Heima er bezt - 02.10.1993, Page 31
ÞÝDDAR SKÁLDSÖGUR
HOWARD FAST:
í SKUGGA OFSÓKNA
Þessi bók er eftir höfund bókanna um
Innflytjendurna sem náðu miklum vin-
sældum hér á landi sem annars staðar.
Howard Fast skrifar hér um MacCarthy-
ismann og ofsóknir á hendur fjölda
þekktra manna á þeim tíma. Söguhetjan
er stríðsfréttaritari sem er ofsóttur af ráða-
mönnum í Washington. Howard Fast var
einmitt einn af þeim er ofsóttir voru og sat
í fangelsi ásamt mörgum fleirum. Hann
þekkir því sögusviðið af eigin reynslu.
Bók nr. 4024 HEB-verð kr. 400
MARTIN ANDERSEN NEXÖ:
PELLI SIGURSÆLI
Með hinu mikla skáldverki um Pella sigur-
vegara, sem kom út á árunum 1906-
1910, skipar danski rithöfundurinn Martin
Andersen Nexö sér á bekk með fremstu
rithöfundum þessarar aldar. Sagan um
Pella fjallar um framsókn öreigans til
bættra lífskjara og byggir á bernsku-
reynslu höfundarins sjálfs. Hún er að
margra áliti ein af markverðustu öreiga-
lýsingum heimsbókmenntanna ásamt
öðrum stórverkum þessa höfundar, svo
sem Dittu mannsbarni og sjálfsævisögu
hans. 278 bls.
Bók nr. 4025 HEB-verð kr. 2690
MARTIN ANDERSEN NEXÖ:
PELLI SIGURSÆLI II
UNGLINGSÁR
í öðru bindi hins mikla skáldverks síns um
Pella sigursæla segir höfundurinn frá
unglingárum drengsins. Pelli hefur hleypt
heimdraganum, erfloginn úr hreiðrinu hjá
Lassapabba í fjósinu á stórbýlinu Steina-
gerði. Heimurinn erekki auðsigraður.
Pelli fer í skósmíðanám og kemst að raun
um að skepnuskapur mannanna bitnar á
mörgum og ekki síst saklausum sveita-
dreng. 246 bls.
Bók nr. 4026 HEB-verð kr. 2690
MARTIN ANDERSEN NEXÖ:
PELLI SIGURSÆLI
BARÁTTAN MIKLA
Þetta er þriðja bindið í þessu þekkta rit-
verki Nexö um Pella sigursæla. Pelli hef-
ur átt erfiða ævi í uppvexti og er nú orðinn
fullvaxta. f þessari bók er Pelli að kynnast
erfiðleikum þeirra fátæku á vinnumarkað-
inum. Verkalýðsbaráttan er á frumstigi og
leiðist hann inn í þá baráttu. Hann verður
formaður í verkalýðsfélagi en á ennþá í
erfiðri baráttu við sjálfan sig, uppalinn í
því umhverfi þar sem reynt var að kenna
honum undirgefni við þá sem valdið hafa.
Hann brýst úr fjötrum því þrátt fyrir til-
hneiginguna til undirgefni hefur ekki tekist
að brjóta niður sterka tilfinningu hans fyrir
réttlæti. Ritverk Nexö á ekki síst erindi til
nútímafólks sem ekki þekkir þá baráttu
sem háð var og lagði grunn að því samfé-
lagi sem það lifir í. 322 bls.
Bók nr. 4027 HEB-verð kr. 2690
MARTIN ANDERSEN NEX0
MARTIN ANDERSEN NEXÖ:
PELLE SIGURSÆLI IV
DÖGUN
Dögun er fjórða og síðasta bindið af höf-
uðverki danska rithöfundarins Martins
Andersen Nexö um Pella sigursæla, bók-
menntaverki sem tvímælalaust ber að
flokka með stærstu og merkilegustu
skáldritum heimsbókmenntanna á sínu
sviði, þ.e. baráttu alþýðunnar til efnislegra
framfara og andlegs þroska. Þetta bindi
hefst á lausn Pella úr áralangri fangelsis-
vist, þar sem hann hafði afplánað refsi-
dóm fyrir „peningafölsun,“ tylliástæðu ráð-
andi afla þjóðfélagsins til að kveða niður
rödd sem orðin var óþægur Ijár í þúfu
þeim, sem völdin höfðu og peningana.
Hér er lýst þeim hartnær óyfirstíganlegu
hindrunum sem verða á vegi þess sem
dæmdur hefur verið frá eignum og æru
og þarf að klífa „þrítugan hamarinn“ til að
komast upp í samfélag „heiðarlegs" fólks
að nýju, hamar þar sem hætt er við að
undan hrynji í hverju spori og klífandinn
missi endanlega fótanna og eigi sér ekki
viðreisnar von, eins og svo mörg dæmi
sanna.
Bók nr. 4028 HEB-verð kr. 2455
SVEN HASSEL:
í FREMSTU VÍGLÍNU
Þessi bók gerist í Kákasus, þar sem „Her-
sveitinni" sem við þekkjum af fyrri bókum
Sven Hassel, er falið að njósna um óvin-
ina langt að baki víglínunnar. Þeir eru
klæddir rússneskum einkennisbúningum
og á rússneskum skriðdrekum. Ferðin er
vissulega ekki barnagaman og ef ekki
hefðu verið þessir ódrepandi kunningjar
okkar, þá hefði enginn komið aftur.
Hassel er hér enn með eina magnaða
stríðsbók sem slær í gegn.
Bók nr. 4029 HEB-verð kr. 750
SVEN HASSEL:
GESTAPO
Sven Hassel er sérfróður um styrjöldina
1939-1945, enda sjálfur í þýska hernum
og þá oft í fremstu víglínu. Hér lýsir hann
hinni illræmdu leynilögreglu, Gestapo, og
dregur ekkert undan. Þessi bók er ósvikin
Hassel-bók og ef til vill hans besta. Sven
Hassel er mestlesni stríðsbókahöfundur
allra tíma. 248 bls.
Bók nr. 4030 HEB-verð kr. 750
SVEN HASSEL:
HERSVEIT HINNA
FORDÆMDU
Þetta er frægasta bók Sven Hassel. Hún
fjallar um þýska hermenn sem teknir voru
úr fangelsum í Þýskalandi og sendir til
bardagasvæðanna og beint í fremstu víg-
línu. Öllum var sama um þá. En þrátt fyrir
að þeir hefðu ekki verið til fyrirmyndar á
friðartímum höfðu þeir sál og þeir höfðu
langanir. Þeir ætluðu ekki að drepast án
þess að berjast til síðasta blóðdropa.
280 bls.
Bók nr. 4031 HEB-verð kr. 750
31
Bókaskrá
Bókaskrá
31