Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1947, Blaðsíða 5

Æskan - 01.12.1947, Blaðsíða 5
. jo. EN það bar við um þessar mundir, að boð kom frá Ágústusi keisara um, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þá fóru allir til þess að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar. Jósef var af húsi og kynþætti Davíðs. Fór hann því frá borginni Nazaret í Galíleu upp til borgar Davíðs, Betlehem í Júdeu, til þess að láta skrásetja sig, ásamt Maríu, heitkonu sinni, sem þá var þunguð. En á meðan þau María og Jósef dvöldust í Betlehem, kom að því, að hún skyldi verða léttari. Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu, af því að það var eigi rúm fyrir þau í gistihúsinu. Fyrir utan borgina voru fjárhirðar úti í haga og gættu hjarðar sinnar um nótt- ina. Allt I einu stóð engill Drottins hjá þeim, og dýrð Drottins Ijómaði i kringum þá. Fjárhirðarnir urðu þá mjög hræddir. En engillinn sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðum, því að yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi i jötu. -—■ En i sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð og sögðu: Dýrð sé Guði i upphæðum og friður á jörðu með þeim mönnum, sem hann hefur vclþóknun á, Þegar englarnir voru farnir, sögðu hirðarnir hver við annan: Vér skulum fara rak- leiðis til Betlehem og sjá þennan atburð, sem orðinn er og Drottinn hefur kunn- gjört oss. Fóru þeir þá með skyndi og fundu bæði Maríu og Jósef og ungbarnið liggjandi i jötunni. En þegar þeir sáu það, skýrðu þeir frá því, er talað hafði verið við þá um barn þetta. Og allir, sem heyrðu það, undruðust það, sem hirðamit sögðu þeim. En María geymdi öll þessi orð og hugleiddi þau með sjálfri sér. En hirðarnir sneru aftur og vegsömuðu og lofuðu Guð fyrir allt höfðu heyrt og séð. 'Á ; sem

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.