Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1995, Page 26

Heima er bezt - 01.12.1995, Page 26
[Heimlnð Umsjón: Hildur H. Karlsdóttir Kerti og kertagerð Þegar dimmustu dagar ársins nálg- ast verður ljósið mikilvægt í hugum flestra. Það þykir mörgum róman- tískt að hafa kerti og róandi að horfa inn í lifandi ljósið. A árum áður voru kerti búin til úr tólg hér á Islandi og lýsi notað í kol- ur til að lýsa upp dimma gangana í torfbæjunum. Kertagerð er rakin allt til 3000 fyrir Krist. Á nítjándu öld varð talsverð þróun í kertagerð, m.a. vegna uppfinninga franska efnafræð- ingsins Michel-Eugéne Chevreul, sem fann aðferð til að aðskilja fitu- sýrur frá glycerini. Alþjóðlega staðlaður mælikvarði á ljósmagni er mældur í ljósmagns- styrkleika kerta og var þessi staðall samþykktur árið 1921. Nú er yfirleitt ekki þörf á kertun- um í daglegu lífi nema í þeim tilvik- um sem rafmagnið fer af. Kertagerð var áður fyrr sjálfsagður hlutur á heimilum og eitt af því sem þurfti til daglegra nota. Nú hefur þessi iðja hins vegar aðra merkingu. I dag býr fólk til kerti í frístundum, sér til ánægju. Til kertagerðar má nota gamalt vax, sem hefur orðið afgangs af kert- um, eða bræða upp gömul kerti sem hafa brotnað. Ef það er gert er hægt að nota kveikinn aftur. Ymis ílát er hægt að nota sem kertamót, t.d. jógúrtdollur, gömul pilluglös og fleira. Aðalatriðið er að hægt sé að ná kertinu auðveldlega upp úr eftir að það hefur storknað. Auk þess sem hér er nefnt þá er hægt að fá ýmis mót og allt efni til kertagerðar í föndurbúðum. IÞegar notaðar eru jógúrtdollur eða pilluglös, þarf að byrja á að hita nál og stinga gat á botninn á dollunum. Síðan er kertaþráðurinn strengdur frá botninum og bundinn við prjón að ofan, eins og skýringarmyndin sýnir. Á botninn er límdur heftiplástur til að festa þráðinn og loka fyrir gatið. 3Því næst er hitað vatn og látið sjóða. Vaxið er sett í könnu, sem er hituð í sjóðandi vatninu og þannig er vaxið brætt. 4Þegar vaxið er orðið að fljót- andi vökva er því hellt í mótin. Hægt er að búa til röndótt kerti með því að láta vaxið aðeins storkna á milli og setja svo nýjan og nýjan lit. Einnig er hægt að mála á kertin margs konar myndir og eru til sér- stakir litir til þess. Önnur aðferð til að búa til kerti, er að dýfa kveiknum í heitt vaxið og láta storkna á milli. Þræðinum er stungið ofan í vaxið á þennan hátt þar til kertið er í þeirri þykkt, sem óskað er. 418 Heima er best

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.