Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1993, Side 35

Heima er bezt - 02.10.1993, Side 35
ÞYDDAR SKALDSOGUR Konungs HARRY y-XJ&Á PATTERSON WOHI« Höfundur bókanna: VIÐ RAGNAROK {Harry Patterson) GIMSTEINAR Á GRÆNLANDSJOKLI (Jack Hlggins) ORNINN ER SEZTUR (Jack Higgins) STRÍÐ í STORMI (Jack Higgins) Ad árí lidnu fcemur úf nýjasta bók höfundar: EINLEIKARINN {Jack Higgins) HARRY PATTERSON: KONUNGSRÁNIÐ í júní 1940 komu hertogahjónin af Windsor, fyrrum Játvarður 8. Bretakon- ungur og Wallis Warfield, til Portúgals frá Frakklandi, en þangað hrökkluðust þau, þegar Þjóðverjar sigruðu Frakka. Hitler er þá þegar farinn að undirbúa innrás í Bret- land, en áætlunin um hana kallast Sæljón. í sambandi við innrásina á að fá hertogann af Windsor til að flytja heim til Bretlands og setjast þar í sitt fyrra hásæti með sínu fyrra nafni og fyrri tign. Ekki þykir þó alveg víst að hertoginn sé ginn- keyptur fyrir að gerast handbendi Þjóð- verja, en til þess að tryggja að hann verði tiltækur, þegar á þarf að halda, er ákveðið að honum skuli rænt í Portúgal og hann fluttur til Spánar. Hrein tilviljun veldur því að njósnarar komast að þessri fyrirætlun og ungri stúlku er falið að koma þessari vitneskju til réttra aðila. Þetta er erfitt verkefni en um síðir tekst að gera ráða- brugg Hitlers að engu eftir áhrifamikla og stórbrotna atburðarás. Bók nr. 4061 Heb-verð kr. 900 B. MERCATOR: DRAUMUR PYGMALIONS Sagan gerist á hinni undurfögru eyju Týros við botn Miðjarðarhafs. Á Týros var til forna mikil verslunarborg, auðug og fögur á þeirrar tíðar vísu. Þar rann saman hin ólíka menning frá löndunum í austri og löndunum á Balkanskaga. Á Týros voru ólíkir menningarhættir hinna fjar- lægu landa ofnir saman og þar áttu nýjar stefnur skjól. Lífsskoðanir fólksins mótuð- ust af nýjum anda og ófu saman ólíka þætti, sem urðu sú trú og lífsskoðanir, sem framtíðin gerði að sínum. Þessi er bakgrunnurinn og undirstaðan í hinni fögru skáldsögu Draumur Pygmalions. Sagan gerist á dögum Jesú Krists. í ör- lagavefi sögunnar mótar skáldið margt af því fegursta í kenningum hans. Bók nr. 4062 Heb-verð kr. 300 EVELYN ANTHONY: TAMARINDFRÆIÐ Judith starfaði í aðalskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, þar sem fjallað var um trúnað- armál. Hana grunaði ekki að hinn alúðlegi maður, sem hún hitti í orlofi á Barbados, væri tengdur njósnakerfi Rússa... Þangað til leyniþjónusta Breta varaði hana við og óskaði eftir samvinnu hennar... En Rúss- inn var ekki allur þar sem hann var séður, hann vildi ná sambandi við fleiri en Judith. Bók nr. 4063 Heb-verð kr. 500 WALTER TROBISCH: ÉG ELSKAÐI STÚLKU Þetta er hrífandi og spennandi bók, eins og besta ástarsaga. Hér segir frá raun- verulegu, ungu fólki sem berst fyrir ást sinni. Talað er af hreinskilni um ástina, réttindi hennar og skyldur, um samskipti pilta og stúlkna, o.s.frv. Ótal spurningar vakna og þeim er svarað hóglátlega, en af fullri einurð. Þess vegna er bókin hrein- asta gullnáma, bæði ungu fólki og öllum þeim, sem eiga að leiðbeina æskunni, foreldrum, kennurum og prestum. Bók nr. 4064 Heb-verð kr. 300 IRWINSHAW: GÆFA EÐA GJÖRVILEIKI Höfundur segir eftirfarandi í formála að bókinni: „Venjulega er ekki þörf á formála fyrir skáldsögum, en vegna framhaldsþátt- anna „Gæfa eða gjörvileiki," sem sýndir hafa verið í sjónvarpi, þykir hlýða að taka fram að bók þessi er framhald af fyrri bók- inni, en ekki sjónvarpsþáttunum. Þeir, sem gerðu fyrri sjónvarpsþættina, höfðu til þess fullt leyfi að halda þeim áfram, enda hafa þeir skapað nýjan æviferil Jor- dache-fjölskyldunnar að eigin geðþótta. Vona ég að þetta leiðrétti misskilning þeirra, sem bæði lesa þessa bók og sjá IRWIN SHAW framhaldþættina í sjónvarpi.“ Bók nr. 4065 Heb-verð kr. 400 MABEL ESTHER ALLEN: LEYNDARDÓMURINN í LISTASAFNINU í dag er 1. maí. Miranda er á nítjánda ár- inu og er á leið til Parísar til þess að hitta frænku sína Jane, sem vinnur þar, þegar hún hittir Jonathan Holbrow, sem er 22 ára. Meðan Miranda var barn hafði hún búið með foreldrum sínum í þessari stór- borg vísinda og lista og gat því vand- ræðalaust farið allra sinna ferð. „Randa“ eins og hún er kölluð, átti að hefja nám í Oxford að hausti. En margt getur skeð á Signubökkum og Miranda fór ekki var- hluta af því. Bók nr. 4066 Heb-verð kr. 300 PETER N. WALKER: CARNABY OG STROKUFANGARNIR Það þykir gerast einkennilega oft, að fangar sleppi úr enskum fangelsum og jafnframt er Ijóst að ýmis afbrot eru tengd því. Þess vegna er ákveðið, að Carnaby- King, einn færasti maður Scotland Yard, rannsaki málið og í þeim tilgangi er hann settur í fangelsi. Það líður ekki á löngu, áður en maður, sem Carnaby veit engin j deili á, býðst til að hjálpa honum til að j strjúka. Carnaby þiggur gott boð, en svo vill þá til, að annar fangi notar tækifærið til j að komast einnig undan og þá vandast málið fyrir alla aðila. Bók nr. 4067 Heb-verð kr. 300 Bókaskrá 35

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.