Heima er bezt - 02.10.1993, Page 38
ENDURMINNINGAR OG ÆVISÖGUR
GUÐNÝÞ. MAGNÚSDÓTTIR:
ÞÓRUNN MAGGÝ
MIÐILSSTÖRF OG VITNISBURÐIR
í formála bókarinnar segir Þórunn Maggý
m.a.:
„...hér er fyrst og fremst um að ræða
þroskasögu mína sem miðils. Einkalíf mitt j
undanskil ég að mestu leyti, nema þegar
það tengist sögu dulrænna hæfileika
minna, til dæmis með því að hafa áhrif til
aukins þroska eða beina mér inn á and-
legar brautir..." Þórunn Maggý segir hér
merkilega sögu sína og ýmsir sem hafa
kynnst henni segja frá reynslu sinni. At-
hyglisverð frásögn af störfum eins
þekktasta miðils á íslandi í dag.
Bók nr. 5010 HEB-verð kr. 2540
þORSTEINN STEFÁNSSON:
HORFT TIL LANDS
Þorsteinn Stefánsson rithöfundur sem
lengstum hefur búið í Danmörku og skrif- |
að bækur sínar á framandi tungum, segir j
í þessari bók sinni nokkuð af athyglis-
verðri ævi sinni. í formála segir:
„Þorsteinn var borinn og barnfæddur árið |
1912 að Nesi í Loðmundarfirði austur, en
sá fjörður er nú kominn í eyði. Lífsbarátt-
an í Loðmundarfirði var hörð í upphafi
þessarar aldar eins og víðast hvar í
dreifðum byggðum íslands og oft skammt j
milli Iffs og dauða. Óhjákvæmilega settu
lífskjörin i uppeldinu sitt mark á allt líf
þess fólks sem kynntist þessari baráttu,
jafnvel þótt því tækist að hefja sig yfir erf- [
iðleikana og sjá þá síðar á ævinni frá
öðru sjónarhorni.“
Bók nr. 5011 HEB-verð kr. 2105
STEINDÓR STEINDÓRSSON
FRÁ HLÖÐUM:
HLAÐIR í HÖRGÁRDAL
Þetta er þjóðháttalýsing frá fyrstu áratug-
um þessarar aldar. Höfundurinn, Steindór
Steindórsson, fyrrverandi skólameistari,
rekur þar daglegt líf á norðlensku sveita-
heimili, þar sem mætast hættir og viðhorf
tveggja alda. Bók þessi hefur fengið mjög
lofsamlega dóma þeirra sem um hana
hafa fjallað í fjölmiðlum og hefur henni
einna helst verið líkt við Þjóðhætti sr.
Jónasar Jónassonar, enda skyld þeirri
bók um efnisval og efnismeðferð.
Bóknr.5012 HEB-verð kr. 650
BJÖRN HARALDSSON:
LÍFSFLETIR
Hér er saga glæsileika og gáfna, mótlætis
og hryggðar, baráttu og sigra. Þessi bók
færir okkur svo sannarlega heim sanninn
um það að manneskjan getur orðið
stærst og sterkust í mótlæti. Bókin fjallar
um Árna Björnsson tónskáld og starf
hans fyrir og eftir fólskulega árás sem á
hann var gerð árið 1952.
Bóknr. 5013 HEB-verð kr. 400
G.J. WHITFIELD:
HÁLFA ÖLD Á
HÖFUM ÚTI
Ein besta sjóferðasaga frá eldri og yngri
tímum. Sigurður Björgólfsson íslenskaði.
Bóknr.5014 HEB-verð kr. 250
GREVILLE WYNNE:
MAÐURINN FRÁ
MOSKVU
Hér er í fyrsta sinn sagt frá einhverju
furðulegasta njósnamáli, sem um getur.
Hersteinn Pálsson þýddi bókina, er hefur
verið metsölubók austan hafs og vestan.
254 bls.
Bóknr.5015 HEB-verð kr. 250
JÓN GÍSLIHÖGNASON:
ÆSKUÁST OG
ÖNNUR KONA
í þessari bók segir frá æsku og uppvaxt-
arárum ungs manns í sveit á íslandi á
fyrri helmingi þessarar aldar, ástum hans
og lífsbaráttu. Þetta er heillandi saga hug-
rekkis, þolgæðis, ástar og drengskapar.
Þetta er 8. bók Jóns Gísla og fyrsta
skáldsaga hans.
Bóknr.5016 HEB-verð kr. 350
JÓN GÍSLI HÖGNASON:
GENGNAR LEIÐIR I
[ Fólkið kemur sjálft til dyranna eins og það
; er klætt og leiftrar af minningabrotunum.
j Sviðið er vítt, en merkastar munu þykja
i frásagnirnar af atvinnu- og búsetuþróun á
Suðurlandi.
Bók nr. 5017 HEB-verð kr. 600
JÓN GÍSLI HÖGNASON:
GEGNGAR LEIÐIR II
Þetta er sjötta bók höfundarins, sem hef-
ur getið sér orð fyrir viðtöl og frásagnir. í
bókinni eru sagnir sjö viðmælenda. Bókin
er 197 bls. með mörgum myndum og ítar-
legri nafnaskrá.
Bóknr.5018 HEB-verð kr. 600
RICHARDT RYEL:
KVEÐJA FRÁ AKUREYRI
Minningar og Ijósmyndir frá Akureyri
Richardt Ryel er fæddur á Akureyri árið
1915, fór ungur að fást við verslunarstörf
á Akureyri en síðar í Reykjavík og Dan-
mörku, þar sem hann er nú búsettur. Hér
skráir hann minningar sínar frá Akureyri
fram yfir seinni heimsstyrjöld. Frásögn
hans er glettin og hlý og hann lýsir mönn-
um og atburðum á lifandi hátt. Bókin er
prýdd fjölda mynda frá gömlu Akureyri,
sem margar eru áður óbirtar og gefa þær
bókinni verulegt gildi. Þessi bók mun ylja
mörgum lesandanum um hjartaræturnar.
Bóknr.5019 HEB-verð kr. 400
ERLINGUR DA VÍÐSSON, ritstjóri:
NÓI BÁTASMIÐUR
Kristján Nói Kristjánsson var í daglegu tali
nefndur Nói bátasmiður. Nói bátasmiður
hefur smíðað fleytur af mörgum stærðum
og gerðum, allt frá jullum og skektum,
árabátum, trillum og mótorbátum upp í
140 tonna fiskiskip.
Bók nr. 5020 HEB-verð kr. 400
38
Bókaskrá