Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1993, Síða 61

Heima er bezt - 02.10.1993, Síða 61
TIL FRÓÐLEIKS OG SKEMMTUNAR ^ að leysa gátur náttúrunnar. Bókin er að hálfu leyti myndabók, því að hún er ríku- lega skreytt myndum eftir Bjarna Jónsson listmálara. Myndirnar eru um 75 talsins og eru sumar þeirra til nánari glöggvunar á efni þáttanna en aðrar sjálfstæðar. Hin- ar skýru myndir Bjarna eru bæði til fróð- leiks og augnayndis. Útgáfuár: 1983 Bóknr.6158 Heb-verð kr. 250 ÞJÓÐSÖGUR FRÁ EISTLANDI Þetta kver veitir nokkra innsýn í hugar- heim eistnesku þjóðarinnar á liðnum öld- um, fjölþætta þjóðtrú hennar á gott og illt, á dularfullar vættir í skógum, ám og vötn- um. Sumar sögurnar minna á íslenskar þjóðsögur. Víða gætir hér djúprar lífs- speki, þar sem náttúran hefnir sín sé gegn henni syndgað. Flestar eru sögurn- ar byggðar á siðferðilegum grunni. Dyggðin uppsker sín laun, en svikin fá makleg málagjöld að lokum. Kvernr.6159 Heb-verð kr. 250 EINAR H. KVARAN: „EITT VEIT ÉG“ í þessari bók er aðeins sýnd ein hlið á rit- verkum þessa fjölhæfa og afkastamikla manns, sú sem snýr að sálarrannsóknun- um. Engin leið var að birta þar allt, sem hann ritaði um þau mál. Það hefði fyllt margar bækur. Um valið á því, sem hér er tekið, getur að sjálfsögðu orkað mjög tvímælis. Þar var úr svo mörgu að velja og erfitt að skera úr um það, hverju ætti að hafna. Helst hefði maður að sjálfsögðu kosið að hafna þar engu, mega taka allt með. Eigi að síður ætti þessi bók, sem gefin er út á 100 ára fæðingardegi skáldsins, að geta gefið lesandanum sæmilega glögga hugmynd um afstöðu þessa spakvitra og gætna manns til þess málefnis, sem hann taldi mikilvægast alls, málefnis, sem snertir og hlýtur að snerta afstöðu hvers hugsandi manns til lífsins og hinna raunverulegu verðmæta þess. Bóknr.6160 Heb-verð kr. 450 MAGNÚS JÓNSSON FRÁ SKÓGI: KENNSLUBÓK í ESPERANTO Það var til að bæta úr brýnni þörf að kver þetta kom á markaðinn. Sjálfgefið er að í svona lítilli bók er ekki kleift að koma fyrir fullkomnum skýringum og alhliða orða- forða, en orðstofnar í esperanto eru um 8 þúsund. Þess er þó vænst að þeir sem með kostgæfni kynna sér bókina, geti bjargað sér af sjálfsdáðum til frekari leikni í meðferð málsins. Esperanto er auðveld- ara að læra en önnur tungumál, og er hér notuð aðferð, sem nemendunum ætti að reynast aðgengilegri en áður hefur tíðkast í tungumálakennslubókum hér. Kvernr.6161 Heb-verð kr. 200 JAKOB JÓH. SMÁRI: ÍSLENSK-DÖNSK ORÐABÓK Úr formála annarar útgáfu bókarinnar: „í þessa útgáfu er upp tekin fyrsta útgáfa að mestu óbreytt, aðeins vikið til á örfáum stöðum, þar sem betur þótti fara mega og fáeinum þýðingum bætt við. En sá bókar- auki er hér gerður að við er bætt rúmlega 1800 uppsláttarorðum. Við val þeirra orða hef ég einkum haft tvennt í huga. Annað var það að taka fyrst og fremst algeng orð, svo sem gert er í fyrstu útgáfu. Hitt var það að taka helst þau samsett orð, sem ekki liggur beint við að þýða eftir merkingu hvors eða hvers samsetningar- hluta út af fyrir sig. Útgáfuár: 1969 Bóknr.6162 Heb-verð kr. 950 FINNBOGI GUÐMUNDSSON: ORÐ OG DÆMI í bók þessari eru 25 ræður og greinar Finnboga Guðmundssonar landsbóka- varðar frá árunum 1965-1981, auk viðtals Valgeirs Sigurðssonar við hann frá árinu 1975. Útgáfuár: 1983 Bóknr.6163 Heb-verð kr. 300 R.M. OSMENT: FRÁ KOMMÚNISMA TIL KRISTS Höfundur þessa rits varð snemma sann- færður kommúnisti og helgaði sig alger- lega þeirri stefnu, enda var hún fullviss þess að í kommúnismanum væri lausn á vandamálum mannkynsins. Þá kynnist hún sannkristinni kennslukonu, sem gefur henni Nýja testamenti. Henni opnast nýr heimur og svo fer um síðir að hún endur- skoðar viðhorf sín til lífsins í Ijósi hinnar nýju þekkingar. Gerir hún í riti þessu grein fyrir hvernig skoðanir hennar breytast og hún laðast að þeirri persónu, sem ein á svar við dýpstu spurningum lífsins, Kristi Jesú. Því er ritið nefnt „Frá kommúnisma til Krists.“ Heftinr.6164 Heb-verð kr. 100 EFRAIM BRIEM: LAUNHELGAR OG LOKUÐ FÉLÖG Höfundur segir svo í formála: „I riti þessu er gerð tilraun til að lýsa þró- un launhelgafélaga á jörðu hér. Eins lengi og rannsakandi hugur manns fær rakið, hefur djúpsett þrá eftir lífi, er dauðinn fær eigi grandað, verið rótfest í lífi mannkyns. } Þessi löngun hefur hlotið svölun í boð- j skap trúarinnar og það eigi síst eins og sá boðskapur hefur mótast í heimullegum launhelgafélögum. Hversu sundurleit sem | þau hafa verið á ýmsum tímum og með ýmsum þjóðum, má samt greina hinn sama rauða þráð, sem hér er reynt að } rekja. Megináherslan hefur verið lögð á hinar fornu launhelgar, því að þær eru sá grundvöllur, sem allar hinar síðari eru á reistar." Bóknr.6165 Heb-verð kr. 450 LAUNVISKA VEDABÓKA UPHANISHADUR Upha-ni-shad-ur eru launhelgasta verk allra tíma. Þær eru grundvallarrit ind- verskrar heimsspeki, einkum Vedanta- heimsspekinnar. Þær elstu þeirra eru ekki taldar yngri en frá 800 til 600 f.Kr. Allt til þessa dags hefur ekkert heimspeki- legt hugsanakerfi komið fram, sem skar- } að hefur fram úr þeim að heimsspekilegu ! gildi. í ritum þessum birtist frumhugsun allrar heimsspeki, hátindur andlegrar, } skapandi hugsunar. í raun og veru má | segja, að í þeim birtist grunnkjarni allra | trúarbragða umbúðalaus. Hinn launhelgi } tilgangur þeirra var og er að vígja mann til } vitundar um eininguna í sjálfum honum i og öllu lífi, í hljóðleik og þögn hans innra lífs. Hér er ekki um skáldskap að ræða } eða kenningar, heldur sígild, launhelg sannindi. Bóknr.6166 Heb-verð kr. 300 Bókaskrá 61

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.