Heima er bezt - 02.10.1993, Blaðsíða 37
CHRISTOPHER ANDERSEN:
MADONNA,
ÁN ÁBYRGÐAR
Þessi bók segir frá lífshlaupi þessarar
þekktu poppsöngkonu og leikkonu. Hún
hefur lifað hátt og fer ekki leynt með það.
Þessi bók var ekki skrifuð í samráði við
hana. Höfundurinn hefur fylgst með
Madonnu lengi og skrifar hér opinskáa
lýsingu á æviferli þessarar umdeildu per-
sónu.
Bóknr.5001 HEB-verð kr. 2110
KJARTAN ÓLAFSSON:
FIMM LANDA FLAKK
Einn víðförlasti íslendingur sem nú er
uppi segir frá ferðalagi og kynnum sínum
af fimm þjóðum, íran, Ceylon (Sri Lanka),
Afganistan, Nepal og Þakistan. Frásagn-
arstíll og einstök snilli í ritun íslensks máls
gerir þessa bók einstaka.
Bók nr. 5002 HEB-verð kr. 2540
BRAGISIGURJÓNSSON:
ÞEIR LÉTU EKKI
DEIGAN SÍGA
Hér er sagt frá nokkrum forystumönnum í
síldarútvegi á árunum 1880-1968. Þeir
sem sagt er frá eru:
Jakob V. Hafstein, Eggert Laxdal, Snorri
Jónsson, Rögnvaldur Snorrason, Ásgeir
Þétursson, Björn Líndal, Valtýr Þorsteins-
son, Ottó Tulinius, Guðmundur Þéturs-
son, Anton Jónsson og Ingvar Guðjóns-
son. Fróðleg bók um merkilegt tímabil í
atvinnusögu landsins.
Bók nr. 5003 HEB-verð kr. 2540
SIMON WIESENTHAL:
RÉTTLÆTI, EKKI HEFND
Það var Wiesenthal nauðsyn að leiða
hina seku fyrir rétt. Ekki af því að hann
hafi verið haldinn hatri og hefndarþorsta,
heldur af því að hann vildi koma fram rétt-
læti fyrir hina látnu, sem lifa stöðugt í
honum og til að réttlæta það að hann
skyldi halda lífi fyrir kraftaverk. Bókin er
ákall til nútímafólks og hrífandi en óvæm-
inn vitnisburður um það sem liggur að
baki starfi hans.
Bók nr. 5004 HEB-verð kr. 2540
RICHARD HILLYARDS:
RASSINN Á SÁMI
FRÆNDA
Lífsreynslusaga Bandaríkjamannsins Ric-
hard Hillyards, friðarsinnans sem gekk í
herinn. Hann hefur frá mörgu að segja og
skefur ekki utan af lýsingum sínum. Hann
hefur ófagra sögu að segja af samskipt-
um sínum við bandaríska herinn þar sem
hann segir hvern mann sleikja rassinn á
næsta manni fyrir ofan í virðingarstigan-
um. í bókinni heldur hann því m.a. fram
að herinn hafi um tíma millilent með
kjarnorkuvopn á Keflavíkurflugvelli.
Hillyard gegndi lengst af stöðu frétta-
manns í hernum og kynntist því ýmsu
sem öðrum er hulið. Hann segir líka frá
uppvexti sínum í Kaliforníu, eiturlyfja-
neyslu hippatímabilsins og fjölmörgu
fleiru. Kímnin skín alls staðar í gegn.
Hillyard er búsettur hérlendis og kvæntur
íslenskri konu. Stórfróðleg bók og bráð-
skemmtileg.
Bók nr. 5005 HEB-verð kr. 2110
ÝMSIR HÖFUNDAR:
BETRI HELMINGURINN
Frásagnir kvenna sem giftar eru þekktum
einstaklingum. Þær sem segja frá eru:
Margrét Björgvinsdóttir, maki Haraldur
Bessason rektor, Hallveig Thorlacius,
maki Ragnar Arnalds alþingismaður,
Ágústa Ágústsdóttir, maki sr. Gunnar
Björnsson, Dóra Erla Þórhallsdóttir, maki
Heimir Steinsson útvarpsstjóri, Þórhildur
ísberg, maki Jón ísberg sýslumaður.
Bók nr. 5006 HEB-verð kr. 2360
DONALD SPOTO:
BLÁI ENGILLINN
Hér er sagt frá lífshlaupi hinnar heims-
frægu leikkonu Marlene Dietrich. Saga
hennar er ekkí alltaf dans á rósum. Hún
flúði föðurland sitt og fór að skemmta
„óvininum.“ Hún var kjarkmikil kona og
ógleymanlegur listamaður.
Bók nr. 5007 HEB-verð kr. 2115
ÖRNÓLFUR ÁRNASON:
LÍFSINS DÓMÍNÓ
Ævisaga Skúla Halldórssonar
tónskálds
Öðruvísi ævisaga. Skúli hlífir sér ekki við
því að fjalla um þau mál sem aðrir leyna
j eða láta liggja í þagnargildi. Forvitnileg er
lýsing hans á heimilisbragnum í húsi
ömmu hans í Vonarstræti 12 þar sem
hann bjó á kreppuárunum og snillingar,
þjóðskáld og ættstór ungmenni sátu að
sumbli í stofum skáldkonunnar þótt sjálf
bragðaði frú Theodóra Thoroddsen aldrei
vín. Ævisaga Skúla Halldórssonar er
saga manns sem þorir að horfast í augu
j við sjálfan sig og efast um eigin hæfileika,
getu og gáfnafar. Hann skoðar umhverfi
sitt og samferðarfólk af sömu hreinskilni
og sjálfan sig.
Bók nr. 5008 HEB-verð kr. 254
ÁSGEIR GUÐMUNDSSON:
EYRNATOG OG STEIN-
BÍTSTAK
Þetta er fyrsta ævisaga dýralæknis sem
kemur út á íslandi. Guðbrandur Hlíðar
! stundaði nám í Danmörku á stríðsárunum
og komst í kast við þýsku leyniþjónustuna
! og varð að sitja í breskum fangelsum
' grunaður um njósnir í þágu Þjóðverja.
Guðbrandur stundaði dýralækningar í
Eyjafirði og í Skagafirði og segir hann frá
reynslu sinni við þau störf. Óvenjuleg lífs-
j reynslusaga athyglisverðs manns.
Bók nr. 5009 HEB-verð kr. 2540
Bókaskrá
37