Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1993, Side 49

Heima er bezt - 02.10.1993, Side 49
TIL FRÓÐLEIKS OG SKEMMTUNAR JÓNAS JÓNSSON FRÁ HRIFLU: ALDIR OG AUGNABLIK (II) Greinar um vandamál líðandi stundar, sem eiaa erindi til allra hugsandi manna. 192 bls. Bók nr. 6020 HEB-verð kr. 300 KRISTJÁN RÓBERTSSON: GEKK ÉG YFIR SJÓ OG LAND í þessari skemmtilegu og fróðlegu bók segir frá þeim miklu umbrotum sem áttu sér stað í lífi fólks í Vestmannaeyjum á síðari hluta 19. aldar og fram yfir aldamót, þegar íslenskir mormónatrúboðar birtust þar og fóru að boða nýtt fagnaðarerindi sem ekki hafði heyrst hér á landi áður. Þetta er bæði furðuleg og fróðleg saga, sem margir munu áreiðanlega hafa gam- an af að kynna sér. Bók nr. 6021 HEB-verð kr. 400 THEODÓR GUNNLAUGSSON FRÁ BJARMALANDI: JÖKULSÁRGLJÚFUR Islenskur undraheimur. „Þar sem aldrei á grjóti gráu gullin móti sólu hljæja blóm, og ginnhvítar öldur gljúfrin háu grimmefldum nísta heljarklóm." Svo kvað Kristján Jónsson Fjallaskáld forðum. Ekki treystum við okkurtil að orða lýsingu Dettifoss og nágrennis betur, en fullyrða má, að þessi bók komist næst því að koma á staðinn og eftir lestur bókarinn- ar muntu njóta betur bæði kvæðis Fjalla- skáldsins og komunnar í Jökulsárgljúfur. Bóknr.6022 HEB-verð kr. 1200 RICHARDT RYEL: í FRÁSÖGUR FÆRANDI Ferðaþættir og hugleiðingar í þessari bók eru ferðaþættir og hugleið- ingar íslendings, sem hefur verið búsettur erlendis um áratuga skeið. Bókin skiptist í 31 kafla: ferðaþætti til Egyptalands og Marokkó og skoðunarferð um Kaup- mannahöfn og Norður-Sjáland, hugleið- ingar um dulræn efni, drauma, trúmál og hið daglega líf í kringum okkur. Bók nr. 6023 HEB-verð kr. 550 GUNNAR BJARNASON: ÆTTBÓK OG SAGA íslenzka hestsins á 20. öld (I). Þessi bók kom fyrst út árið 1969 og hlaut frábærar viðtökur, enda er bókin glæsileg í alla staði. Bókin seldist upp á skömmum tíma en nú hefur hún verið endurprentuð. Sjálf ættbókin nær yfir 664 skráða kyn- bótahesta á árunum 1920-1969. Einnig er í bókinni starfssaga Gunnars Bjarnasonar fyrir árin 1940-1950 og félagaannáll hrossaræktarfélaga frá upphafi til 1960. Bók nr. 6024 HEB-verð kr. 2200 GUNNAR BJARNASON: ÆTTBÓK OG SAGA íslenzka hestsins á 20. öld (II). Þetta er annað bindi Ættbókar og sögu íslenska hestsins á 20. öld. Fyrir 19 árum kom fyrsta bindið út og fjallaði það um stóðhesta, en nú er fjallað um kynbóta- hryssur. Hér eru birtar lýsingar á flestum skráðum og völdum undaneldishryssum landsins frá aldarbyrjun til 1970, eða þær sem komið hafa við sögu í kynbótastarf- inu, alls um 3500. í bókinni eru einnig glefsur úr starfssögu Gunnars og er óhætt að fullyrða að þar er hressilega skrifað. Bók nr. 6025 HEB-verð kr. 2200 GUNNAR BJARNASON: ÆTTBÓK OG SAGA íslenzka hestsins á 20. öld (III). Þetta er þriðja bindi hins mikla ritverks Gunnars Bjarnasonar hrossaræktarráðu- nauts. Þessi bók er sérlega glæsileg í alla staði og nauðsynleg öllum áhugamönn- um um íslenska hrossarækt. f þessu bindi er haldið áfram þar sem frá var horfið í öðru bindi við að fjalla um kynbótahryss- ur. Hér eru birtar lýsingar á flestum skráð- um og völdum undaneldishryssum lands- ins frá aldarbyrjun fram til ársins 1970. í þessu bindi er fjallað um ættbókarfærðar hryssur frá Eyjafirði, austur um og allt til Borgarfjarðar. í þessu bindi, eins og hin- um fyrri er starfssaga Gunnars og er hér fjallað mikið um útflutning hrossa og bar- áttu Gunnars við að vinna íslenska hest- inum markað erlendis. Bók nr. 6026 HEB-verð kr. 2200 GUNNAR BJARNASON: ÆTTBÓK OG SAGA íslenzka hestsins á 20. öld (IV). Þetta er fjórða bindi stórvirkis Gunnars Bjarnasonar. Hann hefur hlotið mikið lof fyrir þetta einstæða ritverk sitt, bæði hér- lendis og erlendis, enda er Ættbókin kom- in út í þýzkri þýðingu. í IV. bindinu eru m.a. ættarskrár 380 stóðhesta, leiðbein- ingar um hrossakynbætur, auðskilin erfðafræði og skýringar á myndum gæð- ingaættstofna innan íslenska hestakyns- ins. Hundruð mynda og tugir litmynda, þar á meðal litmyndaraðir með nöfnum á litum íslenskra hesta. Ættbókin nær fram á Vindheimamelamótið sumarið 1982. í þessu bindi birtist líka eina ættskráin yfir útflutta stóðhesta sem til er. Loks er í bindinu risavaxin nafnaskrá yfir öll 4 bind- in, með þúsundum nafna manna og hesta. Bók nr. 6027 HEB-verð kr. 2200 GUNNAR BJARNASON: ÆTTBÓK OG SAGA íslenzka hestsins á 20. öld (V). í þessu bindi er lýsing stóðhesta frá nr. 964 til 1140 og lýsing á hryssum frá nr. 3500 til nr. 4716. í bókinni er starfssaga Gunnars sem ráðunauts til ársins 1973. Segir þar m.a. frá kynningu á íslenska hestinum í Evrópu og Ameríku, stofnun hestaklúbba erlendis og alþjóðasam- bands um íslenska hestinn. Bókina prýða myndir af flestöllum stóðhestum sem lýs- ing er af. Bók nr. 6028 HEB-verð kr. 4000 ÆTTBÓK OG SAGA íslenzka hestsins á 20. öld (VI). í þessu bindi er lýsing stóðhesta frá nr. 1141 til 1174 og lýsing á hryssum frá nr. 4717 til 8072. Þar með hefur Gunnar unn- ið það afrek að koma í eina aðgengilega ritröð öllum hryssum sem hafa fengið dóma og ættbókarnúmer fyrir maíbyrjun 1990 og öllum stóðhestum sem hafa feng- ið dóma og ættbókarnúmer fyrir júlílok 1990. Hvergi annars staðar geta hesta- menn og áhugamenn um hrossarækt gengið að öllum þessum upplýsingum. Gunnar reið á vaðið - og komst fyrstur yfir. Bók nr. 6029 HEB-verð kr. 4000 Bókaskrá 49

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.