Heima er bezt - 02.10.1993, Side 48
: TIL FRÓÐLEIKS OG SKEMMTUNAR
HJALTIJÓN SVEINSSON:
í FARARBRODDI
HESTAMENN AF LÍFI OG SÁL
Hér birtast viðtöl við 10 landsþekkta
hestamenn. Það er víða komið við og
margar frásagnanna opna lesendum nýj-
an skilning á lífi þessa fólks. Viðmælend-
ur voru ekki valdir af handahófi, heldur af
vandlega yfirlögðu ráði. í þessum hópi er
fólk sem býr yfir víðtækri reynslu og þekk-
ir tímana tvenna. Það ólst upp á meðan
vinnuhestarnir voru enn við lýði, upplifði
niðurlægingu reiðhestsins þegar bíllinn
gerði innreið sína og hefur síðan unnið að
endurreisn hestamennsku í landinu fram
á þennan dag og haft hestinn í öndvegi í
Iffi sínu.
Bók nr. 6008 HEB-verð kr. 2540
EINAfí INGVIMAGNÚSSON:
DULRÆNN VERULEIKI
í þessari bók er að finna athyglisverðar
frásagnir af dulrænni reynslu fólks. Margir
segja frá, þ.á.m. Eiríkur Kristófersson fyrr-
verandi skipherra, en hann taldi að dul-
ræn reynsla hefði oft komið honum að
miklu gagni í sínu gæfuríka starfi sem
skipherra. Forvitnileg bók um forvitnilega
reynslu.
Bók nr. 6009 HEB-verð kr. 2115
JÓNAS THOfíDAfíSON:
VESTUR-ÍSLENZKAR
ÆVISKRÁR
5. bindi
Með 330 mannamyndum og manna-
nafnaskrá. Ómetanlegur lykill að per-
sónufróðleik og ættfræði.
Bók nr. 6010
HEB-verð_______kr. 1500 settið.
INDFIIÐI INDfílÐASON:
ÆTTIR ÞINGEYINGA
Stórvirki sem áhugafólk um ættfræði hef-
ur fylgst með og fagnað. Sjóður sem
reynast mun dýrmætur ókomnum kyn-
slóðum.
III. bindi
Bók nr. 6011 - HEB-verð kr. 1000
IV. bindi -
Bók nr. 6012 - HEB-verð kr. 1000
JÓDYNUR
Hestar og mannlíf í Austur-Skafta-
fellssýslu. I. bindi.
Þessi glæsilega bók hefur að geyma
greinar Egils á Seljavöllum og Þorsteins á
Svínafelli um ættir og erfðir hrossa og
ræktun hrossa í Austur-Skaftafellssýslu.
Þá eru greinar eftir 13 höfunda um ferða-
lög í byggð og óbyggð, yfir ár og vötn og
margháttaðan annan fróðleik. Ómissandi
bók öllum áhugamönnum um hesta og
þeim sem unna þjóðlegum fróðleik. Bókin
er prýdd fjölda mynda.
Bóknr.6013 HEB-verð kr. 750
JÓDYNUR
Hestar og mannlíf í Austur-Skafta-
fellssýslu. II. bindi.
í þessu bindi Jódyns er fjöldi greina sem
allar eru tengdar hornfirska hestinum og
því nána sambandi sem myndast hefur
milli fólksins og hestsins. Meðal efnis er
grein eftir Egil Jónsson, „Til móts við nýja
öld,“ Þorkell Bjarnason skrifar um ræktun
hornfirskra hrossa, Steinunn B. Sigurðar-
dóttir um Hólahestana, Guðmundur Jóns-
son um Fornustekkahrossin, Steinþór
Gestsson um áhrif hornfirskra hesta á
hrossarækt í Árnessýslu, Úlfar Antonsson
um hesta og fólk í Árnanesi og Óskar
Indriðason um Blakk 129. Þá eru í þessu
bindi fjöldi greina um baráttu manna og
hesta við náttúruöflin og má þar m.a.
nefna íslandsævintýri, sem er ferðasaga
fjögurra enskra vísindamanna á Vatna-
jökul árið 1932, Björgun úr Jökulsá í Lóni
eftir Sigrúnu Eiríksdóttur, Minnisstæð
fjöruferð eftir Sigurð Björnsson, Þorbergur
Þorleifsson eftir Steinunni B. Sigurðar-
dóttur og er þá aðeins hluti greina upptal-
inn.
Bóknr.6014 HEB-verð kr. 750
GUÐMUNDUR ÞOFISTEINSSON
frá Lundi:
ÍSLENZKAR DULSAGNIR
Hér eru skráðar frásagnir af ýmsum dul-
rænum atburðum, sem sannanlega hafa
átt sér stað hér á landi, en erfitt mun að
útskýra með vísindaaðferðum fyrirbæri
eins og framtíðarskyggni, hugsanaflutn-
ing, berdreymi, hugboð og huglækningar,
svo nokkuð sé nefnt. Hér kemur Margrét
frá Öxnafelli víða við sögu, en sem kunn-
ugt er munu ófáir íslendingar telja sig
standa í ómetanlegri þakkarskuld við
Margréti fyrir veitta aðstoð á örlagastund.
Frásögnin er öll fyrirhafnarlaus og blátt
áfram.
Bók nr. 6015 HEB-verð kr. 350
VALGEIfí SIGUFIÐSSON:
UM MARGT AÐ SPJALLA
í þessari bók eru 15 viðtalsþættir:
Einar Kristjánsson, Hannes Þétursson,
Indriði G. Þorsteinsson, Kristján frá
Djúpalæk, Rósberg G. Snædal, Broddi
Jóhannesson, Eysteinn Jónsson, Guðrún
Ásmundsdóttir, Jakob Benediktsson, Sig-
urður Kr. Árnason, Anna Sigurðardóttir,
Auður Eiríksdóttir, Stefán Jóhannsson og
Þorkell Bjarnason.
Bóknr.6016 HEB-verð kr. 400
VALD. V. SNÆVAfífí:
GUÐ LEIÐIR ÞIG
Kristinfræði handa ungum börnum. Bókin
er tileinkuð íslenskum mæðrum, því að
þær hafa „svo öldum skiptir verið fyrstu
kennarar barna í kristnum fræðum."
[ Þrýdd litmyndum. 56 bls.
Bók fób.lnr. 6017
HEB-verð_______________kr. 100
HEfíMANN PÖfíZGEN:
RÚSSLAND
Augu manna hafa beinst að Rússlandi í
æ ríkari mæli og því fengur í því að geta
kynnst þessu landi betur í fróðlegri bók.
Bókin segir hnitmiðað frá höfuðdráttum
þessa þjóðfélags og er nauðsynleg öllum
þeim sem vilja fylgjast með heimsvið-
burðum um þessar mundir. Bókin er í
stóru broti með miklum fjölda mynda. 240
bls.
Bóknr.6018 HEB-verð kr. 350
GUNNAfí M. MAGNÚSS:
LANGSPILIÐ ÓMAR
Þessi skemmtilega bók hefur að geyma
17 bráðsnjallar og sérkennilegar frásagn-
ir.
Bók nr. 6019 HEB-verð kr. 400
48
Bókaskrá