Heima er bezt - 02.10.1993, Blaðsíða 58
TIL FRÓÐLEIKS OG SKEMMTUNAR
D.C. JARVIS M.D.:
GIGTARSJÚKDÓMAR
& HEILSUFRÆÐI
ALÞÝÐUNNAR
Bókin er rituð á lifandi og auðskildu máli
og opinberar fróðleik sem er í fárra eigu
og ber fram skynsamlegar ráðleggingar
um einn hinna þrálátustu sjúkdóma sem
læknavísindin þekkja. Mjög eru athyglis-
verðar athuganir og tilraunir höfundarins
á búfé bændanna í Vermont, fóðrun þess
og áhrif fóðursins á heilsufar þess og
áhrifaríkum en einföldum aðferðum til við-
halds heilbrigðis bústofnsins og afurða-
gæða. Ástæða er til að benda íslenskum
búfjárræktendum á niðurstöður læknisins
eins og þeim er lýst í þessari bók.
Bóknr. 6131 HEB-verð kr. 750
BJÖRN JÓNSSON, LÆKNIR:
STJARNVÍSI í EDDUM
Hér gefst íslenskum lesendum kostur á
að fá hnitmiðaða og skemmtilega útlistun
Björns Jónssonar á hinum stjarnfræðilega
vettvangi norrænna goða.
Bóknr. 6132 HEB-verð kr. 350
VIKTOR KORCHNOI:
FJANDSKÁK
í bókinni er lýst á berorðan og óvæginn
hátt aðförum Sovétvaldsins gegn Korch-
noi og fjölskyldu hans og hvernig þeim var
beitt í hinu grimmilega heimsmeistaraein-
vígi hans við Karpov á Filipseyjum.
Bóknr. 6133 HEB-verð kr. 150
GUÐJÓN BALDVINSSON:
FJÖLSKYLDUGÁTUR
í bókinni er blandað saman léttum og
þyngri þrautum við hæfi sem flestra.
Lausnir á öllum myndagátum og þrautum
eru gefnar upp aftast í bókinni og eitt
lausnarorð í hverri krossgátu.
Bóknr.6134 HEB-verð kr. 400
ÞORSTEINN MA TTHÍASSON:
ÍSLENSKIR
ATHAFNAMENN
2. BINDI
Viðtöl við fólk er sett hefur svip á íslenskt
atvinnulíf.
Bóknr.6135 HEB-verð kr. 400
BJÖRN ÞÓRÐARSON:
ALÞINGI OG
KONUNGSVALDIÐ
Þessi bók rekur lagasynjanir Danakon-
ungs á lögum sem Alþingi hafði samþykkt
á 30 ára tímabilinu frá 1875-1904. Hér er
það ætlunin að gera nokkra grein fyrir
þeim rökum, er ráðgjafinn barfram hverju
sinni, er hann lagði til við konung, að lög-
um frá Alþingi væri synjað staðfestingar.
Bóknr.6136 Heb-verð kr. 800
ÝMSIR HÖFUNDAR:
AFMÆLISRIT TIL STEIN-
GRÍMS J. ÞORSTEINS-
SONAR PRÓFESSORS
Þetta rit var gefið út í tilefni af 60 ára af-
mæli Steingríms J. Þorsteinssonar, pró-
fessors, og voru það nemendur hans er
það gerðu. Er að finna í bókinni 19 vís-
indaritgerðir um hin margvíslegustu efni
úr kennslusviði Steingríms.
Bóknr. 6137 Heb-verð kr. 500
FINNBOGI GUÐMUNDSSON:
AÐ VESTAN OG HEIMAN
Höfundur þessarar bókar birtir hér á ein-
um stað rúmlega 40 ræður og greinar,
samdar á árunum 1951 -1966. Þótt víða
sé komið við, allt frá Önundi tréfót til Hall-
dórs Laxness, er einkum fjallað um ís-
lendinga vestan hafs, byggðir þeirra og
margvísleg málefni. En höfundi gafst ein-
stakt færi á að kynnast þeim vandlega á
dvalarárum sínum vestra sem kennari í
íslenskum fræðum við Manitobaháskóla í
Winnipeg. Fjöldi mynda er í bókinni.
Bóknr.6138 Heb-verð kr. 300
ÞÉTUR MAGNÚSSON FRÁ
VALLANESI:
ÉG HEF NOKKUÐ
AÐ SEGJA ÞÉR
Höfundur var þjóðkunnur, bæði sem rit-
höfundur og ræðumaður á sinni tíð. Bókin
hefur að geyma predikanir hans. Sú trú-
aralvara og mannvit sem þær hafa að
geyma kunna að kasta Ijósi á veginn villu-
gjarna, sem svo mörg ungmenni vorra
tíma streyma um, og hjálpa einhverjum
þeirra til að átta sig og finna einstigið,
sem liggurtil heimkynna hamingjunnar.
Bóknr.6139 Heb-verð kr. 250
ÞÓRÐUR TÓMASSON:
AUSTAN BLAKAR
LAUFIÐ
ÆTTARSAGA UNDAN
EYJAFJÖLLUM
Höfundurinn segir í formála:
„Þessi bók er helguð vinum mínum, sem
lifðu í fórn og kærleika, voru ríkir í fátækt,
glötuðu aldrei barninu og gátu glaðst yfir
litlu. Öld þeirra er liðin og minningar
hennar eru að hverfa inn í skugga og
gleymsku. Hér er ekki sagt frá öðru en fá-
breyttu lífi alþýðufólks, baráttu þess, sigr-
um og ósigrum við aðstæður sem okkur
hrýs oft hugur við. Frásagnir þessar eru
jafnframt dálítið framlag til sögu Rangár-
þings á 19. öld.“
Bóknr.6140 Heb-verð kr. 350
ÁRELÍUS NÍELSSON:
ÁBJARGI ALDANNA
ARMENSKA KIRKJAN
Þessi bók segir sögu armensku kirkjunn-
ar, allt frá því er fyrsta kirkja heimsins var
byggð í dölum Araratfjalls um 300 e. kr.
og til þessa dags. Voru það áhrif
armensku kirkjunnar með armenskum
flóttabiskupum, sem fyrst festu rætur á ís-
landi? Voru armenskir biskupar hér
fyrstu 50 árin eftir kristnitöku? Eru Öræfa-
tindur og Araratfjall skyldari en ætlað hef-
ur verið?
Bóknr. 6141 Heb-verð kr. 250
BENEDIKT GÍSLASON
FRÁ HOFTEIGI:
ÍSLENDA
Bók um forníslensk fræði. Höfundur segir
m.a. í formála:
„...Þó lá það á lausu fyrir (höfundi) hvað
hér lá fyrir af heimildum og rökrænu viti,
og að ekki var fært að trúa því, sem haft
var fyrir satt um byggð í þessu landi. Þó
lá það fyrir að þjóðin trúði því, að nokkrir
menn frá Noregi, er töldust landflótta það-
an og víkingalýður, allfjölmennur, hefði
komið hér að auðu landi um 870, og síð-
an sest að í þessu landi og stofnað þjóð-
ríki um 930 og höfðu þá þessir landsins
frumbyggjar verið að koma hingað allan
þennan undanfarna tíma, um það bil 60
ár... Þeir sem hér skoðuðu söguna af
nokkurri þekkingu, hlutu að mótmæla
58
Bókaskrá