Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1993, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 02.10.1993, Blaðsíða 28
ÍSLENSKAR SKÁLDSÖGUR GUÐMUNDUR JÓNSSON: FRÍÐA í STJÓRNARRÁÐINU Guðmundur Jónsson er sjálfstæður rithöf- undur og fer sínar eigin götur. Sögur hans eru misjafnar og um margt ólíkar verkum yngri höfunda. Stundum tekst honum svo vel að jafna má við það besta í smásagnagerð okkar. Má í því sam- bandi benda á söguna í þessari bók er ber heitið „Ólyktin í kvennaskólanum." Hún gæti vel verið eftir Maupassant. Þið getið sjálf sannfærst um þetta, þegar þið lesið bókina. Bók nr. 3054 Heb-verð kr. 150 GUÐMUNDUR JÓNSSON: HANN BAR HANA INN í BÆINN í bókinni eru 10 smásögur. Brot úr einni þeirra: „Þótt Þórhallur gegndi ekki öðrum opinberum störfum en hreppstjórninni, var það ekki fyrir það, að hann helst vildi vera laus við slíkt. Nei, síður en svo. Allir, sem þekktu hann, vissu, að honum mundi ekkert vera kærara en að taka að sér op- inber störf, ef hann ætti kost á því. Þegar hann fórtil Reykjavíkur, sem ekki kom svo sjaldan fyrir, sagði hann frá því, þeg- ar hann kom heim, að hinir og þessir þjóðkunnir menn í höfðustaðnum, sem hann nafngreindi, hefðu verið að spyrja sig um það, hvort hann yrði ekki í kjöri við næstu alþingiskosningar. En enginn vissi til, að nokkur maður hefði spurt hann um það heima í sýslunni eða óskað eftir, að hann yrði það...“ Bók nr. 3055 Heb-verð kr. 300 STEINUNN EYJÓLFSDÓTTIR: HIN GÖMLU KYNNI OG FLEIRI SÖGUR í þessari bók eru nokkrar smásögur skrif- aðar á liðlegu máli og hinar þægilegustu aflestrar. Bók nr. 3056 Heb-verð kr. 300 HERSILÍA SVEINSDÓTTIR: VARASÖM ER VERÖLDIN í bókinni er að finna nokkrar smásögur höfundar. í umsögn Guðmundar G. Hagalín um bókina segir m.a.: „Sagan Gæfuspor er best formuð af sög- unum í bókinni og persónurnar í henni, gömlu hjónin og drengurinn, eru Ijóslif- andi, ekki síst gamli maðurinn, hinn hrika- legi en síglaði skilningsríki dýra- og mannvinur, Þorgeir trölli. Þæreru raunar fleiri, persónurnar, sem sögukonan gæðir eftirminnilegu lífi og má þar nefna til dæmis Björn í „Enginn veit hvað undir annars stakki býr“ og hinar gerólíku kon- ur, Guðfinnu og Hildi, í seinustu sögunni. Sögukonan er því ekki aðeins glögg á gerð manna, heldur hefur ótvíræða hæfi- leika til persónusköpunar og oft eru sam- tölin í bókinni sérkennandi og eðlileg...." Bók nr. 3057 Heb-verð kr. 300 MARGRÉT JÓNSDÓTTIR: SÖGUR ÚR SVEIT OG BORG Sögurnar í þessu safni gerast margar í sveit og lýsa því lífi og leikjum sveita- barna og samskiptum þeirra við náttúr- una, dýr og fólk. Má búast við, að ýmis- legt komi ókunnuglega fyrir sjónir barna og unglinga nútímans. Útgáfuár: 1968 Bók nr. 3058 Heb-verð kr. 300 ODDNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR: SKULD Úr ritdómum um sögur höfundar: „Allt sem frá hennar hendi kemur í rituðu máli ber vitni ágætri athyglisgáfu. Höfund- urinn sér oft atburði í tvenns konar Ijósi, þjóðfélagslegu og ævintýralegu, og bregður tíðum yfir frásögnina léttu háði.“ „Sagan ber með sér mikla glöggskyggni á hið smæsta í hátterni manna og við- brögðum og bregður oft fyrir markvissri hnyttni í lýsingum, sem stundum stappar nærri kaldhæðni." Útgáfuár: 1967 Bók nr. 3059 Heb-verð kr. 300 KONUNGSSKUGGSJÁ Konungs skuggsjá er nafntogað rit, sprottið úr hinum frjóa jarðvegi norrænnar menningar á blómaskeiði hennar á 13. öld. Hún er einnig eitt hinna örfáu norsku rita, sem varðveist hafa. Konungs skugg- sjá birtist hér með nútíma stafsetningu öll- um þorra lesenda til hægðarauka. Bók nr. 3060 Heb-verð kr. 850 SÉRSTAKUR PÖNTUNARSEÐILL \ FYLGIR BÓKASKRÁNNI / \ ■■■■■■ ^ Merkið númer, heiti og verð bókanna / inn á pöntunarseðilinn og setjið í póst sem^^^^/ fyrst, svo bækurnar berist í tæka tíð. Bókaskrá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.