti sem upprenn-
andi skáld á íslandi var hengt í kýrhala."
Bók nr. 3001 HEB-verð kr. 600
ÓLAFUR JÓNSSON:
STRIPL í PARADÍS
Það hefur lengi verið á vitorði æði margra
að Ólafur Jónsson ætti í fórum sínum
handrit að smellnum sögum. Þetta vissu
þeir sem heyrt höfðu Ólaf lesa eins og
eina þeirra upp á mannamótum, kannski
á slægjuhátið í sveit, kannski á Austfirð-
ingamóti í norðlenskum bæ.
Bók nr. 3002 HEB-verð kr. 300
BIRGITTA HALLDÓRSDÓTTIR:
DÆTUR REGNBOGANS
Birgitta er orðin þekkt meðal íslenskra
lesenda fyrir spennubækur sínar. í þess-
ari bók þar sem hjátrú og hindurvitni ráða
ríkjum, er lesandanum boðið í ferð til for-
tíðar. Sagan er hlaðin spennu, dulúð og
rómantík. Hún lýsir á berorðan hátt marg-
háttuðum tilfinningum sögupersónanna
og heldur lesandanum föngnum.
Bóknr.3003 HEB-verð kr. 1690
ÞRAINN BERTELSSON:
SIGLA HIMINFLEY
Sigla himinfley er skáldsaga sem gerist í
Vestmannaeyjum. Viðhorf gamalla og
nýrra tíma takast á. Undiralda sögunnar
skolar á land gömlum, óútkljáðum málum
1 sem ekki verður lengur umflúið að leiða til
lykta. Samkvæmt sígildri, íslenskri frásgn-
arhefð er sögumaður nafnlaus, ferðast
um að tjaldabaki og bregður upp myndum
af fólki og atburðum sem eiga sér fyrir-
myndir í íslensku þjóðlífi í þúsund ár.
Þetta skáldverk Þráins Bertelssonar er í
senn uppgjör og sáttargjörð persóna og
kynslóða, listilegur skáldskapur, en um-
fram allt skemmtileg lesning.
Bók nr. 3004 HEB-verð kr. 2455
ÞORSTEINN STEFÁNSSON:
FRAMTÍÐIN GULLNA
Þessi íslenska skáldsaga á sér nokkuð
óvenjulegan feril. Höfundurinn, Þorsteinn
Stefánsson, hefur verið búsettur í Dan-
mörku um langt árabil og þar kom bókin
fyrst út. Hlaut hún hinar bestu viðtökur og
höfundurinn var heiðraður með H.C. And-
ersen bókmenntaverðlaununum. Næst
' var bókin gefin út í Englandi af hinu
heimskunna bókaforlagi Oxford Uni-
versity Þress og hlaut ágæta dóma. Það
er því fyllilega tímabært að íslenskir les-
endur fái að kynnast þessari ágætu
skáldsögu á móðurmáli höfundar.
236 bls.
Bók 3005 HEB-verð kr. 250
SOFFÍA JÓHANNESDÓTTIR:
HÆTTULEGT
HLUTVERK
Soffía Jóhannesdóttir sendi frá sér sína
fyrstu bók, „Örlagarík ákvörðun," fyrir
nokkru. Bókin fékk góðar viðtökur hjá les-
endum og varð það hvatning til hins nýja
höfundar um að halda áfram á sömu
braut. Þessi bók er spennandi og bráð-
skemmtileg aflestrar.
Bók nr. 3006 HEB-verð 400
BIRGITTA H. HALLDÓRSDÓTTIR:
ÁTTUNDA
FÓRNARLAMBIÐ
I Sagan gerist í Reykjavík og á Vestur-
landi. Eins og í fyrri bókum Birgittu
blómstrar ástin hjá sögupersónum þess-
arar bókar, en það er ekki friðsamlegt
| eða átakalaust í kringum þá ástarelda.
Hvað eftir annað er lífsdansinn háður á
ystu nöf hins mögulega, þarsem enginn
fær séð hvort fram undan er líf eða dauði.
Atburðarásin er hröð og hugmyndaflug
höfundar með ólíkindum.
Bók nr. 3007 HEB-verð kr. 675
BIRGITTA H. HALLDÓRSDÓTTIR:
DAGAR HEFNDARINNAR
Birgitta Halldórsdóttir hefur þegar unnið
sér sess á íslenskum bókamarkaði. Þetta
er sjötta bók hennar. Áður eru út komnar:
Inga, Háski á Hveravöllum, Gættu þín
Helga, í greipum elds og ótta og Áttunda
fórnarlambið. Birgitta er viðurkennd sem
einn helsti spennubókahöfundur landsins.
174 bls.
Bók nr. 3008 HEB-verð kr. 675
BIRGITTA H. HALLDÓRSDÓTTIR:
SEKUR FLÝR ÞÓ
ENGINN ELTI
Birgitta H. Halldórsdóttir er tvímælalaust
einn fremsti spennusagnahöfundur lands-
ins og sendir hér frá sér sjöundu bók
sína. Hvers vegna er Bragi kominn að
i Sjávarbakka, nýsloppinn af Hrauninu, eft-
! ir að hafa setið inni fyrir morð? Hver er
þessi Viðar með marglitu augun sem
j Stella á svo erfitt með að standast?
{ Stöðug spenna þar til yfir lýkur, því sekur
I flýrþó enginn elti.
Bók nr. 3009 HEB-verð kr. 675
BIRGITTA H. HALLDÓRSDÓTTIR:
MYRKRAVERKí
MIÐBÆNUM
„Ég er hrædd og ég veit ekki mitt rjúkandi
ráð. Það hafa verið framin tvö morð með
( stuttu millibili hér í Reykjavík. Morð, sem
| allir telja að séu skýranleg dauðsföll. Hið
{ fyrra var haldið að væri sjálfsvíg en það
síðara slys. Ég er hrædd því að ég veit
að morðinginn gengur laus og hefur
næsta fórnarlamb í sigtinu. Ég óttast að
j áður en yfir lýkur komi röðin að mér...“
Bóknr.3010 HEB-verð kr. 675
Bókaskrá
23