Æskan - 01.12.1947, Blaðsíða 29
Jólablað Æskunnar 1947
Jólaleikir og brellur.
Stundum kemur þa‘ð fyrir, þar sem
margt fólk er komið saman til að
skemmta sér, að allir eru reiðubúnir
til að taka þátt í gamni og leikjum, en
enginn man í svipinn eftir neinu, sem
hægt er að hafa sér til gamans. Og
svo sitja allir í vandræðum og góna
hver á annan, allir ætlast til, að ein-
hver hinna finni upp á einhverju.
Þetta er skelfilegt ástand. Þó ltunna
flestir eða allir fleiri eða færri leiki,
sem gætu verið ágætir, hara ef þeir
myndu eftir þeim. En það er eins og
allt sé undir sjöföldum lás.
Nú er bezt að rifja upp nokkra
gamla og góða leiki og brellur, rétt til
þess að hjálpa til að komast af stað.
Sætaskipti.
Stólum er raðað þannig ,að þátttak-
endur sitja i hring. Sætin eru tölusett,
byrjað á 1 og svo áfram. Allir þurfa
að setja vel á sig, hvar hvert númer
er. Einn þátttakandi er sætislaus og
stendur inni í hringnum og er bundið
fyrir augu hans. Hann nefnir nú tvö
sætanúmer, og þeir, sem sitja þar,
standa samstundis upp og reyna að
skipta um sæti án þess hann verði var
við, en blindinginn á aftur á móti að
reyna að komast i annaðhvort sætið.
Ef þeim tekst að skipta um, klappa
allir liinir saman lófunum, og þá
nefnir hann tvö önnur númer og
reynir á ný. Þannig er haldið áfram,
þangað til hann kemst í annan hvorn
stólinn, og þá verður sá blindingi, sem
af stólnum missti.
Að þekkja kvæði.
Einn þátttakandi er sendur út.
Hinir koma sér saman um eitthvcrt
algengt erindi cða vísu, og orðunum
i henni er skipt á milli manna f réttri
röð frá byrjun. Ef þátttakendur eru
færri en orðin, getur sama maður haft
fleiri orð cn eitt. En þess verður að
gæta, að þau séu látin koma í réttri
röð, þegar farið er að spyrja.
Nú kemur sá inn, sem út fór, og
hann iná spyrja liina um hvað, sem
honurn dettur í hug. Sá svarar fyrst,
sem fékk fyrsta orðið, og svo koll af
kolli. Hann skal svara með einni
setningu, og í henni skal vera hans
orð úr vísunni.
Ef valin hefði verið vísan:
„Sáuð þið hana systur mína--------“
gæti samtalið byrjað á þessa leið:
1. Spurning: Hvar varstu i gær-
kvöldi?
Svar: Þar, sem allir viðstaddir
súu mig.
2. Spurning: Hvað dreymdi þig í
nótt?
Svar: Að þiff væruð öll föst sam-
an á nefjunum.
Jólasvelnarnlr halda fund.
139