Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1993, Blaðsíða 45

Heima er bezt - 02.10.1993, Blaðsíða 45
ENDURMINNINGAR OG ÆVISOGUR jk dýravinur og náttúruskoðari af lífi og sál. Þá hollu lífsnautn hefur hann haft gott tækifæri til að þroska og glæða með sér á langri ævi, í sambúð við fugla og ferfætt dýr í hinum auðuga dýragarði, sem Breið- fjörður hefur verið og verður vonandi enn um sinn. Átthagafróður var hann í betra lagi. Líka brá hann því fyrir sig að kasta fram stöku, þegar svo bar undir. Um þetta munu menn sannfærast þegar þeir lesa bókina, sem hálft um hálft verður að skoðast sem ævisaga höfundarins, þótt ekki hafi hann hirt svo mjög um að rita hana í hefðbundnum stíl. Bók nr. 5084 Heb-verð kr. 400 HENRY THOMAS: GEORG WASHINGTON CARVER Saga þessi er stutt ævisaga mikilmennis. Georg Washington Carver fæddist í ánauð. Það var árið 1864, en enginn hirti um að skrá fæðingardag hans. Koma hans í þennan heim vakti ekki meiri at- hygli en fæðing kanínu eða íkorna. Þó átti fyrir honum að liggja að verða einn af mestu vísindamönnum og velgerðar- mönnum jarðarinnar. Merkast var starf hans við efnagreiningu jarðhnetunnar. Áður en Carver hóf tilraunir sínar með jarðhnetuplöntuna, var hún álitin gagns- laus til annars en svínafóðurs. En þegar hann hafði lokið tilraunum sínum, hafði hann unnið úr jarðhnetunni 300 mis- mundandi efni, og ræktun jurtarinnar færði bændum Suðurríkja Bandaríkjanna og raunar öllum íbúum jarðarinnar, ómet- anlega blessun. Bók nr. 5085 Heb-verð kr. 300 SIGURBJÖRN ÞORKELSSON í VÍSI: HIMNESKT ER AÐ LIFA II EKKI SVÍKUR BJÖSSI Þetta bindi sjálfsævisögu Sigurbjöms fjall- ar um tímann frá 1907 til 1923, en á þeim tíma gerðust stórir atburðir í lífi íslensku þjóððarinnar og höfundar. Fjöldamargar persónur koma við sögu. Höfundur er, eins og einn þeirra, sem um bókina skrif- uðu, komst að orði, alltaf innan um fólk. Yfir 200 myndir prýða þetta bindi. Bókin verður því mikið heimildarrit, þegar fram líða stundir. Fjallað er um atburðina af miklu fjöri, en höfundi var eiginlegt að fjalla þannig um menn og málefni að gaman er að lesa um þá og þau. Bók nr. 5086 Heb-verð kr. 500 SIGURBJÖRN ÞORKELSSON í VÍSI: HIMNESKT ER AÐ LIFA, III ÁFRAM LIGGJA SPORIN Þetta þriðja bindi hinnar fróðlegu sjálfs- ævisögu Sigurbjörns Þorkelssonar í Vísi nær yfir tímabilið frá 1923 til 1933, og kemur þar fyrir fjöldi persóna og sagt er frá atburðum, bæði í lífi höfundar og einnig úr sögu þjóðarinnar. Þar er sagt frá ferðalögum, bæði á hestum og gangandi. Mörg atvikin voru skemmtileg og brosleg, önnur erfið og óvænt með uggvekjandi tvísýnu. Bók nr. 5087 Heb-verð kr. 500 SIGURBJÖRN ÞORKELSSON í VÍSI: HIMNESKT ER AÐ LIFA IV „ÞÁ MUNAFTUR MORGNA “ Hér birtist fjórða bindi hinnar fróðlegu sjálfævisögu Sigurbjörns Þorkelssonar í Vísi. Segir þar frá atburðum ævi hans að lokinni alþingishátíðinni 1930 og allt að upphafi seinna stríðs. Þó eru atburðirnir ekki alltaf í tímaröð og sumir gerast fyrir 1930. Mikill fjöldi mynda prýðir bókina og fylgja þær yfirleitt efni hennar. Sigurbjörn lýsir samtíðarmönnum á fjörlegan hátt, alltaf er eitthvað að gerast, engum leiðist lesturinn. Bók nr. 5088 Heb-verð kr. 500 SIGURBJÖRN ÞORKELSSON í VÍSI: HIMNESKT ER AÐ LIFA V NÚ DVÍNAR DAGSINS KLIÐUR f þessu fimmta bindi hinnar fróðlegu og bráðskemmtilegu sjálfsævisögu Sigur- björns kennir margra grasa. Sagt er frá stjórnmálabaráttu, bæði þeirri sem fram fór bak við tjöldin og hinni, sem fram fór i fyrir opnum tjöldum. Sagt er frá verslunar- málum, störfum höfundar í niðurjöfnunar- nefnd, fróðlegir kaflar og skemmtilegir eru } um hernámsárin og skipti höfundar við hernámsliðið. Þá er sagt frá sunnudaga- skóla K.F.U.M. og kvöldskóla K.F.U.M. og barnavinafélaginu Sumargjöf. Þættir eru um merka menn, eins og t.d. Bjarna Benediktsson, Jóhannes Kjarval og séra Friðrik Friðriksson, svo og fjölmarga aðra, m.a. ýmsa leikara. Bók nr. 5089 Heb-verð kr. 500 ÆVISAGA HAFSTEINS SIGURBJARNARSONAR REYKHOLTI íHÖFÐAKAUPSTAÐ SKRÁÐ AF HONUM SJÁLFUM í bókinni lýsir Hafsteinn aldarfari og kjör- um íslenskrar alþýöu um síðustu aldamót og á fyrri hluta þessarar aldar af svo mik- illi alúð og samviskusemi að vart er hægt að gera betur. Hann er alinn upp við mikla fátækt, jafnvel á þeirra tíma mæli- kvarða, en með þrotlausri elju og sparn- aði tókst þeim hjónum að komast sæmi- lega af. Bókin er merk aldarfarslýsing og Ijós vottur þess hvern þátt íslensk alþýða á í menningarsögu þjóðarainnar. Bók nr. 5090 Heb-verð kr. 500 Bókaskrá 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.